08.12.1943
Sameinað þing: 40. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

27. mál, fjárlög 1944

Finnur Jónsson:

Það kann að vera, að það sé dálítið erfitt fyrir þann, sem ekki er vanur á stjórnmálasviðinu, að taka til máls eftir ræðu hv. þm. Barð. (GJ) með allri þeirri stjórnkænsku, sem hann lét í ljós. Ég vil þó leyfa mér að minnast á tvær till., sem hann gerði að umtalsefni. Önnur er till. hv. þm. N.-Ísf. um að taka af vegafé til bryggjugerðar á Arngerðareyri. Þetta mál var til umr. í fjvn., og var leitað um það álits vegamálastjóra, og er hann á sama máli og fjvn. um það, að á vissum stöðum á landinu yrði að gera brýr í sambandi við vegi á þeim stöðum, sem vegasambandið þarf að liggja yfir firði og ekki eru nein not fyrir bryggjurnar önnur en taka á móti flutningi og farþegum. Þessi till. hv. þm. N.-Ísf. er í samræmi við þá skoðun, en þó er það þannig, að fjvn. taldi, að ekki lægju nægilegar upplýsingar fyrir um, hvað þessi bryggja mundi kosta.

Annað atriði gerði hv. þm. Barð. sérstaklega að umtalsefni, og það var till. hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) um sérstakan styrk til Þingeyrarhrepps í tilefni af því, að Þingeyrarhreppur hefur orðið verr úti en nokkur annar hreppur á landinu bæði með mannskaða og skipatöp. Nokkrir þm. flytja brtt., og vil ég segja það, að ég felli mig betur við aðaltill. eins og hún er hjá þm. V.-Ísf. og mun greiða henni atkv. Ég held, að þingið eigi að sjá sóma sinn í því að veita þennan styrk á þann hátt, sem hv. þm. V.-Ísf. fer fram á.

