16.11.1943
Efri deild: 49. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1592)
160. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Áður en ég sný mér beint að sjálfu frv., vil ég rekja hér dálítið forsögu þessa máls í örfáum dráttum.
Á síðasta Alþ. var samþ. þáltill. um það að skipa 4 manna n. til þess að rannsaka skilyrði fyrir byggingu og rekstri fullkominnar skipasmíðastöðvar í Reykjavík. Þessi n. hefur nú lok. ið störfum og skilað áliti, sem birt er sem fylgiskjal með þessu frv., og að ósk þessarar n. hefur svo sjútvn. þessarar hv. d. flutt þetta frv., og er það samið af mþn. þessari.
Áður en stríðið skall á, var hörð samkeppni um viðgerðir á íslenzkum skipum milli íslenzkra iðnaðarmanna annars vegar og erlendra skipasmíðastöðva hins vegar. Íslendingar urðu í raun og veru undir í þeirri baráttu, og stafaði það að langmestu leyti af því, að þeir höfðu ekki sömu grundvallarskilyrði til þess að geta innt af hendi skipaviðgerðir eins og erlendar þjóðir, m. a. ekki nægilegar þurrkvíar, ekki heldur fullkomnar skipasmíðar- og skipaviðgerðastöðvar og að sjálfsögðu ekki nægilega vel æft starfslið til þess að geta innt af hendi þessar viðgerðir á jafnskömmum tíma og hægt var að fá í erlendum höfnum. Mér var kunnugt um það þá, að afköst hvers manns á Íslandi sem iðnaðarmanns í þeirri grein voru engu síðri afköstum þegna annarra þjóða. Og það var aðeins aðstöðumunurinn. sem olli því, að hér var þá ekki hægt að halda inni í landinu þessu mikla starfi og að margar hendur voru þá hér iðjulausar fyrir það eitt, að mönnum í þessari iðngrein var ekki sköpuð sama aðstaða hér á landi og aðrar þjóðir gátu skapað þegnum sínum í þessu efni. Að sjálfsögðu má ekki við svo búið standa og sízt nú, þegar runnið hefur í stríðum straumum fé hingað til landsins á undanförnum árum.
Frumskilyrði þess, að hægt sé að koma hér upp skipasmíðastöð, eru þau að unnt sé að hafa hér jafnódýrar, jafngóðar og jafnfljótar skipaviðgerðir og í öðrum skipasmíðastöðvum. Þetta eru í raun og veru grundvallarskilyrðin fyrir því, að hægt sé að hugsa sér, að upp geti komið hér raunveruleg skipasmíðastöð. Okkur, sem sæti áttum í þessari n., var þetta fullkomlega ljóst. Og hins vegar lögðum við mjög mikla áherzlu á það að hægt væri að sameina á einum stað bæði skipaviðgerðir og skipalægi, þegar um það er að ræða, að skipum er lagt upp frá störfum, og jafnframt skipasmíðastöð á sama stað, svo að hægt væri að nota sama fólkið við skipasmíðar, þegar ekki væri nægilegt að starfa við skipaviðgerðir. Á þann hátt er hægt að tryggja stöðinni alltaf eitthvað af þaulæfðum mönnum, sem væru fastir menn við þetta starf allt árið um kring. Ég vil segja frá því til skýringar, að mér var persónulega kunnugt um, að eitt fyrirtæki í Glasgow hafði alltaf stöðugt hjá sér um 300 manna flokk og lét hann vinna á líkan hátt og hér er hugsað, að skipaviðgerðum, nema þegar þær voru ekki nægar fyrir hendi, þá skipasmíðum á sinn reikning, þannig að þessir menn höfðu stöðuga vinnu við þetta fyrirtæki árið um kring. Þetta hefur gengið svo vel hjá þessu fyrirtæki, að það hefur haft þessa reglu nú um aldarfjórðungs skeið. Þetta er ekki stórt fyrirtæki. Það samsvarar nokkurn veginn því, sem mundi hæfa okkur á Íslandi á þessum tíma, og er að mörgu leyti til fyrirmyndar, þegar byggja á upp þann iðnað, sem hér um ræðir.
