11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
160. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað
Emil Jónsson:
Það var bara út af því, sem hv. 11. landsk. sagði, að það kæmi úr hörðustu átt, að ég vildi stöðva málið, þar sem til mín hefði verið leitað, en ég hefði ekki veitt aðstoð mína. Í fyrsta lagi hef ég ekki lagt til að stöðva málið, ég hef ekki, einu sinni sagt, hvernig ég muni greiða atkv., — ég bara sagði, hvað vantaði og hvaða tegund af undirbúningi málið hefði fengið. En það er uppspuni, að ég hafi viljað stöðva málið. Það er rétt, að það var leitað til mín í sumar, þegar verkfræðingar vitamálaskrifstofunnar voru ekki heima, og ég gat ekki sinnt því að undirbúa þetta mál, enda er undirbúningur þess svo mikill, að hann verður ekki framkvæmdur á einum degi eða tveimur og ekki á einni viku eða tveimur og jafnvel ekki á mánuðum. Hv. þm. veit það eins vel og ég, að þetta er ekki hægt nema á löngum tíma. Ég get líka sagt það, að sjútvn. Ed. sendi mér þetta mál til umsagnar, og mátti ég hafa einn dag eða tæplega það til þess að athuga það, og stóð í bréfinu, að væri ekki hægt að svara fyrir kl. 10 næsta dag, væri eins gott að svara ekki. Og ég náttúrlega svaraði ekki, því að ég tel, að svo naumur tími gefi ekki nokkurn tíma til umhugsunar, og ég álít betra að segja ekki neitt en segja eitthvað, sem byggt er á svo skammri athugun.
Hv. þm. sagði líka, að það kæmi fyrir, að veita þyrfti viðbótarfjárveitingar. Ég veit, að það er oft svo, að það þarf að hækka framlög til hafna, en þá eru þau miðuð við, að framkvæmdirnar séu auknar frá því, sem var upphaflega, en í flestum tilfellum er reynt að gera sér grein fyrir þeim kostnaði, sem stofnað er til, þegar byrjað er á verkinu. Hér er þetta ekki gert. Það er ekkert um það, hvað fæst fyrir þessar 5 millj. og hvað það muni kosta að byggja þetta mannvirki. Þetta er alveg út í bláinn og ekkert sagt um, hvort það muni kosta 5 millj. eða 50 millj. Allar tölur eru jafneðlilegar.
Frsm. n. sagði, og hv. 11. landsk. tók undir það, að það væri enginn skaði, þó að frv. n. væri samþ., því að framlög ríkissjóðs væru takmörkuð við 2 millj. En nú veit hann það, að þegar einu sinni er búið að samþ. þetta og eyða þessum 2 millj. og það sýnir sig, að þetta fé er ekki nóg, þá er það það fyrsta, sem gert verður, að bæta við þetta fé, svo að það komi að notum. Þess vegna held ég, að það sé ákaflega æskilegt, að það lægi fyrir, þótt ekki væri nema ágizkun um það, hvað heildarkostnaðurinn við þessi mannvirki mundi verða, áður en l. um þau eru samþ. Það má vel vera, að það sé nauðsynlegt að hraða svo afgreiðslu þessa frv., að ekki sé tími til þess að gera sér grein fyrir, hvort mannvirkin kosti 5 millj. eða 50, en æskilegast væri um mannvirki, sem velta á svona miklum tölum, að reynt væri að gera sér einhverja hugmynd um, hvorum megin eða nær hvorri upphæðinni þau munu verða.
Landið, sem valið er, hefur, eftir því sem ég bezt veit, ekki heldur verið kannað eða rannsakað, hvernig jarðvegurinn er á þeim stað, sem með l. er slegið föstu, að byggja skuli á, en þetta getur haft mjög mikla þýðingu.
Ég neita því ekki, að hér er um ákaflega mikið hagsmunamál að ræða fyrir þjóðina og gæti orðið mikil lyftistöng fyrir útveg okkar, ef skipasmíðastöð kæmist á laggirnar, en þrátt fyrir þessa nauðsyn álít ég sjálfsagt fyrir þá, sem með málin fara, að gera sér ljóst í fyrsta lagi, hvernig stofnað er til málanna, hvað skuli gert og hver kostnaðurinn verði.
Ég skal taka það fram, að ég mun greiða atkvæði með málinu til 3. umr. a. m. k., ef einhverjar upplýsingar kynnu að koma fram í því.