28.09.1943
Sameinað þing: 15. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég get þakkað hæstv. fjmrh. fyrir þau svör, sem hann hefur gefið. Hann hefur svarað fyrirspurn minni, þótt hins vegar meiri hlutinn af ræðu hans væri að því leyti óþarfur, að hann snerti ekki beinlínis það, sem um var spurt. En aðalatriðið er, að hæstv. ráðh. segir, að ríkisstj. telji sig hafa skýlausa heimild til þess að greiða fé úr ríkissjóði til þess að halda verðbólgunni í skefjum, án þess að nokkur ný heimild komi til. Ég leyfði mér að vitna í bréf, sem Sjálfstfl. skrifaði ríkisstj. 15. sept. s. l. í tilefni af bréfi, sem flokknum hafði borizt frá ríkisstj. varðandi greiðslur úr ríkissjóði til þess að halda niðri dýrtíðinni. En í því bréfi lýsir Sjálfstfl. þeirri skoðun sinni, að það sé a. m. k. umdeilt, hvort heimild í dýrtíðarl. frá fyrra þingi, nr. 42, takmarkaðist einvörðungu við tekjustofna, sem í 2. gr. þeirra laga getur, eða hvort hún sé víðtækari. Sjálfstfl. telur þetta orka tvímælis, en lýsir yfir, að enda þótt þessi heimild sé talin ótvíræð, þá nái engri átt eða komi ekki til mála — eins og ég held, að það sé orðað — að nota heimildina meðan Alþ. situr, án þess að leitað sé af nýju samþykktar þingsins í þeim efnum. Hæstv. fjmrh. segist vera á annarri skoðun um þetta og færir fram sín rök. Ég fyrir mitt leyti álít það ekki rétt og tel, að þegar stærsti flokkur þingsins hefur neitað að gefa sitt samþykki, beri stj. að taka tillit til þess, nema kunntugt sé, að meiri hl. þingsins líti öðruvísi á. Það er ekki hægt að láta það eins og vind um eyrun þjóta, þegar 20 manna flokkur segir, að ekki komi til mála að verja fénu í þetta án þess að leita samþykkis þingsins.

En svo er annað atriði, sem ég vil leyfa mér að leiða athygli að: við sjálfstæðismenn hlutum að líta svo á, að stj. væri okkur sammála í þessu efni, því hvaða skynsamleg ástæða gat annars verið til þess fyrir stj. að leita álits allra flokka um það, hvort verja mætti ákveðnum tekjustofni til þess að borga niður dýrtíðina, ef hún hafði slíka heimild almennt? Þetta er einkennilegt, og ég veit, að hæstv. fjmrh. virðir okkur til vorkunnar, þó við litum svo á, að í þessu lægi umsögn hans um, að slík heimild væri ekki fyrir hendi, og ef hún væri til, þá bæri að endurnýja hana. Það dettur engum í hug, að ríkissjóðurinn sé eins og gömul dragkista með mörgum hólfum, og svo segi menn að vísu höfum við leyfi til að verja þessu fé, sem liggur í neðstu skúffunni til hægri, og viljum heldur verja því, þó við annars höfum heimild, sem gildir allan ríkissjóðinn, ef okkur bara þóknast. Ég finn ekki rökrétta hugsun í þessu, og ég skil ekki þá umönnun í garð þingsins að vilja ekki setja það í þann vanda að þurfa að skera úr. Ja, það er meiri vorkunnsemi en mér er sýnd. Þar að auki vil ég segja það, að stj. hefur ekkert leyfi til þess að segja um menn þá, sem skipa þingflokk Sjálfstfl., að þar sé enginn maður, sem veit hvað hann vill. Það er alveg rétt, að það gengur illa að ná samkomulagi, en það batnar ekki við það, að ekkert sé gert. Ég álít, að stj. eigi að setja okkur í þann vanda að ákveða, hvort það eigi að halda áfram að greiða úr ríkissjóði, en ég tel mig ekki þurfa að segja til þess nú fyrir sjálfan mig og því síður fyrir hönd Sjálfstfl., hvort flokkurinn muni samþ. það.

Samlíkingin um það, að það megi líta á þetta eins og blóðgjafir til sjúklings, getur vel komið til mála. En það má líka líta öðrum augum á þetta. Það getur verið um sjúkling að ræða, sem þarf að gera aðgerð á, — og enginn veit það betur en stj., að þetta þarf að gera. Við getum alveg eins sagt, að það geti verið hættulegt að vera að smákrukka í þennan sjúkling, þangað til hann er orðinn svo máttvana, að þegar hann verður lagður á skurðarborðið, gefur hann upp öndina. Það vita allir, að það, sem verið er að gera, er það að mergsjúga skattþegnana í landinu, af því að ekki hefur náðst samkomulag um þá einu mögulegu leið, en það vita allir, að ef þessu fer fram, að haldið sé áfram að reita í ríkissjóðinn þá aura, sem fást, þá má svo fara, að á örlagastundinni reynist þjóðfélagið ekki — hvorki einstaklingar né hið opinbera — fært um að gera það, sem gera þarf. Það er um tvær leiðir að ræða. Það hefur í einu blaðanna í bænum verið talað um að klifa niður og hafa opin augun, en ég segi: Góði, lokaðu ekki augunum, því það kemur að því, að augun verða að vera opin fyrir því, sem er óhjákvæmilegt. Okkur er nokkur vorkunn að líta undan í þessu efni, en við megum ekki ganga þess dulin, að við verðum að horfast í augu við það, hvað framundan er, annaðhvort nú eða síðar.