Þegar velja átti þessari fyrirhuguðu skipasmíðastöð stað, þá var mþn. að sjálfsögðu bundin við þau takmörk, sem henni voru sett í þáltill., en þar var ákveðið, að skipasmíðastöðin skyldi vera í Reykjavík. N. taldi sig þess vegna ekki hafa vald til þess að fara út fyrir þann stað, og þar að auki leit hún svo á, að Reykjavík væri langsamlega heppilegasti staðurinn. Þar er fjölmennast og útvegur mestur, og þar er eðlilegast og heppilegast að geta fengið starfsfólk. Þar er einnig nægilegt afl til iðnaðarins, og þar eru í raun og veru betri hafnarskilyrði en víðast hvar annars staðar á landinu.
Það kom næst til athugunar, hvort unnt væri að reisa slíka skipasmíðastöð innan hafnarmannvirkjanna, eins og þau eru nú í Reykjavíkurhöfn, eða hvort leita yrði út fyrir hafnarmannvirkin. Við ræddum þetta mál sumpart við hafnarstjórann og líka við bæjarverkfræðing, sem er væntanlegur hafnarstjóri frá næstu áramótum. Við drógum upp útlínur á stærð þess svæðis, sem nauðsynlegt er til þessarar skipasmíðastöðvar, til þess að henni yrði ekki sniðinn of þröngur stakkur. Og þessir menn voru okkur nm. í mþn. sammála um það, að ef fara ætti með þetta fyrirtæki inn í Reykjavíkurhöfn, þá mundi ekki verða hægt að uppfylla þau skilyrði, sem n. var einróma um, að nauðsynlegt og óhjákvæmilegt væri að uppfylla, til þess að þetta fyrirtæki gæti starfað, nema að því leyti, að sá vísir til skipaviðgerða, sem risið hefur upp innan hafnarinnar, gæti e. t. v. aukizt þannig, að það fyrirtæki gæti tekið að sér skipasmíðar, en þó væri sá galli á, að það væri útilokað, að þar gætu komizt að aðrir aðilar en þeir, sem fyrir eru. Og n. var sammála um, að það væri alls ekki heppilegt að byggja á þessu. — Landssmiðjan er annað fyrirtæki hér í þessari grein, sem má vera, að þróist svo, að hún taki jafnstóran þátt í skipaviðgerðum og einkafyrirtæki. En með því að ætla skipasmíðum rúm innan hafnar Reykjavíkur, er útilokað, að hún eða önnur fyrirtæki geti komizt þar að, nema með svo gífurlegum kostnaði við uppkaup á eignum og niðurrif á íbúðarhúsum, að ekki þótti tiltækilegt að fara inn á þá leið, auk þess sem erfitt mundi vera að koma fyrir þurrkví á þessu svæði innan hafnarinnar, nema því aðeins að taka svo mikinn hluta hafnarinnar til þessara starfa, að höfnin að öðru leyti sem uppskipunar- og útflutningshöfn mundi líða stórkostlega við það. Það var því einróma samkomulag í n. um það, að leita yrði út fyrir höfnina til þess að fá stað fyrir væntanlega skipasmíðastöð. Komu þá til álita tveir staðir fyrir þessa stöð, Elliðaárvogur og Fossvogur. Að sumu leyti var kannske Fossvogur betur fallinn til þessara starfa, en hann hefur þann stóra galla, að sigling frá Reykjavík þangað er löng og ákaflega erfið, og í suðvestan rosa er stundum ekki einu sinni fært að sigla þar inn kannske dögum saman. N. var því sammála um að leggja til, að þessi fyrirhugaða skipasmíðastöð skyldi reist við Elliðaárvog, á svæðinu frá Kleppi og inn undir Gelgjutanga. Þar eru ákaflega góð hafnarskilyrði og skilyrði til þess að koma upp bæði dráttarbrautum og þurrkvíum, og þar er nægilega mikið óbyggt svæði, sem allt er eign Reykjavíkurbæjar, til þess að geta skipulagt skipasmíðastöð, jafnvel fyrir 50–100 ár, án þess að þurfa að óttast nokkuð um það, að sá stakkur, sem þessu fyrirtæki væri þarna sniðinn í dag, yrði of þröngur.
