11.12.1943
Efri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (1681)
152. mál, alþýðutryggingar
Forseti (StgrA):
Út af þessum síðustu ummælum hv. þm., að hann hafi af tilviljun fengið að vita um þennan fund, vil ég geta þess, að það var að vísu áliðið, þegar fundi var slitið í gærkvöld, en þá var tilkynnt, að fundur yrði í dag og að hann yrði að öðru leyti boðaður með dagskrá, og ég geri ráð fyrir, að hún hafi verið borin út. Ég man ekki fyrir víst, hvort hv. 6. þm. Reykv. var í d., þegar fundi var slitið. (BBen: Nei, en ég var nærri).