08.12.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í B-deild Alþingistíðinda. (152)
27. mál, fjárlög 1944
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. Það eru hér fáeinar brtt. við fjárl., sem ég er riðinn við, og eru þær flestar fluttar af mér ásamt öðrum hv. þm., þó að undanskilinni einni. Ég geri nú ráð fyrir um þær brtt., þar sem aðrir eru meðflm., þá hafi sumra þeirra brtt. a. m. k. verið minnzt af öðrum, sem hér hafa tekið til máls, og þar á meðal af hv. 1. þm. Árn. (JörB), og get ég verið fáorður um þær brtt.
Þá er fyrst að geta XIII. brtt. á þskj. 517, sem við þm. Árnessýslukjördæmis höfum flutt hér og lýtur að beiðni um 600 þús. kr. framlag til brúargerðar á Hvítá hjá Iðu í Biskupstungum. Þetta er gömul þörf og gamalt málefni, sem um er hér að ræða, en því miður er því skammt á veg komið, og svarar ekki framgangurinn á þessu til þeirrar nauðsynjar, sem þarna er fyrir hendi. Það þykir nú e. t. v. stórt spor, sem maður vill láta stíga, að fara hér fram á við 3. umr. fjárl. að fá 600 þús. kr. framlag til slíks. Og því er ekki að neita, að það er há upphæð. Og það, að upphæðin er þetta há, sem nefnd er til framkvæmda á þessu stórvirki, það kemur af því, að verkið er það mikilvægt og mikils varðandi, og nauðsynin er ekki hlutfallslega minni en fjárhæðin. Það eru nú háar fjárhæðir veittar í fjárl. til vegagerða og brúargerða einnig. En það er nú eins og hæstv. Alþ. falli í þann farveginn að sinna hinu marga smáa, gera sem flestum einhverja úrlausn samkvæmt meiri og minni þörf. En það verður þá hins vegar að taka tillit til þess, að þarna er höfuðþörf, sem kostar stórt átak, en hefur orðið út undan.
Það hefur áður verið rætt hér á hæstv. Alþ. um brúna á Hvítá hjá Iðu í Biskupstungum. og þingheimur veit, hver nauðsyn er á þessari brú. Hún er miðuð við almennar samgöngur og flutninga. Og þá er hún höfuðnauðsyn, því að hún mundi verða tengiliður milli fjölda búenda í meginhéraði. Ferja er erfið yfir ána, og stundum verður hún ekki hagnýtt, og tekur þá fyrir allar milliferðir þar. Þetta út af fyrir sig er nóg til þess að réttlæta það, að þessi brú á að koma og þarf að koma, og það liggur á henni. En þó er annað, sem er verra vegna vöntunar á brú þarna yfir ána, og það er, hversu erfitt er oft þess vegna að vitja læknis. Gerir það nauðsynina á brúargerð þarna því enn meir aðkallandi. Það eru þrír hreppar, Hrunamannahreppur, Gnúpverjahreppur og Skeiðahreppur, sem eiga læknishérað þarna saman og þurfa að vitja læknis að Laugarási, sem er á Vesturbakka Hvítár. Og ekki sjaldan hefur það komið fyrir, að ekki hefur verið hægt að vitja læknis vegna þeirrar torfæru, sem Hvítá er. Þetta gerir málið að alveg sérstöku alvörumáli. Og hvað sem því líður, að hv. fjvn. — sem ég veit, að hefur góðan hug til hvers eins af nytsömum málum, — hefur ekki treystst til að mæla með þessu framlagi, þá veit ég þó, að bæði hv. fjvn-menn og aðrir hv. þm. gera greinarmun á því, sem er lífsnauðsyn, og því, sem er ekki lífsnauðsyn. Ég vona því, að hæstv. Alþ. sjái sér fært að samþ. þessa brtt. Á síðasta þingi lágu fyrir áskorunarskjöl til Alþ. frá um það bil öllum búendum í þessum þremur stóru sveitum, þar sem skorað er á Alþ. að verða við þessari beiðni. Og það mun vera á ferðinni ítrekun á því. Því að þetta er ekki duttlungamál þeirra, sem eiga hagsmuni sína undir þessu máli og stundum líf sitt og sinna. Þeir gleyma því ekki þessu máli, og það verður ekki látið staðar numið, fyrr en það vinnst að koma þessu máli fram, og því fyrr því betra.
Þá hef ég gerzt flm. að brtt. hér ásamt fleiri hv. þm., sem er XXVI. brtt. á þskj. 517. Sú till. gildir einnig háa fjárhæð og er um að veita 200 þús. kr. sem byrjunarframlag til fyrirhugaðs Bændaskóla Suðurlands. Þetta var flutt sem brtt. í sambandi við síðustu fjárl., að vísu með lægri upphæð, — ég man ekki, hvort það var 100 þús. kr., sem þá var miðað við —, en þá náði till. um þetta ekki fram að ganga. Þótti því sjálfsagt að endurnýja þessa beiðni nú. Bændaskóli Suðurlands var ákveðinn með sérstökum l. á Alþ. Og ég man ekki betur en þau l. væru samþ. og játuð þannig nauðsyn þessa skóla, með svo að kalla einróma atkv. allra alþm. Nú er málinu lengra komið að því leyti, að þeir hafa nú þegar verið að verki, sem falið var, samkv. l. um Bændaskóla Suðurlands, að gera till. um skólastaðinn. Og ég veit ekki betur en að þeir þrír menn, sem hafa um þetta fjallað, hafi nú skilað áliti sínu. Svo að það, sem a. n. l. var fundið að því að veita þetta framlag á síðasta þingi, það kemur nú ekki til greina, sem sé, að ekki væri búið að ákveða, hvar skólinn ætti að vera á skólasvæðinu, þar sem ég tel, að sú ákvörðun sé nú um það bil komin. Ég hygg því, að af hendi hæstv. ríkisstj. muni nú vera auðvelt að gera sér grein fyrir réttu og röngu í þeim efnum. Ég vona því, að brtt. þessi fái nú góðar undirtektir á Alþ., vegna þess að þetta mál horfir til ótvíræðrar menningar í framtíðinni.
