18.10.1943
Efri deild: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í C-deild Alþingistíðinda. (1754)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hef á þskj. 165 borið fram róttækar brtt. við þetta frv. Mér þykir leitt, að tveir hv. þm. eru hér ekki viðstaddir, sem ég vildi mjög gjarnan, að heyrðu mál mitt, en þeir voru flm. að frv. um þetta efni í fyrra, hv. þm. Str. (HermJ) og hv. 3. landsk. þm. (HG). Ég hefði viljað beina til þeirra nokkrum orðum út af þessu máli. Eins og hv. þm. muna, var frv. um þetta efni borið fram hér í þessari hv. d. á alveg þveröfugum grundvelli við það, sem það er komið fram á nú. Og satt að segja á ég ákaflega erfitt með að skilja, að þeir fjórir menn, sem stóðu að frv. eins og það var þá borið fram, geti fellt sig við að samþ. frv. í því formi, sem það nú er í hér. Vil ég leyfa mér í því sambandi að benda á, að hv. 3. landsk. þm. lét sér í fyrra ekki nægja að fylgja frv. í þessa átt með 50 þús. kr. framlagi úr ríkissjóði til þessara hluta, heldur bar hann fram í n. till. um að hækka það framlag upp í 100 þús. kr. Og hv. 5. þm. Reykv. (BrB) bar þá einnig fram brtt. um að hækka stórkostlega þetta fjárframlag úr ríkissjóði. Og þegar það frv. kom aftur frá hv. Nd., eftir að það hafði farið úr þessari hv. d. þangað, þá lýstu þessir menn yfir og fleiri hér í þessari hv. d., að frv. hefði tekið þeim breyt., sem hefði ekki verið ætlazt til, og þeir mundu ekki geta sætt sig við að samþ. frv. eins og það kæmi þá aftur til Ed., enda urðu það lok þessa máls hér þá, að málið var ekki afgreitt. Og þess vegna varð ég ekki lítið undrandi, þegar ríkisstj. tók þetta frv. upp alveg í því formi, sem það var, þegar það kom frá hv. Nd., og ég gat um, vitandi, að það gat ekki fengið samþ. þessarar hv. d. á síðasta þingi í þeirri mynd. Ég vænti þess því, að þeir hv. þm., sem stóðu að þessu máli í fyrra, standi einnig utan um það nú og komi því í það horf, sem þeir ætluðust til þá.

Ég hef miðað brtt. mínar við það, að ná mætti samkomulagi milli beggja þd. um málið, þannig að nokkru leyti væri þetta gjald lagt á vöruna, en að jafnmiklu leyti á ríkissjóð, eins og ætlazt var til í upphafi. Vænti ég þess, að þessar brtt. nái bæði samþykki þessarar hv. d. og einnig hv. Nd.

Út af þessu vildi ég svo í sambandi við það, sem hv. frsm. meiri hl. landbn. sagði, að n. hefði ekki tekið afstöðu til þessara brtt. á þskj. 165, segja það, að mér hefði þótt eðlilegt, að þegar þessar brtt. komu fram, þá hefði n. rætt efni þeirra rækilega á fundi og tekið afstöðu til þeirra. Þess vegna óska ég, að þessari umr. verði nú frestað og málið verði látið ganga aftur til landbn., til þess að hægt verði að sjá, hvort ekki er unnt að sameina hv. nm. á þeim grundvelli, sem í brtt. felst. Þar að auki þætti mér leitt, ef málið kæmi til atkvgr. hér í hv. þd. að fjarverandi hv. 1. flm. frv. þessa í fyrra, hv. þm. Str., þannig að hann gæti ekki fengið tækifæri til að ræða þetta mál og greiða atkv. um það, því að það var hann, sem bar þetta frv. fram hér á þingi á síðasta vori.

