10.12.1943
Efri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1877)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Forseti (StgrA):

Út af þessum umr. vil ég taka það fram, að það hefur verið ætlun mín að afgreiða bæði þessi mál í dag, og ef það hefur ekki tekizt að ljúka þeim á venjulegum fundartíma eða fyrir kl. 4, þá hef ég ætlað mér að freista að hafa fund áfram seinni partinn til þess að ljúka þessum málum, en ég vonast til þess, að fyrstu fjögur málin á dagskránni taki lítinn tíma og fái skjóta afgreiðslu.