08.11.1943
Neðri deild: 42. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (1876)
70. mál, kvikmyndasýningar
Sigfús Sigurhjartarson:
Herra forseti. Ég get ekki verið alveg sammála síðustu ummælum hv. 4. þm. Reykv. Ég ber ekki svona geysimikið traust til núverandi bæjarstjórnar og borgarstjóra, að mér finnist ekki, að það gæti komið fyrir, að rekstur kvikmyndahúsanna færi ekki sem bezt úr hendi. En það er aukaatriði. Kvikmyndareksturinn verður ekki tekinn í hendur bæjarins, nema fyrir því sé meiri hl. bæjarstjórnar. Ef skapast meiri hl. í stærri málum í bæjarstjórn, hefur sá meiri hl. aðstöðu til að hafa áhrif á reksturinn.
Það hefur komið fram, að engin löggjöf er til hér um bíórekstur, og því hefur verið haldið fram, að það sé vafasamt, hvort hver og einn geti ekki tekið að reka kvikmyndahús. En það er alkunn staðreynd, að sú venja hefur skapazt, að sveitarstjórnirnar hafa veitt leyfi til kvikmyndahúsrekstrar, og nokkra viðurkenningu hefur þessi regla fengið í því, að Rvík hefur tekið inn í lögreglusamþykkt bæjarins, að bæjarstjórnin veitti þetta leyfi. Með frv., sem ég flutti ásamt hv. 4. þm. Reykv. er lagt til, að þessi venja verði gerð að l.
Þetta var annað af tveim meginatriðum frv. Hitt var það, að sveitarfélögum verði sköpuð aðstaða til þess að taka kvikmyndareksturinn í eigin hendur, einnig þar, sem þegar er búið að reisa kvikmyndahús, með því að sveitarstj. sé veitt heimild til að taka þau eignarnámi. Nú hefur meiri hl. allshn. komið fram með till. á þskj. 286, sem hann telur vera brtt. við frv. Þar er þó um nýtt frv. að ræða, og ég vil beina því til hæstv. forseta, hvort hann telji sér fært að líta á þetta sem brtt., en að ekki sé um nýtt mál að ræða.
Undarlegast þykir mér það, að meiri hl. vill ekki fallast á að löggilda þá venju, að sveitarstj. veiti slíkt leyfi, heldur vill hann gera þá venju að engu og fela þetta vald ríkisstj. Ég hef ekki heyrt hjá hv. frsm. nein frambærileg rök fyrir þessu. Það er þó öllum ljóst, að sveitarstj. á hverjum stað eru sínum málum kunnugastar. Mér er óskiljanlegt, að nokkur maður, sem í alvöru vill hugsa þetta mál, geti komizt að þeirri niðurstöðu, að réttmætt sé að gera sveitarstj. nær áhrifalausar um þetta.
Um hitt meginatriðið, að skapa sveitarfélögum möguleika til að yfirtaka kvikmyndahúsin, sem nú eru starfandi, og reisa ný, var fyrir fram ljóst, að mikill ágreiningur mundi verða, a. m. k. við hv. 2. þm. Eyf., form. allshn. og einn af þeim, sem mynda meiri hl. að brtt. á þskj. 286.
Meginstefna flm. frv. er, að rétt sé, að sveitarfélögin reki kvikmyndahúsin, bæði sem tekjustofn og til þess að tryggja, að sýningarnar séu með þeim myndar- og menningarbrag, sem bezt má verða á hverjum tíma. Um þetta mál má óendanlega deila, og hygg ég, að þm. hafi fyrir fram ákveðna sannfæringu í málinu, svo að ég skal ekki eyða miklum tíma í að ræða um það.
Út af ræðu hv. 1. þm. Árn. vil ég segja það, að ég er sammála hv. 4. þm. Reykv. um, að hann talaði of lengi. Það er að vísu alltaf ánægjulegt að hlusta á hann og oft fróðlegt að sjá, þegar menn með aldrinum hafa hamskipti. Hv. þm. er gamall fulltrúi Alþfl. í Rvík. Nú er hann myndarbóndi í sveit, og er fróðlegt að heyra hann tala þannig, að maður heyrir rödd hv. 2. þm. Eyf. á bak við hvert orð. Ég skil það, að hv. 2. þm. Reykv. hefur af vissum ástæðum ekki kunnað við að ganga fram fyrir skjöldu í málinu, þó að hann hafi ekki álitið ástæðu til að víkja sæti í þeirri n., sem um málið fjallaði.
Hv. 1. þm. Árn. bar mikla og lofsverða umhyggju fyrir fjárhagsafkomu Rvíkur og annarra bæjar- og sveitarfél., sem í þetta kynnu að ráðast. Honum er það líka rétt og skylt sem þm. En ég vil benda honum á, að í okkar frv. felst ekkert nema heimild fyrir bæjar- og sveitarfélögin til eignarnáms, og við verðum að bera það traust til þeirra, að þau noti ekki heimildina, nema þau telji það hagkvæmt.
Hv. 4. þm. Reykv. minntist á, að Framsfl. hefði talið sig hlynntan bæjarrekstri á kvikmyndahúsum. Þetta kom hv. 1. þm. Árn. eitthvað illa, því að hann sagði, að enda þótt Framsfl. væri hlynntur því, að bæirnir rækju kvikmyndahús, þá hefði hann aldrei verið fylgjandi neinni einokun í þá átt. Slíkt liggur alls ekki fyrir í frv. Þar er um ekkert einkaleyfi að ræða. Bæjarfélögin eiga að fá vald til að veita leyfin eða reka húsin sjálf. Bæjarstjórnirnar geta útilokað alla aðra, en það er ekki hægt að tala um fullkominn einkarétt, enda hefur það komið greinilega fram í bæjarstjórn Rvíkur, að menn vilja gera mun á því, hvort um einstaklingsrekstur er að ræða eða stofnana, sem starfa að menningarmálum, og ég hygg, að flestar bæjarstjórnir mundu hallast að því að veita t. d. háskólanum eða þjóðleikhúsinu slíkt leyfi.
Að lokum vil ég aðeins ítreka fyrirspurn mína til hæstv. forseta um það, hvort hann sjái sér fært að telja till. á þskj. 286 brtt. við frv. á þskj. 88. Það sýnist fremur vera um nýtt frv. að ræða, að vísu um rekstur kvikmyndahúsa, en að öðru leyti óskylt frv., sem fyrir liggur.