01.11.1943
Neðri deild: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 810 í B-deild Alþingistíðinda. (1572)

84. mál, ættaróðal og erfðaábúð

Frsm. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Hv. þm. Hafnf. gerði svo rækilega grein fyrir þessu máli, að það er aðeins eitt, sem ég vildi nú segja, út af því, sem hv. 1. landsk. þm. (SG) sagði.

Mér virtist koma fram hjá honum dálítill misskilningur um tvö atriði. Hann virtist líta svo á, að ákvæðin um ættaróðul mundu verða til þess að losna börnin við heimilin. Ég held, að þetta sé byggt á misskilningi, vegna þess að það er í frv. benlínis svo tekið fram, að erfingjar geti fengið jörðum skipt, ef þeir vinna að tilteknum umbótum á jörðinni. Það er þess vegna í þeirra valdi, ef þeir vilja starfa hjá foreldrum sínum að því að undirbúa framtíð sína, að þá hafa þessir erfingjar, tveir eða fleiri, að nokkru leyti rétt til jarðarinnar. Það er þess vegna síður en svo, að það sé til þess að losa börnin við heimilin, þó að ákvæði þessi verði samþ., heldur miklu fremur til þess að tengja þau við ábýlisjörð foreldra sinna. En reyndar vitum við, að það er alltítt á þessum tímum, að börnin fljúgi úr hreiðrinu, jafnóðum og þau verða fleyg, og það er oft yngsta barnið eða börnin, sem seinast verða eftir. En nokkrar undantekningar eru frá þessu, sem betur fer.

Þá hafði hv. 1. landsk. þm. skilið það svo, að í frv. væri létt framfærsluskyldunni af viðtakanda óðalsins. Þetta er misskilningur að því leyti, að hér er ekki um breyt. að ræða frá því, sem áður var, því að í 8. gr. er skýrt tekið fram um þetta. Sú gr. fjallar eingöngu um það, hvernig fjarskyldur aðili tekur við eða af hliðarlegg ættarinnar, og þá getur það aðeins komið til greina, að álitamál getur orðið um framfærsluskylduna.

Að því er snertir ummæli og aths., sem fram komu frá hv. þm. A.-Sk. (PÞ), þá tel ég það sjálfsagt, að landbn. taki það, sem hann lagði til, til vinsamlegrar athugunar, og tel æskilegt, að sá hv. þm. gæti orðið í samráði við n. um það að orða þá breyt., sem hann talaði um og má vera, að af öðrum ástæðum sé þörf á að gera vegna þeirrar úrfellingar, sem n. leggur til á frv., — því að með því að gera þá úrfellingu á frv., er það ekki nægilega tryggt, að sá, sem kaupir, verði skyldur til þess að búa á jörðinni og þess háttar.