11.10.1943
Neðri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)

89. mál, lestarfélög og kennslukvikmyndir

Flm. (Páll Þorsteinsson) :

Herra forseti. Árið 1937 voru fyrst samþ. l. um lestrarfélög og kennslukvikmyndir o. fl., sem ákváðu, að lestrarfélög í sveit og bókasöfn í kauptúnum skyldu njóta nokkurs styrks. Samkvæmt þeim l., eru þær litlu tekjur, sem renna til félaganna og þau hafa til þess að reka starfsemi sína og til bókakaupa, í fyrsta lagi nokkur hluti álags á skemmtanaskatt, sem lagt er á með þeim l., í öðru lagi styrkur frá viðkomandi hrepps- eða sýslufélagi og í þriðja lagi félagsmannagjöld. Samkv. þeim l., sem ég nefndi, er stofnaður styrktarsjóður lestrarfélaga, sem myndast með því, að lagður er á 15% skemmtanaskattur, og því fé, sem inn kemur við það, varið að tveim þriðju hlutum til styrktar bókakaupa þessara félaga.

Það hefur komið í ljós við framkvæmd þessara l. á undanförnum árum, að það fé, sem fæst þannig í styrktarsjóðinn, nemur lægri upphæð, og styrkur sá, sem hvert félag getur fengið úr sjóðnum, nemur því að meðaltali mjög litlu fé.

Ég flyt því á þskj. 139 ásamt hv. þm. V.-Sk. frv. til l. um breyt. á þessum l., og eftir till. frv. er meginbreyt. sú, að hækka skuli álagið á skemmtanaskattinn upp í 30%, og fyrirmælin um styrkúthlutun til einstakra félaga eru í frv. í samræmi við þær auknu tekjur, sem til styrktarsjóðanna mundu falla samkvæmt því. Verðlag á bókum eins og öðru í landinu hefur gerbreytzt, frá því er stríðið hófst. Á hinn bóginn liggur það ljóst fyrir, að það er nauðsynlegt að hlynna að því, að fólkið úti um byggðir landsins geti átt aðgang að allfjölbreyttum bókakosti, svo að það geti fengið yfirlit yfir það bezta, sem gefið er út á hverju ári hér á landi. Þetta er svo augljóst mál, að ég tel ástæðulaust, a. m. k. á þessu stigi málsins, að fara um þetta fleiri orðum, en vil leyfa mér að mælast til þess, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og menntmn.