10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (1668)
152. mál, alþýðutryggingar
Brynjólfur Bjarnason:
Það er nú í rauninni dálítið skrítið, að ég og hv. 6. þm. Reykv. þurfum nokkuð að vera á öndverðum meið eða deila um þetta mál, sem hér liggur fyrir, eða á nokkurn hátt að tortryggja hvor annan, vegna þess að skoðanir okkar fara, að því er málefnið snertir, í ýmsum atriðum mjög saman. Hann er þeirrar skoðunar — eins og ég, að eigi alþýðutryggingar að vera á annað borð, þá eigi þær að vera það fullkomnar, að þær eigi nafnið skilið, nefnilega að þær komi að gagni, en eigi ekki að vera eins konar fátækralöggjöf undir nafninu alþýðutryggingar. Og hv. 6. þm. Reykv. benti á ellitrygginguna sem dæmi um þetta. Og ég veit af viðræðum, sem ég hef átt við hv. 6. þm. Reykv. um þetta mál, að skoðanir okkar falla þar í ýmsum meginatriðum saman.
Hins vegar virtist mér koma fram hjá þessum hv. þm. dálítil tortryggni á nefndina, þ. e. a. s. á suma menn í n., en ekki á málefnisleg störf hennar. því að hann fann ekkert að því, hvernig n. hefði starfað, heldur fann hann að því, hverjir mennirnir væru, sem starfað hefðu í n. Hann virtist ekki vera alls kostar ánægður með Brynjólf Stefánsson, — ekki vegna þess, að hann væri ekki fær maður, heldur af því, að hann væri ekki nógu nátengdur Sjálfstfl. Og hann er ekki vel ánægður með mig og hv. 3. landsk. þm., ekki vegna þess, að hann hefði neitt málefnislega út á okkur að setja sem nm., heldur af því, að við værum of nátengdir okkar flokkum. Nú er það svo, eins og hæstv. fors.- og félmrh. hefur mjög greinilega upplýst, að þessi n. var alls ekki skipuð með tilliti til þess, í hvaða flokkum þeir menn væru, sem í n. voru settir. Og ber þess vegna ekki að líta á neinn nm. sem fulltrúa neins flokks. Þegar Brynjólfur Stefánsson, sem samkvæmt upplýsingum hv. 6. þm. Reykv. er ágætur sjálfstæðismaður, er spurður að því, hvort hann líti á sig sem fulltrúa Sjálfstfl. í n., segir hann vitanlega nei. Og Brynjólfur Stefánsson hefur sagt, að hann hafi ekki ráðfært sig við sinn flokk. Væri ég spurður að því, hvort ég væri fulltrúi Sósfl. í n., þá mundi ég segja nei við því. Ég hef ekki heldur ráðfært mig neitt sérstaklega við minn flokk í sambandi við starfsemi mína í n. Og sama geri ég ráð fyrir, að gildi um hv. 3. landsk. þm. (HG). Og að það vill svona til, að ég og hv. 3. landsk. þm. erum nátengdir okkar flokkum, sé ég ekki, að skipti ákaflega miklu máli. Hv. 3. landsk. þm. er, eins ég hv. 6. þm. Reykv. hefur sagt, alveg „autoritet“ Alþfl. í þessu máli, og hann hefur verið skipaður í n. vegna þess, að hann er einn af þeim mönnum, sem lengst hefur starfað að tryggingamálum í landinu. Það gildir nákvæmlega það sama um Brynjólf Stefánsson, sem er í Sjálfstfl. Hann er „autoritet“ flokksins í tryggingamálum, nákvæmlega eins og hv. 3. landsk. þm. er það í Alþfl. Og að því er snertir Framsfl., þá finnst mér, að hann hafi alveg eins ástæðu til að kvarta og Sjálfstfl., og þó alveg sérstaklega eins og n. var upphaflega skipuð, því að þá hygg ég, að fulltrúi frá Framsfl. hafi enginn í n. verið. — Mér finnst því í raun og veru, að þessar aths. hv. 6. þm. Reykv. séu með öllu óþarfar og það sé mjög fjarri því, að hlutur Sjálfstfl., ef um hlut nokkurs flokks væri þar að ræða, sé eða hafi verið fyrir borð borinn. Síður en svo. Sá flokkur hefur í n. einn af þeim fulltrúum, sem mest hafa til brunns að bera í þessu máli og vafalaust mesta „autoritet“ flokksins í tryggingamálum. Hins vegar þykir mér ákaflega mikils um það vert, að Sjálfstfl. sé ekki óánægður með þessa nefndarskipun, svo að það yrði til þess að standa í vegi fyrir framgangi þeirra mála, sem n. skilar af sér. Og ég