09.09.1943
Efri deild: 14. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (1739)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Herra forseti. Þetta er ekki nýtt mál, það var hér til umræðu á síðasta þingi og var þá vikið frá þessari d. með rökst. dagskrá. Hefur það síðan verið athugað af rn., og hefur m. a. verið leitað umsagnar Búnaðarfélags Íslands, og í samræmi við till. stj. Búnaðarfélags Íslands hefur svo verið samið frv. það, er nú liggur hér fyrir. Ég tel víst, að Alþ. telji rétt og sjálfsagt, að framlög til kynnisferða sveitafólks verði lögfest, og vænti ég, að þetta frv. geti orðið til þess, að málið fái fljóta afgreiðslu frá þinginu.

Ég leyfi mér að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til landbn.