01.11.1943
Neðri deild: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í B-deild Alþingistíðinda. (1568)

84. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Ég kann ekki við annað en láta nokkur orð fylgja þessu frv. Það atvikaðist svo, að ég þurfti að vera fjarverandi við 1. umr. þess, svo að ég má nú til með að drepa á ýmislegt því viðkomandi.

Þetta frv. er um breyt. á l. um ættaróðal og erfðaábúð. Ástæðurnar til þess, að þau l. voru samþ. á sínum tíma, voru þær, að smátt og smátt kom í ljós, eftir því sem jarðir urðu dýrari en áður, að ungum mönnum varð ofurefli að taka við þeim. Þeir gátu ekki innleyst jarðirnar, og það varð oft því valdandi, að menn hrökkluðust af föðurleifð sinni. Stundum lentu svo jarðir þessar í braski, voru keyptar háu verði, sem leiddi svo til þess, að þeir, sem keyptu, rúðu síðan jarðirnar að verðmætum. Aðrir keyptu jarðir sínar háu verði sjálfir, og afleiðingin varð sú, að skuldirnar urðu þeim fjötur um fót alla ævi. Þetta ástand, er þannig skapaðist á seinni árum, olli því, að menn fóru að athuga, hvað hægt væri að gera til úrbóta.

Tilgangur óðalsréttarl. var sá að girða fyrir sífelld kaup og sölur á jörðunum, og hefðu þó ábúendurnir full umráð yfir þeim eins og eigin eign. Síðan þessi l. voru sett, hafa allmargar jarðir verið gerðar að ættaróðulum. Með þeirri ráðstöfun hefur verið unnið margt í senn að hyggju okkar flm. Það hefur verið komið í veg fyrir brask og óeðlilega hátt jarðaverð, fjármagn hefur verið bundið í sveitunum og síðast, en ekki sízt hafa þau bönd, sem binda bóndann við jörð sína, verið gerð tryggari.

Með l. um erfðaábúð var leiguliðum gefinn kostur á að tryggja niðjum sínum umráðarétt yfir jörðinni með óbreytilegu eftirgjaldi. Jafnframt var bændum með erfðaábúð heimilað að fá jarðirnar keyptar. Með þessu móti var versti ókostur leiguliðaábúðarinnar burtu fallinn.

Nú, þetta er þá saga málsins, ef svo mætti segja.

Búnaðarþing 1942 tók þetta mál til meðferðar vegna tilmæla og óska um breyt. á þessum l., og það samþ. áskorun til stjórnar Búnaðarfélags Íslands um að endurskoða þau. Stjórn búnaðarfélagsins fól síðan okkur Jóni Hannessyni í Deildartungu að framkvæma þessa endurskoðun. Við lögðum svo tillögur okkar fyrir síðasta búnaðarþing, er samþ. þær með 24, eða öllum atkv. Mál þetta hefur því fengið góðan undirbúning, betri en mörg önnur frv., sem lögð hafa verið fyrir Alþ.

Helztu breyt., sem endurskoðunarnefndin og búnaðarþing gerðu á l., voru: Í fyrsta lagi, að ákvæðin um óðalsrétt og erfðaábúð voru aðgreind, svo að þeim yrði ekki ruglað saman, sem brunnið hafði við. Í öðru lagi er fyrirhuguð breyt. á greiðslu fyrsta viðtakanda jarðarinnar. Í stað þess að hann greiði 3% árlega í 25 ár af fasteignamatsverði jarðarinnar til samarfa sinna, þ. e. af þeirra hlut í fasteigninni, ef hún hefði komið til skipta, er samkvæmt frv. gert ráð fyrir, að hann svari út vissri upphæð, og er það gert til hægðarauka fyrir erfingjana. Þá er í frv. lagt til, að ekki þurfi að greiða erfðafjárskatt af ættaróðali né fylgifé þess, þar sem um er að ræða ættareignir, en ekki einkaeignir, og umráðarétturinn því minni yfir eigninni. Af sömu ástæðu er lagt til, að opinberir styrkir til ættaróðala skuli ekki færast sem fylgifé jarðanna, heldur vera eign óðalsins. Enn fremur er það gert að skilyrði fyrir skiptingu óðalanna í eitt eða fleiri býli, að umbætur hafi farið fram á þeim, svo að búið sé jafnan í haginn fyrir framtíðina.

Þá er kafli um ættarjarðir, sem er algert nýmæli. Hann er einkum saminn með tvennt fyrir augum. Það er í fyrsta lagi reynt að mæta óskum ættmenna um forkaupsrétt að jörðum, sem lengi hafa verið í sömu ættinni. Þetta er ein óskin, sem lá fyrir búnaðarþinginu. Sala á þessum jörðum til vandalausra hefur oft valdið ágreiningi. Nú er lagt til, að sá, sem eignarhald hefur á slíkri jörð, skuli bjóða hana ættmennum sínum fyrir fasteignamatsverð. Í öðru lagi eru arfaskipti heimiluð með sérstökum gerningi, ef mönnum þykja ákvæði óðalsréttarlaganna of bindandi, þannig að þeim er heimilað að gera jarðir sínar að ættarjörðum.

Viðvíkjandi þeim kafla frv., sem fjallar um erfðaábúð, hefur n. rýmkað um lántökuheimild fyrir leiguliða, sem þurfa að byggja á jörðum sínum. Enn fremur er sú breyt., að nokkur hluti leiguliðabótar er skoðaður sem tryggingarfé, eða sá hluti hennar, sem greiddur er af slíkum lánum, og fái leiguliði þetta fé útborgað, þegar lánið er að fullu greitt.

Að síðustu eru svo sett nokkru ýtarlegri ákvæði um skilyrði fyrir sölu þjóð- og kirkjujarða.

Landbn. hefur nú athugað þetta frv. rækilega og er því fylgjandi með lítils háttar breyt. Fyrsta breyt. er aðeins leiðrétting á hortitti í orðalagi.

Þá er breyt. á 29. gr. um að fella niður þá skuldbindingu um það, að gera þurfi ættarjörð, sem komið hefur til sölu, að ættaróðali kaupanda. N. þótti ekki ástæða til að hafa þetta svo bindandi, heldur sé það á valdi hins nýja eiganda, eins og er um aðrar jarðir í sjálfsábúð. Því er lagt til, að þessi málsliður falli burtu.

Þá er breyt. á 30. gr., sem er aðeins til skýrara orðalags til þess að koma í veg fyrir misskilning. Sama er að segja um 4. brtt., það er aðeins orðalagsbreyt.

Þá er 5. og síðasta brtt. um það, að jarðir, sem verið hafa í eigu hins opinbera og verið gerðar að ættaróðulum, skuli heimilar ríkissjóði með forkaupsrétti fyrir fasteignamatsverð, ef ættin vill ekki notfæra sér þær og þær komast undir hamarinn.

Landbn. er samþ. þessum breyt., en einn nm. hefur þó undirskrifað nál. með fyrirvara.