11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 820 í B-deild Alþingistíðinda. (1604)
160. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Herra forseti. Eins og nál. ber með sér, er enginn ágreiningur um þetta mál frá sjútvn., og gefur það mér ástæðu til þess að hafa ekki mörg orð um málið og verða ekki til þess að tefja fyrir meðferð annarra mála. En mér þykir þó rétt að taka fram, ef menn hafa ekki kynnt sér grg. fyrir frv., að síðasta þing samþ., að skipuð skyldi n. til þess að athuga þetta mál. Það var samþ., að stj. skipaði n. til þess að gera till. um byggingu og rekstur fullkominnar skipasmíðastöðvar í Reykjavík. Það hefur verið rætt um, að aðstaða okkar til skipasmíða sé orðin lítil og það þurfi að bæta úr því, og tilætlunin er, að ríkið veiti aðstoð sína eftir því, sem n. teldi, að þurfa þætti. N. hefur skilað störfum og fengið sjútvn. Ed. til þess að flytja þetta frv. sem ávöxt af verki sínu. N. leggur til, að Reykjavíkurhöfn verði stækkuð og skipasmíðastöð verði byggð við Elliðaárvog. Breyt. við 2. gr. er sú eiginlega breyt. á hafnarl. Reykjavíkur, að við bætist hafnarsvæði til viðgerða og smíða á skipum, og hlutfallið milli þess, sem ríkið leggur fram, og Reykjavíkurhöfn er allt annað en var, þegar Reykjavíkurhöfn var byggð. Þá var ekki lagt til nema ¼, en nú er lagt til, að það verði 2/5, og þetta er af því, að þetta er ekki höfn í sama skilningi og var, heldur er þetta meira til þess að skapa þar iðnaðarstöð, sem svo er fram tekið í grg., að allir landsmenn noti og hafi sömu aðstöðu til að láta vinna þar, sem sé nýbyggingar og viðgerðir skipa. Ég held ég þurfi ekki að hafa þessi orð fleiri, en n. óskar, að frv. verði samþ. óbreytt.