Þá ræddi mþn. um það, hverjir skyldu reka slíka skipasmíðastöð og hverjir skyldu reisa hana. Það var almennt álit í n., að aðstöðu til þess að reka sjálfa skipasmíðastöðina yrði að skapa af opinberum aðilum,. þ. e. að byggja hafnargerð, þurrkvíar og dráttarbrautir, — það væri eðlilegast, að þetta væri reist af bæ eða ríki eða hvoru tveggja, en síðan væri landsmönnum tryggður jafn réttur til að hafa aðgang að þessum tækjum, þegar um viðgerðir eða um skipasmíðar væri að ræða. Við höfum haft reynslu fyrir því á undanförnum árum, að þegar dráttarbrautir hafa verið einstakra manna eign, eins og nú er, þá hafa þeir sömu menn, sem þær eiga, stundum gert það að skilyrði fyrir afnotum af dráttarbrautinni, að þeir eða fyrirtæki þeirra fengju að sitja fyrir viðgerðum, og viðkomandi skipaeigendur hafa þá orðið að lúta þeim skilyrðum, sem þessir eigendur dráttarbrautanna hafa sett fyrir viðgerðum á skipunum. Þetta hefur jafnvel gengið svo langt, að dæmi eru til þess, að það hafi verið neitað að taka upp skip, sem hafa verið nýlega máluð á botni af sjálfum eigendunum annars staðar, af því að það hefur þótt alveg sjálfsagður hlutur, að það fylgdi uppsátrinu, að fyrirtækið, sem tæki skipið upp, fengi leyfi til að mála skipið og leggja til málninguna sjálft. Þetta telur n. óheppilegt, að menn þurfi að búa við. En nú mun orðinn nokkuð langur tími, síðan slíku var beitt, sem ég nefndi. En þetta er tekið fram sem dæmi um það, hve óheppilegt það getur verið, að svo sé málum skipað, að slíkt geti komið fyrir.
Þá var n. sammála um, að nauðsynlegt væri í sambandi við þetta að koma upp dráttarbrautum fyrir smærri báta, svo að þeir útgerðarmenn, sem eiga þessa báta og vilja vinna sem mest að viðgerðum, viðhaldi, hreinsun og málningu slíkra skipa, gætu gert það sjálfir, ef þeir vildu, og þyrftu ekki að beygja sig undir þær kvaðir, sem venjulega fylgja einkadráttarbrautum, að slíkar viðgerðir og viðhald verði að framkvæma af eigendum þeirra dráttarbrauta. Þeir gætu gert þetta sjálfir, og kæmi það sér betur en ef það ætti að framkvæmast af öðrum. Við teljum þá leið heppilegasta, að bærinn eigi þessi aðalmannvirki og sé sett reglugerð fyrir þau eins og hver önnur hafnarmannvirki. Notendur hafa þá allir jafna aðstöðu til að neyta sín, sömu réttindi til að fá lóðir t. d. og greiða sömu gjöld. Það var einróma álit n., að smiðjurnar ættu ekki að vera reknar af ríki né bæ, nema bærinn óskaði að eiga smiðju, sbr. t. d. Landssmiðjuna. Á þennan hátt taldi n., að skapast mundi eðlileg og nauðsynleg samkeppni.
Aðstaðan er fyrirtækjunum að sjálfsögðu aðalskilyrðið, en mikið fé þurfa þau að leggja fram. Aðstaðan, sem þeim er sköpuð, gerir þeim kleift að leysa verk sín betur af hendi og ódýrar en ella, og ný fyrirtæki eiga að geta komið sér á laggir, þar sem svo yrði búið í haginn.
N. áleit réttast, að Reykjavíkurhöfn byggði þetta mannvirki. Að vísu var deilt um, hvort ekki væri rétt að setja upp landshöfn, en það fékk ekki byr. Rvík á þessar lóðir, og þótt þær séu ekki innan takmarka hafnarinnar, er vitað, að þangað hlýtur að flytjast mikið af þungaflutningi, sem annars færi um aðalhöfn bæjarins, svo sem kol, olía, járn, timbur og fleiri nauðsynjar, og er óeðlilegt að slíta höfn þessa úr tengslum við aðalhöfnina. Þá þótti ekki rétt að setja nýja löggjöf, heldur auka við hafnarlög Reykjavíkur eins og lagt er til í frv.