Í brtt. mínum óska ég hér eftir, að í stað ½% í 1. gr. komi: ¼%, og kemur það til af tvennu, að ég álít, að álagningin á kjöt og mjólkurverð eigi ekki að vera meiri til þessara hluta. Það er rétt, sem hv. 2. þm. Árn. (EE) sagði, að samkv. frv. er þetta gjald ekki lagt á nærri alla mjólkur- og kjötframleiðslu í landinu, heldur aðeins á mjólk og mjólkurvörur, sem seldar eru frá viðurkenndum mjólkurbúum, og svo aðra mjólk, sem verðjöfnunargjald er greitt af, og hins vegar á það kjöt eitt, sem selt er á innlendum markaði. Ég legg til í brtt., að gjaldið lækki, sem tekið er af verði þessara vara, en gjaldið verði síðan tekið af allri vörunni, hvert sem hún er seld, allri slíkri vöru, sem hægt er að ná til. Ég hef lagt til, að þetta gjald verði lækkað um helming, með það fyrir augum, að ég ætlast til, að ríkissjóður leggi fram jafna upphæð á móti til þessara hluta. Þetta er það lengsta, sem ég get gengið til móts við hv. þm. í þessu máli. Ég vænti, að við hv. 3. landsk. verðum sammála um þetta, og ég sé ekki, hvað hefur komið honum til að skrifa undir þetta nál., sem hér liggur fyrir, og hvarfla frá skoðun sinni um málið, sem hann hafði á síðasta þingi.

Með 2. brtt. minni á þskj. 165 legg ég til, að breytt verði ákvæði a-liðar 3. gr. frv. þannig, að gjaldið til ferðasjóðs skuli ekki aðeins lagt á alla þá mjólk og þær mjólkurvörur, sem seldar eru frá viðurkenndum mjólkurbúum, heldur líka á þá mjólk, sem seld er í heildsölu frá bændum. Það er þegar komið á á nokkrum stöðum á landinu, að bændur safna mjólk sinni saman til þess að selja hana í heildsölu til mjólkurbúða eða brauðbúða, og af þeirri mjólk má vitanlega eins taka þetta gjald og þeirri mjólk, sem kemur frá viðurkenndum mjólkurbúum eða samlögum. Og í sama tölul. brtt. minnar legg ég til, að þetta gjald verði lagt á allt kjöt, sem selt er á innlendum eða erlendum markaði.

Þá hef ég í 3. tölul. brtt. lagt til, að innheimtunni á þessum gjöldum verði breytt frá því, sem gert er ráð fyrir í frv., þannig að gjöld til ferðasjóðs skuli innheimt á sama hátt og tekjur ríkissjóðs, sem er t. d. á sama hátt og þegar greitt er verðjöfnunargjaldið af vörunni. Og ég legg til, að þegar þetta gjald er lagt fram, þá verði einnig lögð fram úr ríkissjóði jafnhá upphæð í ferðasjóðinn.

Það, sem svo er meginbreyt., sem fram á er farið með brtt., er, að ég vil, að stofnaður sé ferðasjóður. Með því að fara þessa leið, sem til er tekin í frv., er þetta svo ákaflega laust í böndunum, að búast má við, að þegar harðnar í ári, þá annaðhvort falli niður áhuginn á að halda uppi þessum greiðslum eða hann mundi stórkostlega minnka. Ef hins vegar 20% af þessu fé er árlega tekið og lagt til hliðar í ferðasjóð, þá er hér sjóðmyndun, sem stendur á bak við þessa hugmynd, sem gæti orðið til þess, að framhald yrði fremur á framkvæmdum þess, sem hér er stefnt að.

