11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1883)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Jakob Möller:
Herra forseti. Af því ég býst við, að hæstv. forseti muni leita afbrigða fyrir 4. dagskrármál, vil ég fara fram á, að hann láti umr. um það bíða og taki fyrr mál, sem síðar eru á dagskrá, þar sem búast má við talsverðum umræðum um þetta mál.
En síðar á dagskránni eru mál, sem minni umr. verða um og líkleg eru til þess að ná fram að ganga. Auk þess var minni hlutinn ekki viðstaddur síðustu umræðu.