03.12.1943
Neðri deild: 58. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 23 í C-deild Alþingistíðinda. (1818)

28. mál, kynnisferðir sveitafólks

Bjarni Ásgeirsson:

Ég gat ekki algerlega fylgzt með samnm. mínum, sem bera fram brtt. um að fella niður 5. gr., sem sett var inn í frv. í Ed. Ef frv. hefði komið án þessa liðs úr Ed., hefði ég fallizt á það í þeirri mynd. En með því að meðferð Ed. á málinu hefur frá fyrstu tíð verið ótrygg, vil ég ekki vera með í því að senda það þangað aftur. Frv. er stórgallað, en þó er hægara að bæta um það síðar, þegar búið er að koma þessu á. Ég tel eftir atvikum hyggilegast að samþ. frv. óbreytt eins og það kom frá Ed.