Hv. þm. V.-Húnv. (SkG) gerði að umtalsefni till., sem hann hefur geymt annaðhvort í vasa sínum eða í maganum síðan í þingbyrjun og hann nú slengir út við síðustu umr. fjárl. og það mjög seint í þeirri umr. Fjvn. gekk frá þeim till., sem hún ætlaði að leggja fram, þann 19. nóv., eða fyrir 3 vikum, en þessi 10 millj. kr. till. er fyrst nefnd í fjvn. þann 7. des., eða rúmlega hálfum mánuði eftir að fjvn. hafði gengið frá aðaltill. sínum til 3. umr. Slík aðferð mun vera algerlega eins dæmi, að kasta inn svona stórri útgjaldatill. sem allra síðast við síðustu umr. fjárl., og þessi till. virðist muni verða til þess m. a., að Alþingi afgreiði fjárl. á þann hátt, að þau verði þinginu ekki til sóma. Það má vel vera, að af stj. hálfu hafi lítið verið talað við þingflokkana um afgreiðslu fjárl., en þó má engu síður segja, að milli flokkanna hafi verið enn minni umr. en milli flokkanna og stj. Það var öllum kunnugt, að í þingbyrjun fóru hér fram undirskriftir milli þm. um það, að þeir bindust samtökum um að afla bændum sama verðs fyrir útfluttar afurðir eins og yrði fyrir þær afurðir, sem seldust á innlenda markaðinum með því verði, sem hin svokallaða 6 manna n. ákvað. Ég ítreka það, að þessar undirskriftir fóru fram í þingbyrjun, en það hefur gleymzt að koma fram með till. um, að fjárveiting í þessu skyni væri sett inn í fjárl., þangað til síðast við síðustu umr. fjárl. Ég hefði talið, að þingflokkunum hefði verið nokkru nær að athuga um það í stórum dráttum, hvernig skipta skuli því fé, sem kemur í ríkissjóðinn og ríkissjóður þarf ekki til daglegra framkvæmda, hvernig skipta skuli því milli einstakra stétta og einstakra atvinnuvega þjóðfélagsins. En það er ekki þessi aðferð, sem meiri hl. fjvn., fulltrúar Sjálfstfl. og Framsfl., hefur kosið að hafa. Allt útlit er fyrir, að í þessar uppbætur verði á 3 árum varið einhvers staðar milli 30–45 millj. kr. Þetta er miklu meira fé til einstakra atvinnuvega en við höfum nokkurn tíma átt að venjast áður, að reiknað væri með, og eins og ég hef bent á áður við þessa umr., er ekki verið með þessu fé að gera neinar ráðstafanir til þess að leggja framtíðargrundvöll undir heilbrigðan atvinnurekstur, hvorki landbúnaðarins né sjávarútvegsins. Hv. þm. V.-Húnv. var að kvarta undan því, að ég teldi, að því fé, sem veitt væri til bænda, væri illa varið. Ég hef aldrei látið í ljós, að ég teldi, að bændur notuðu þetta sem eyðslueyri, en ég segi, að frá ríkisins hálfu nái þetta betur tilgangi sínum, ef féð er notað til þess að leggja einhvern heilbrigðan grundvöll undir landbúnaðinn. Það er vitað, að margir menn, sem þetta fá, freistast til þess að hætta að búa og flytjast á mölina ofan á þá, sem fyrir eru. Það er engin trygging fyrir því, að féð sé lagt í ræktun eða á annan hátt notað svo sem þjóðinni má verða fyrir beztu, og er að því leyti ástæða til að hafa áhyggjur út af þessu fé. Hér er ekki heldur um neinar smáupphæðir að ræða. Hv. þm. V.-Húnv. segir það, að ekki sé trygging fyrir því, að því fé, sem er í höndum manna í öðrum stéttum þjóðfélagsins sé betur varið. Það má vel vera. En hv. þm. V.-Húnv. ruglar hér saman fé, sem komið er í ríkissjóðinn og fé einstakra manna. Meðan ekki er búið að taka alla peninga af öllum í landinu, þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur af því, sem menn hafa, en því, sem kemur í ríkissjóðinn, ber okkur skylda til að ráðstafa á sem beztan og réttlátastan hátt. Ég tel ekki, að þessar uppbætur, eins og fjárhag ríkissjóðs er komið, séu réttlætanlegar, og ég tel, að sá dráttur, sem hefur orðið á því að leggja fram þá till. í málinu, sem menn vissu að vísu, að einhvern tíma mundi koma, valdi því, að við sendum frá okkur fjárl., sem ekki eru þannig, að neinn okkar mundi vilja bera ábyrgð á þeim. Til þess að undirstrika það, hve sjávarútvegurinn er hafður útundan af Alþingi, höfum við Alþflm. lagt fram till. um 9½ millj. til skipabygginga og skipakaupa. Ég hef áður gert grein fyrir þessari till. og lagt fram rök fyrir því, að hún sé á fullum rétti byggð og að það sé þinginu til mikils vansa að gera upp á milli sjávarútvegs og landbúnaðar, eins og hér virðist ætla að verða ofan á. Mér þykir líklegt, að það hefði mátt komast að samkomulagi um, að slegið hefði verið af af hendi beggja, en þegar meiri hl. Alþingis ætlast til, að ekkert sé hugsað um sjávarútveginn á sama tíma og verið er að leggja tugi millj. til einstakra manna, hljóta fulltrúar sjávarútvegsins að mótmæla. Það er enginn vafi á því, að það hallar undan fæti fyrir sjávarútveginum. Síðan fisksölusamningurinn var gerður, hafa útgerðarvörur hækkað um 45 af hundraði, án þess að fiskverðið hafi hækkað um einn einasta eyri. Verði ekki veruleg hækkun á fiskinum um áramót, hvernig fást þá þessir peningar? Hvernig getur sjávarútvegurinn staðið undir því að halda áfram að borga tugi millj. til landbúnaðarins? Af þessu, hve hallar undan fæti með sjávarútveginn, er auðséð, að hlýtur að leiða allmikið atvinnuleysi þegar á næsta ári. Það er auðséð, að hlutartekjur bátaútvegsmanna lækka mjög mikið. Það er auðséð, að þær tekjur, sem gert er ráð fyrir af 6 manna n., að þeir fái, fá þeir alls ekki á næsta ári. Og hvar er þá réttlætið, ef ætlunin er að tryggja einni stétt full hámarkslaun, en aðrar stéttir fái ekkert? Þó við Alþfl.menn séum á móti þessum uppbótatill., mundum við, ef felld verður skipabyggingartill. okkar, gera tilraun til að koma með brtt. til réttlætingar á till. meiri hl. fjvn., sem ég skal, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mér að lýsa, en hún hljóðar svo og er brtt. við brtt. fjvn. á þskj. 604: „Til uppbótargreiðslna til bænda, sjómanna og verkamanna, sem vegna verðlags á afurðum á erlendum mörkuðum, aflabrests eða atvinnuleysis ná ekki þeim tekjum á árinu, sem taldar eru meðaltekjur þessara stétta samkvæmt niðurstöðum landbúnaðarvísitölun., í áliti, dags. 18. ágúst 1943, kr. 10000.00. Upphæðin skiptist til þriðjunga milli þessara stétta, og fer um úthlutun uppbótanna samkvæmt reglum, er Alþingi setur.“

Eins og ég tók fram, er þetta tilraun til þess að reyna að koma nokkru réttlæti á till., sem við Alþflmenn erum á móti. Við teljum miklu betra fyrir atvinnuvegina í landinu að verja þessu fé til styrktar þeim en til einstakra stétta, en hins vegar, ef Alþingi ætlar að taka upp þá reglu, sem meiri hl. fjvn. leggur til, teljum við, að tillit eigi að taka til fleiri en bændanna í landinu.

Ég hef hálfgert verið að gera ráð fyrir, að till. okkar Alþflmanna um fé til skipakaupa nái samþykki, því að ég geri ráð fyrir, að sósíalistar greiði henni atkv., og þá þarf Sjálfstfl. ekki að leggja til nema 9 þm. til þess að koma þessari sjálfsögðu till. í gegn, en Sjálfstfl. hefur meiri hluta sinna kjósenda í kaupstöðum, og er undarlegt, ef hann hefur engar skyldur við þessa kjósendur og engan ótta af þeim, en hræðslan við bændakjósendur þeirra sé svo mikil, að þeir vilji þeirra vegna ganga á rétt annarra stétta í landinu.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en leyfi mér að afhenda hæstv. forseta brtt.