Þá er hér smábrtt., sú XXXVI. á sama þskj., 517, sem ég hef flutt ásamt mörgum fleiri hv. þm., um smávægilega viðurkenningu, 1000 kr. í eitt skipti fyrir öll, til þjóðhagasmiðsins Jóns Gestssonar bónda í Villingaholti. Hann væri vel að þessu kominn. Hann er nú kominn yfir áttrætt og hefur staðið við sinn rennibekk til þessa. En kraftarnir fara nú að minnka. Hann hefur verið einstakur völundur við smíðar og gert mörgum gagn, en sérstaklega er hann þó þjóðkunnur fyrir spunavélar sínar. Hann er mikill iðnfrömuður og velgerðamaður þjóðarinnar með því að smíða þessar vélar, sem munu vera komnar í flest héruð landsins og meira að segja út fyrir landsteinana. Spunavélarnar frá honum munu nú vera komnar á annað hundrað. Og þar sem hann hættir smíði þeirra, taka synir hans við, því að þeir hafa erft það frá honum að vera smiðir, og hann hefur kennt þeim. —
Jón er einstakur heiðursmaður, fátækur að fé, en ríkur að nytsömu ævistarfi. Ég vona því að þessi litla brtt. fái góðar undirtektir á Alþ.
Þá er það enn þá einn liður hér á þessu sama þskj., sem er XIII. liður. Ég hef ásamt tveimur öðrum hv. þm. flutt þar brtt. um það, að styrktarfé til dr. Helga Péturss verði hækkað um 1000 kr. Það kunna kannske einhverjir að segja, að hann hafi notið og njóti sæmilegs styrks frá Alþ., þó að þessi hækkun eigi sér ekki stað. En þess er fyrst að geta, að hann hefur aldrei fjáður verið og aðstaða hans hefur verið fremur erfið. Og hann getur lítið veitt sér, þessi alkunni maður, af lífsins þægindum. Þar að auki er dr. Helgi Péturss mjög farinn að heilsu, og sjúkdómur hans er erfiður og hefur orðið þess valdandi nú, þegar sígur á seinni hluta ævinnar fyrir honum, að hann hefur miklu síður notið sín á borgaralegan hátt heldur en annars mundi verið hafa. Svo að frá sjónarmiði hvers góðs og greinds alþm. álít ég, að hann eigi ekki að gjalda þess, heldur njóta, að hann á ekki því láni að fagna að vera alls kostar heilbrigður. En um verðleika hans, hvað hann er, vil ég ekki fjölyrða. Hann var og er mjög viðurkenndur vísindamaður í sinni grein. Hann mun nú fyrir skömmu hafa verið gerður heiðursfélagi í náttúrufræðingafélaginu danska, og það er ekki ómerkilegt, því að það kemur ekki af því, að hann hafi haft tækifæri til að trana sér þar fram, heldur var rýnt eftir því, að hann var þess maklegur. Og það er viðurkennt meðal vísindamanna víðs vegar um heim, að hann hefur gert uppgötvanir, sem eiga að gera nafn hans svo, að það máist ekki, þó að aldir líði. — Þó ekki sé nefnt annað en þetta, þá virðist mér það eiga að verka til örvunar í fjárframlögum til hans. Þá er það enn, að ég veit, að ákaflega margir Íslendingar víða um land unna þessum manni, vegna þess að hvar sem hann stingur niður penna, þar kemur fram frábær fegurð í máli og stil og djörf hugsun, hvað sem segja má um kenningar hans. En þeim er þannig háttað, að þar er ekki verið að umskrifa orð, sem er margbúið að segja áður og eru ekkert nema umskriftin; hann er frumlegur.
Ég skal svo láta þessu máli lokið, en ég treysti því, að hv. þm. líti með sanngirni og víðsýni einnig á þessa till.
Þá flyt ég till. um 24 þús. kr. framlag til gistihúss á Stokkseyri. Þetta sýnist kannske skjóta skökku við, að fara fram á svo mikla upphæð til að reisa gistihús. Það er þegar komið upp, en stendur í mikilli óbættri skuld. Það er stórt, rúmar um 30 gesti, en kostnaðurinn hefur orðið þung byrði þeim áhugamönnum, sem komu því upp. Það, sem sérstaklega mælir með þessu gistihúsi, er aðstaða Stokkseyrar sem landtökustaðar fyrir Vestmannaeyjar, sem er svo að segja eini landtökustaðurinn að undantekinni Reykjavík. Það hefur verið svo, að þegar báturinn hefur lent þar með fjölda fólks, þá hefur það hvergi haft höfði sínu að að halla og orðið að hrekjast úti svo og svo lengi. Nú er gistihúsið komið til að bæta úr þessari brýnu nauðsyn. Vona ég, að hv. þm. skilji, að þetta er sanngjarnt og gott mál. Það hefur verið sett á stofn af mikilli framtakssemi með tilliti til brýnnar nauðsynjar, en nú hvílir á því of mikill stofnkostnaður til þess, að það geti borið sig, og m. a. þess vegna er till. flutt.
Ég ætla að einskorða mál mitt við þær till., sem ég hef flutt, og læt því máli mínu lokið.