18.10.1943
Efri deild: 35. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (1774)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Haraldur Guðmundsson:

Og því virðist mér með öllu ástæðulaust að meina lagasetningu um þetta efni, þegar ágreiningurinn er úr sögunni um það, að kaupendur vörunnar eigi að greiða gjaldið, en meiri hl. n. hefur orðið sammála um, að framleiðendur greiði það.

Segja mætti að vísu, að úr því að vilji bænda er fyrir hendi, þá ættu heimildarlög að nægja. En það er nú svo, að þetta verður tryggara í framkvæmdinni ef það er lögboðið, og er ég því sammála meiri hluta n. um, að þetta verði að l.

Áætlað er, að féð nemi á 3. hundrað þúsund kr. Ég hygg, að það sé óákveðið enn þá, hvernig þetta verður í framkvæmdinni og nægur tími sé að taka til athugunar, hvort ástæða sé til frekari fjáröflunar. Fyrst þarf að móta þessa starfsemi, áður en lengra er haldið.