26.10.1943
Efri deild: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (1802)
28. mál, kynnisferðir sveitafólks
Pétur Magnússon:
Þótt ég sé hálffeiminn að lengja enn umr. um ekki merkilegra mál en þetta er, vil ég gera grein fyrir atkvæði mínu. Ég get ekki fylgt frv. Ástæðan er ekki sú, að ég sé því ekki samþykkur, að sveitafólk þyrfti ekki síður en kaupstaðabúar að kynnast landi sínu og þjóð og lyfta sér upp úr hversdagsönnum. En erfiðleikar, sem þar eru á framkvæmdum, liggja þessi árin í öllu öðru fremur en peningaleysi, sérstaklega í því, hve fólksfátt er víðast í sveitum. Það verður ekki bætt með smávegis tillögum, eins og hér er farið fram á. Sumir vilja leggja kostnaðinn á framleiðsluna, aðrir, og þeirra hugmynd sýnist hafa meiri byr, vilja láta ríkissjóð taka þátt í kostnaðinum. Ef aðeins er farin hin fyrri leið, sé ég ekki, hver nauður rekur löggjafarvaldið til að gerast forsjá manna í þessu efni. Á síðari árum hafa ýmis samtök framleiðenda, svo sem kaupfélög og e. t. v. búnaðarfélög, beitt sér fyrir kynnisferðum sveita milli, og hlýtur sú þróun að halda áfram án ríkisafskipta. En eigi þetta að byggjast á styrkveitingum úr ríkissjóði, sýnist mér það geta orðið til þess, að málið dragi nokkurn dilk eftir sér. Forsvarsmenn landbúnaðarins ættu að gera þær kröfur fyrir hönd bændastéttar, að hún þyrfti ekki á þessum smástyrkjum að halda til ferða sinna, eins og hv. 2. þm. Árn. veik að. Samkv. l. bera nú atvinnurekendur kostnað af orlofi verkamanna sinna. En ef harðnar í ári, er hætt við, að ekki verði til lengdar búið við þá tilhögun, að vinnuveitendur við sjóinn geri hvort tveggja, borgi verkamönnum sínum fullt kaup í orlofi og beri kostnað af orlofi sveitafólks með skattgreiðslum. Þá hlyti að verða fast eftir því leitað, að ríkissjóður tæki sama þátt í að kosta orlof verkamanna og bænda, og því segi ég, að samþ. þessa ákvæðis nú um greiðslu ríkissjóðs getur dregið þann dilk með sér, sem meir en lítið munar um, — að allt orlofsfé verði að lokum byrði ríkissjóðs, en það nemur nú hvorki meira né minna en 4% af kaupgreiðslum til verkamanna. Geta menn hugsað sér, hvílíka upphæð er þar um að ræða. Mér finnst fjárhagsþröng bænda í þessu efni minni nú en áður og undarlegt, að till. skuli koma fram nú. Ég mun greiða atkv. með dagskrártill. hv. 2. þm. Árn., þótt ég sé að ýmsu leyti ekki samþykkur grg. hans.