08.12.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (168)

27. mál, fjárlög 1944

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Ef það er rétt, sem fram kom í ræðu hv. þm. Mýr., að brtt. við fjárlögin teljist synd, þá er mín synd lítil, því að það er aðeins ein lítil till., sem ég flyt, og er hana að finna á þskj. 517 og fjallar um hvíldarheimili fyrir sjómenn í Reykjavík. Ég hef leyft mér að leggja til, að varið yrði í þessu skyni 200 þús. kr. Ég sé, að síðar er fram komin till. um sama mál frá hv. 4. þm. Reykv. og hv. 6. landsk. Sá einn munur er á þessum tveimur till., að á þskj. 599 er lagt til, að upphæðin verði 250 þús. kr. Ég vil taka það fram, að ég skoða það ekki sem ofrausn og mun greiða atkv. með þeirri till. og skoða mína sem varatillögu við hana.

Rök þessa máls eru alkunn. Það er öllum kunnugt, hvern hlut sjómennirnir eiga í því að afla þjóðarbúinu tekna. Verðmæti sjávarafurða nemur um 90% af tekjum ríkissjóðs. Sjómenn okkar leggja margir hverjir svo hart að sér, að þeir eru orðnir slitnir menn fyrir aldur fram, og er það algengt, að þeir séu orðnir lítt færir til erfiðisvinnu, þegar þeir eru komnir á fimmtugsaldur. Ég tel sjálfsagt, að ríkið stuðli að því að koma upp hvíldarheimili fyrir sjómenn, og þarf ekki að efa, að stór framlög koma annars staðar að. — Læt ég þetta nægja. Ég flyt ekki aðra brtt. við fjárlögin og vænti því þess, að þingmenn geti orðið sammála um að ljá henni fylgi sitt.