hefði kosið það, að það yrði reynt að koma í veg fyrir það. Eðlilegast hefði mér fundizt, að Sjálfstfl. hefði gert ráðstafanir til þess, að flokkurinn gæti fengið að fylgjast betur með þessum nefndarstörfum eftirleiðis — og þá kannske gegnum Brynjólf Stefánsson, — og það ætti þá að nægja. En ef flokkurinn treystir þessum manni ekki fullkomlega, af því að hann sé ekki nógu nátengdur Sjálfstfl., þá finni hann annan mann til þess að starfa í n. Hins vegar er mér óljúft, að Brynjólfur Stefánsson fari úr n. Ég skildi ekki, hvort hv. 6. þm. Reykv. átti við það. Yfirleitt teldi ég það mjög illa farið, ef nokkur af nm. hætti að starfa í n., vegna þess að allir nm. hafa mjög mikið um þessi mál fjallað, sem nú á að fara að afgreiða, og rætt um þau í n. Það mundi áreiðanlega verða til tafar, ef einhver nm. yrði látinn fara úr n. og annar maður látinn koma í staðinn. Ég sé því ekki, að það sé hægt að leysa þetta mál á annan hátt betri en þann, að skipaður sé einn maður í viðbót í n. En ég get þá búizt við, að einhver annar flokkur þættist vera afskiptur, þar sem Sjálfstfl. hefði þá tvo menn í n., ef ekki þrjá, því að mér virtist hv. 6. þm. Reykv. líta svo á, að Kristinn Björnsson læknir væri sjálfstæðismaður eins og Brynjólfur Stefánsson. En ég býst við, að ekki verði ágreiningur um þetta mál, heldur verði það leyst á þann hátt, sem menn geta vel við unað.
Ég þarf ekki að segja neitt fram yfir það, sem hv. frsm. sagði um málið sjálft. Ég hef þar ekki neinu við að bæta og ekki heldur um þær brtt., sem hér liggja fyrir á þskj. 591 frá heilbr.- og félmn., né heldur um brtt. á þskj. 592, sem er frá hv. 3. landsk. þm. og mér. En á þskj. 593 er brtt. frá hv. þm. Seyðf. um breyt. á orðalagi 35. gr., þar sem gert er ráð fyrir því, að hún verði orðuð nokkuð öðruvísi, þannig að heimild sú, sem sjúkrasamlögum er með þeirri gr. veitt til að setja á stofn og reka sjúkrahús, lækningastöðvar og lyfjabúðir, verði nokkru þrengri. Hann ætlast til þess, að inn í 35. gr. sé bætt, þannig að niðurlag gr. sé: „og fullnægt ákvæðum laga og reglugerða, er heilbrigðisstjórnin setur um rekstur slíkra stofnana.“ En eins og þetta kom frá n., þá er svo til tekið, að þar skuli „fullnægt þeim reglum, er heilbrigðisstjórnin setur um rekstur slíkra stofnana.“ M. ö. o., það er ætlazt til þess af n., að þetta séu l., sem heimili sjúkrasamlögum að reka slíkar stofnanir, og þarf engin önnur lagafyrirmæli til. Það eru til l. um rekstur lyfjabúða, ef lög skal kalla. Það er ævagömul tilskipun. Og samkvæmt þessu orðalagi þyrfti að fullnægja ákvæðum hennar. En það var ætlazt til þess af n., að með þessari gr. væri ákveðið, að sjúkrasamlög hefðu heimild til þess að reka slíkar stofnanir skilyrðislaust að öðru leyti en því, sem það takmarkaðist af þeim reglugerðum, sem heilbrigðisstjórnin setur þar um. Ég tel hér um svo mikilsvert mál að ræða, að sjúkrasamlög hafi skilyrðislausan rétt til þess að reka þessar stofnanir, að það gætu orðið stórkostlegar framfarir í heilbrigðismálum landsins, sem gæti gert sjúkratryggingar miklum mun ódýrari og fullkomnari en þær nú eru, að það megi ekki leggja neinar hömlur á sjúkrasamlögin um þetta efni. Og get ég þar af leiðandi ekki fallizt á þessa brtt. hv. þm. Seyðf.
Hv. 6. þm. Reykv. minntist á það, að hann óskaði eftir því, að breytt væri þeim ákvæðum í frv., sem fjalla um skipun tryggingaráðs, og geri ég ráð fyrir, að hann muni flytja um þetta brtt. Ég get nú að miklu leyti fallizt á sjónarmið hv. 6. þm. Reykv. um það efni og tel það eðlilegra, enda þótt ég hafi ekki gert neinn ágreining út af þessu í n. En að sjálfsögðu get ég ekki tekið neina afstöðu til þessa atriðis, fyrr en sú brtt. er fram komin.