08.12.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

27. mál, fjárlög 1944

Forseti (GSv):

Ég skal taka það fram, í sambandi við það, sem ég hef áður um mælt, að þessari umr. verður að ljúka í kvöld. Það er ekki tilgangurinn að hindra menn í að mæla það, sem þeir vilja, en hins vegar eru það tilmæli mín til þeirra, sem eru að tala í annað og þriðja skipti í þessari umr., að þeir stytti mál sitt eftir því, sem unnt er, og láti leiðréttingar nægja, en forðist sem mest að fitja upp á nýju.