Ég hef allt aðra skoðun um þetta mál en hv. 2. þm. Árn., nefnilega þá, að hér sé um mjög mikið menningarmál að ræða. Ég tala aldrei um þetta mál með þeirri tíkallsfyrirlitningu, sem menn hafa reynt að skapa um málið. Það er mikið menningaratriði, að hægt sé að skipuleggja hópferðir sveitafólks um landið til kynnisferða, — ekki til skemmtiferða, eins og sumir menn hafa hugsað sér þetta, heldur hreint og beint til kynnisferða, — til þess að fólk geti fengið áhuga á nýjum málum og séð nýjar eða áður óþekktar búnaðaraðferðir. Ég hef alveg nýlega dæmi um það, að menn hafa komið utan af landi og séð hér á Suðurlandi búnaðaraðferðir, sem þeir hafa orðið undrandi yfir, af því að þeir hafa ekki áður þekkt neitt slíkt, svo sem t. d., hve mikið vélar eru hér notaðar við búskap. Slíkar kynnisferðir, sem ég vil, að sveitafólkið fari, eru allt annað en það, að menn fari í ferð til að skemmta sér, með „svarta dauða“ í öðrum vasanum og eitthvað annað í hinum. En það lá ekki í orðum hv. 2. þm. Árn. annað en að hann áliti, að hér ætti að vera um einhverjar skemmti- eða „rall“-ferðir að ræða. Allt annað liggur á bak við hjá mér viðvíkjandi þessu máli. Í öðrum löndum eru slíkar kynnisferðir farnar í stórum stíl, og þar eru sjóðir stofnaðir þeim til styrktar, sem skipta milljónum og eru meðal þess, sem telja má aðalundirstöður undir þjóðfélagsskipun í þeim löndum. Þess vegna hef ég líka lagt til, að 20% af þessu fé verði lagt í sjóð og síðan minnkað framlag ríkissjóðs árlega sem svarar vaxtatekjum ferðasjóðsins, þangað til þær eru orðnar jafnmiklar eða meiri en framlagið frá bændum. Það má segja, að þetta taki nokkuð langan tíma. En við skulum bara líta til baka og sjá, hvernig það hefur verið með Söfnunarsjóð Íslands. Menn hafa tæpast gert sér í fyrstu vonir um, að hann yrði stór þáttur í fjármálalífi þjóðarinnar, en ég held, að menn líti öðrum augum á hann nú en þegar hann var stofnaður fyrir um eða meira en hálfri öld. En að ég er því fylgjandi, að þetta skuli vera greitt úr ríkissjóði, er vegna þess, að ég lít svo á, eins og kom hér fram við umr. um þetta mál á síðasta þingi, að það séu ekki bændur sjálfir, sem eigi að greiða þetta, fremur en verkalýðurinn á að greiða sitt orlofsfé. Og sé farið inn á þá braut að samþ. frv. í þeirri mynd, sem hv. landbn. leggur til, að gert verði, þá sé ég ekki annað en það sé alveg óhjákvæmilegt að breyta orlofsl. í það horf, að svo eða svo stór hluti af þeim framlögum, sem þar er um að ræða, eða jafnvel allt það fé sé tekið af sjálfu verkafólkinu. Ég segi þetta ekki til þess að halda fram, að ég óski, að þetta sé gert, heldur ber ég þetta tvennt saman.

Í sambandi við það, að ég legg til, að ríkissjóður greiði þetta fé að nokkru leyti, vil ég segja það, að hann greiðir einnig beint og óbeint fé til þess að fullnægja ákvæðum orlofsl. Það gerir hann í fyrsta lagi á þann hátt að greiða orlofsfé í þeim tilfellum, að hann er vinnuveitandi launþeganna, og í öðru lagi á þann hátt, þótt óbeinlínis sé, að því leyti, sem orlofsfé er dregið frá skattskyldum tekjum, sem á þessum tíma er ekki lítið fé alls.

Ég álít rangt að samþ. þetta frv. án þess að tala við þá aðila fyrst, sem eigi að borga þetta fé, sveitafólkið. Ég hef oft haft ástæðu til að ræða þetta mál á fundum í Barðastrandarsýslu, og ég get sagt það, að það var ekki einn einasti maður, sem vildi ekki frv. í því formi, sem það var í í fyrra. Ég get því ekki verið með því eins og það er nú. Ég vil mælast til þess, að þessari umr. verði frestað og að landbn. taki frv. aftur til athugunar. Hún gæti leyft flm. frv. frá því í fyrra að vera á fundi með sér til þess að komast að samkomulagi um, að málið fengi þá afgreiðslu, sem sómasamleg væri.