22.10.1943
Efri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í C-deild Alþingistíðinda. (1789)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Haraldur Guðmundsson:

Við hv. þm. Barð. vil ég aðeins segja það, að ég uni því ekki illa, að val alþm. sé lagt sem mælikvarði á dómgreind kjósenda. En ég hygg það staðfest, sem ég sagði um dómgreind Barðstrendinga, með setu hans hér.

Hvað snertir flótta minn frá Seyðisfirði, þá sé ég enga ástæðu til að ræða það mál við hann. Væri fremur ástæða til að ræða það við annan, ef út í það færi.

Annars ætla ég, að ég hafi mátt una vel við kosningaúrslit, er ég bauð mig fram þar síðast.