10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 855 í B-deild Alþingistíðinda. (1672)

152. mál, alþýðutryggingar

Frsm. (Haraldur Guðmundsson) :

Ég skal ekki tefja umr. Ég tel það vissulega mikilsvert, að skipun n. sé með þeim hætti, að góðrar samvinnu megi vænta af Sjálfstfl. eins og öðrum flokkum. Ég vísa til þess, sem ég hef áður sagt um þá hlið málsins. Ég tel það liggja ljóst fyrir, að t. d. Brynjólfur Bjarnason er skipaður í n. sem stjórnarm. í S. R., en ekki af því, að hann sé einvaldur í kommúnistaflokknum, eins og einhver lét sér um munn fara. Aðrir í n. eru skipaðir þar af hliðstæðum rökum.

Samkomulag er um, að höfuðtill. n. séu til bóta frá því, sem er. Ég vil láta í ljós ánægju mína yfir því, að hv. 6. þm. Reykv. (BBen) skuli leggja á það áherzlu, að þær umbætur verði gerðar, sem virkilega komi að haldi, svo að ekki þurfi að veita sveitarstyrk með samlagsstyrknum. Þær vonir, sem ég hafði í upphafi, að fljótlega yrði mönnum svo ljós nauðsyn trygginganna, að þeim þættu þær sjálfsagðar og vildu gera þær á hverjum tíma sem fullkomnastar, hafa ekki brugðizt. Þess vegna tel ég almenningsviljann að baki þessu frv. vera svo sterkan, að ekki megi fresta afgreiðslu þess.

Um skipun á tryggingaráði ræði ég ekki, fyrr en brtt. liggja fyrir, og þarf fátt einstakra hluta að nefna til viðbótar. Ég get ekki tekið undir með hv. þm. Seyðf. (LJóh), að litlu skipti, þótt afgreiðsla frv. dragist til næsta þings. Mér virðist undirbúningur sæmilega góður á þeim köflum l., sem hér ræðir um. Um þá er minni ágreiningur en um hina og hagkvæmara og betra að ljúka þeim breyt. sem fyrst, ráðast í hinar breyt. síðar. Ef samþykkt frv. næst ekki á þessu þingi, gengur breyt. ekki í gildi fyrr en með árinu 1945, og það væri mikið tjón og gæti mikið illt af hlotizt. Ég vildi mjög til þess mælast, að fulltrúar flokkanna beittu sér fyrir því, að eigi yrði sú töf.

Ég hygg, að brtt. hv. þm. Seyðf. viðvíkjandi ákvæði 35. gr. um lyfjabúðir skipti ekki miklu máli í þetta sinn. Sérstök n. fjallar um þau mál, og mér er óljóst, hvað starfi hennar miðar. Leyfi til lyfjabúðarekstrar og annað í því máli heimtar undirbúning.