Ég hef aldrei efazt um það, að stj. vill fara þá leið, sem hún telur líklegasta til úrlausnar, ég hef aldrei efazt um það og held, að enginn geri það, en ég held ekki, að stj. geti í þessu efni fremur en öðrum gengið fram hjá skoðunum og vilja þingsins, og ég held, að það sé rétt að láta þingið taka á sig þann vanda að segja til um það, hve lengi á að halda áfram þessum greiðslum. Ég held, að fram hjá því verði ekki komizt, að stærsti flokkur þingsins og jafnvel fleiri hafa lýst því yfir, að ekki komi til mála, að heimildin frá 1942 verði framlengd nema þingið verði spurt á ný. Ráðh. benti á það, að nú sé verið að reyna að semja um kjarna málsins, hvort eigi að klifa niður, og segist vita, að enginn þm. mundi vilja sleppa dýrtíðinni lausri á meðan. Ég er ekkert fjarri því, að það mundi reynast svo, þó margt gæti komið til mála, þegar farið væri að ræða um það. Ef það er óyggjandi, því þá ekki að spyrja þetta þing? Hvaða vit er fyrir stj. að taka á sig allt illt fyrir að greiða úr ríkissjóði, þegar hún veit, að það er ekki svo mikið sem einn einasti þm., sem vill sleppa dýrtíðinni lausri, meðan verið er að rannsaka, hvort endanlegt samkomulag næst?

Ég skal svo ekki gera einstök önnur ummæli úr ræðu hæstv. ráðh. að umræðuefni, að einu undanteknu. Ég vil, að það liggi skýrt fyrir hér í þinginu, að Alþingi gefur ekkert í skyn um það, að það hafi þá skoðun, að kjötið íslenzka seljist út úr landinu fyrir eitthvert smánarverð. Það er ástæðulaust fyrir stj. að endurtaka það, að Íslendingar eigi að borga margar milljónir í uppbætur á útflutt kjöt. Meðan þingið fær ekki að vita, að Bandaríkin og Bretland ætli að borga okkur lítið verð fyrir kjötið, tel ég það óheppilegt, að umr. fari fram um það hér á þingi, að útlendingar ætli að borga lítið fyrir það, þannig að það verði selt út úr landinu fyrir miklu minna verð en Íslendingar verða að kaupa það. Ég leyfi mér að segja það, að Alþingi á að setja fram þá skoðun sem hið eina íslenzka sjónarmið í bili — hvort sem annað reynist réttara síðar, — að með tilvísun til þeirra samninga, sem Bandaríkin og Ísland gerðu um viðskipti sín á milli, er það ósk Íslendinga eða krafa, að Bandaríkin greiði okkur fyrir kjötið það verð, sem hlutlaus n., skipuð af stj. undir forustu æðsta embættismanns landsins, telur, að framleiðendur þurfi að bera úr býtum fyrir vinnu sína, annaðhvort sem þurftarlaun eða til þess að þurfa ekki að vera ölmusumenn á öðrum atvinnuvegum landsins. Ég mundi treysta mér að bera höfuðið hátt við þá samninga, og ég mundi treysta mér að reisa höfuðið enn hærra, þegar ég færi fram á að bera það úr býtum fyrir bændur landsins, sem nægði til þess, að þeir fengju laun til jafns við aðrar lágt launaðar stéttir þjóðfélagsins. Innan skamms mun ekki duga sú mótbára, að aðrar stéttir þjóðfélagsins geti hlaupið undir bagga til þess að borga það, sem þarf til þess að þessi stétt beri ekki minna úr býtum en aðrir. Ég veit, að Bandaríkin borga þetta, því þau vita, að þeir atvinnuvegir landsmanna, sem bezt hafa borgað sig og hafa haft sæmilega afkomu, dragast nú óðum niður. Ég vil þess vegna, að Íslendingar beri fram þessa ósk og kröfu án þess að gera ráð fyrir því, að Bandaríkin borgi ekki nema nokkurn hluta. Það er nógur tími að tala um það, þegar að því kemur.

Ég mun svo ekki fara fleiri orðum um þetta, en vil segja það að lokum, að eftir að hafa heyrt svör við því, sem spurt er um, tel ég málið liggja fyrir Alþingi í þessu formi til athugunar bæði í mínum flokki og öðrum flokkum, og þingið verður að segja, hvað það vill gera. En ef umr. halda áfram og fleiri taka þátt í þeim en hæstv. ráðh. og ég, langar mig til að vita — og vildi beina þeirri fyrirspurn til flokkanna, hvort þeir telja, að stj. hafi heimild til þess að borga niður dýrtíðina ótakmarkað — t. d. nota til þess allan ríkissjóðinn — og enn fremur, ef heimildin er fyrir hendi, telja þá forsvarsmenn annarra flokka, að það komi til mála, að slík heimild sé notuð án þess að Alþingi sé að nýju spurt?