21.04.1943
Efri deild: 8. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Eiríkur Einarsson:
Ég tók eftir, að hv. þm. S.-Þ. lét þess getið, að n. hefði ekki unnizt tími til að afgreiða málið, en til að fyrirbyggja misskilning, vil ég upplýsa, að af meiri hl. n. var gefið út nál., sem prentað var og útbýtt löngu fyrir þinglausnir.