22.10.1943
Efri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í C-deild Alþingistíðinda. (1786)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Frsm. minni hl. (Eiríkur Einarsson) :

Ég vil hér ekki endurtaka neitt, sem ég hef sagt í sambandi við till. mínar um afgreiðslu þessa máls, en ber fram þá ósk við hv. forseta, að hún verði ekki borin undir atkvæði, og tek ég hana aftur til 3. umr.

Það liggja hér fyrir brtt. frá hv. þm. Barð. En af því að ég geri ráð fyrir, að hann fresti þeim til 3. umr., óska ég þess sama um dagskrártill. mína.

Einnig er hér svo fámennt í hv. d., að ég mundi vilja fresta atkvgr. um hana af þeirri ástæðu einni þar eð ég tel meiri hluta dm. muni fylgja henni.