Nú er Rvík líklega eini bærinn á landinu, sem hefur, eftir að frumstyrk til hafnargerðar lauk, látið höfnina byggja sig sjálfa án þess að njóta ríkisstyrks. Aðrir bæir fá úr ríkissjóði 1/3 eða allt að 2/5 kostnaðar, eftir því sem ástæður leyfa. Það þykir því ekki nema eðlilegt, að nú njóti hún sama réttar og aðrar hafnir um styrk, enda er fyrirtækið öllum landsmönnum hagsbót. Frv. fer fram á, að lagt sé úr ríkissjóði 2/5 kostnaðar eða 2 millj. kr. og ábyrgð ríkisins veitt, ef þarf, á allt að 3 millj. láni, þ. e. þeim 3/5 hlutum kostnaðar, sem hafnarsjóður á að leggja fram. Tvö nýmæli eru í frv. Ætlazt er til, að þurrkvíar og dráttarbrautir séu styrktar eins og almenn hafnarmannvirki. Vitamálastjóri hefur tjáð n., að hann væri þessu sammála. En mér er ljóst, að þetta getur orðið til þess, að aðrar hafnir geri sömu kröfur, og teldi ég það ekki óréttmætar kröfur. Hitt nýmælið er að ætla ríkinu þátttöku 2/5 hluta kostnaðar fyrir 1/3 kostnaðar, eins og tíðast hefur verið með stærri hafnirnar, svo sem Hafnarfjörð. Vitamálastjóri hefur bent á þetta atriði og ekki viljað að svo stöddu fallast á það. En ég hygg, að þm. muni að athuguðu máli skilja, að hækkunin upp í 2/5 er réttmæt og sanngjörn. Svo mjög getur þetta bætt aðstöðu allra landsmanna, að ekki þætti mér mikið, þótt styrkurinn næmi hálfum kostnaði, eins og veitt er til lendingarbóta. Hitt varð ofan á í n., og vænti ég, að flestir þm. geti orðið sammála um að lækka það ekki.
Málið hefur verið borið undir hafnarstjórana og aðra aðila, en hefur ekki enn verið formlega sent hafnarstjórn til umsagnar. Það mun verða gert að lokinni þessari umr., og óska ég, að málinu verði þá aftur vísað til sjútvn., til þess að hún gangi fyllilega frá samstarfinu við hafnarstjórn og athugi fleiri hluti.
Það er höfuðatriði, að fyrirtækið sé svo stórt hugsað frá upphafi og skipulagt út í æsar, að óhætt sé um langa framtíð, næstu 50–100 árin, að ekki verði of þröngt þarna um atvinnureksturinn né neitt rifið niður aftur af því að það væri smátt og vanhugsað og tæki ekki umbótum og viðbótum, eins og fyrir hefur komið. Allir vita, að 5 milljónir hrökkva skammt til að koma upp mannvirkjunum, eins og þau eru hugsuð í heild. Frv. er, eins og raunar öll hafnarlög, einungis heimild til að gera þetta, eftir því sem fé verður veitt úr ríkissjóði og gegn því, að ráðherra samþykki framkvæmdirnar og fyrir liggi full kostnaðaráætlun. Enn er ekki hægt að leggja fram slíka áætlun um verk, sem tekur ekki aðeins 1–2 ár, heldur líklega 25 ár eða meira. Fyrst er að setja l., þar næst að hefja undirbúning að verkinu og framkvæmdir einstakra hluta þess. Það, sem n. leggur mesta áherzlu á, eru þurrkvíarnar. Ástandið er það, að hér er ekki unnt að taka upp stærri skip en 1000 smál. og Eimskipafélagsskipin að einu undanskildu verða að fá aðgerðir sínar erlendis að ógleymdu því, sem þm. er kunnugt, hver vandræði öllum fiskiflotanum standa af töfum á viðgerðum og því, er þau verða að sækja þær í önnur lönd, þjóðinni til tjóns og hneisu. Langmesti kostnaðarliður við bygging þurrkvíar er laun fyrir vinnu, sem fæst í landinu sjálfu.
Ég sé ekki ástæðu til að fara lengra út í málið. Í 2. mgr. 5. gr. frv. er prentvilla, fyrir „almenningi“, á að standa „landsmönnum“. Ég vil mega vænta þess, að þm. greiði svo fyrir málinu, að það gangi fram á þessu þingi, því að það er hagur öllum landsmönnum.