11.12.1943
Neðri deild: 62. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)
Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.
Skúli Guðmundsson:
Ég vil aðeins upplýsa, að fyrir nær þrem vikum gaf meiri hl. n. út nál. í 4. dagskrármálinu, en minni hl. hefur enn ekki skilað nál., og tel ég það ekki vel við eigandi, að minni hlutinn geti tafið mál með því að draga að gefa út nefndarálit. Óska ég, að hæstv. forseti leiti leyfis til þess að taka málið nú þegar fyrir.