25.10.1943
Neðri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 788 í B-deild Alþingistíðinda. (1490)
105. mál, vinnuhæli berklasjúklinga
Finnur Jónsson:
Mér finnst þetta mál verðskulda, að því sé gaumur gefinn. Það, sem vakir fyrir flm., er að greiða fyrir því, að þetta hæli komist upp, með því að fá ákvæði um undanþágu frá skatti á gjöfum til hælisins, eins og farið er fram á í frv.
Nú hefur verið bent á það af öðrum hv. þm., að þetta muni geta dregið dilk á eftir sér og verkað mjög truflandi á skattgreiðslu til ríkisins og bæjar- og sveitarfélaga. Ég viðurkenni nauðsyn þess, að þessu máli sé hraðað, og viðurkenni einnig hitt, að þær mótbárur, sem hafa komið fram, eru á rökum reistar. Ég mun þess vegna vita, hvort ekki er hægt að samrýma þessi tvö sjónarmið með brtt. við þetta frv., sem ég mun leggja fram nú á milli umr. En sú brtt. yrði á þá leið, að það yrði ákveðið með l., að þegar Samband ísl. berklasjúklinga reisir vinnuhælið, þá leggi ríkissjóður sérstakt framlag á móti. Mér skilst, að á þann hátt væri hægt að samrýma þessi tvö sjónarmið, og þó ætti engin hætta að vera á því, að þetta kæmi ruglingi á skattalöggjöfina, sem þm. gætu ekki séð út yfir. Með því að hafa þetta framlag nógu ríflegt skilst mér, að það væri mögulegt að koma þessu hæli upp nú á skömmum tíma. Það er upplýst í frv., að Samband ísl. berklasjúklinga hafi safnað 280 þús. kr. í þessu skyni, og leggi ríkið fram 2/3 hluta þar á móti, þá eru þar handbærar 840 þús. kr. Ef þetta framlag yrði ¾ hefði Samband ísl. berklasjúklinga nú þegar handbærar l millj. og 120 þús. kr. En ég mun í till. minni leggja til, að framlagið frá ríkissj. verði 2/3, en er hins vegar fús til, ef menn álíta þetta ekki nógu ríflegt, að breyta því hlutfalli.