01.11.1943
Sameinað þing: 24. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 898 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)
Afstaða ríkisstjórnarinnar til lýðveldisstofnunar
Emil Jónsson:
Ég hef leyft mér að bera fram tvær brtt. á þskj. 391 við þetta frv.
Fyrri brtt. er í tveim liðum og gengur sá fyrri út á það, að til þess að leyfi fáist til kvikmyndasýninga, þurfi kennslumálaráðh. ekki aðeins að leita umsagnar bæjar- eða sveitarstjórnar, heldur þurfi hann að fá samþykki bæjar- eða sveitarstjórnar. Ég sé nú á þskj. 427, sem verið var að útbýta rétt í þessu frá hv. meiri hl. allshn., að hún flytur hér brtt., sem fer í mjög svipaða átt, svo að ég ætla, að ekki þurfi mikið um þetta að ræða, enda er þetta svo sjálfsagt, að þess ætti ekki að þurfa.
Síðari hl. fyrri brtt. gengur út á, að 2. málsgr. 3. gr. frv. verði breytt á þá lund, að kvikmyndaleyfið skuli ekki einungis bundið við ákveðið kvikmyndahús, heldur skuli það einnig bundið við ákveðinn tíma, þó ekki lengri en 10 ár í senn. Mér finnst að mörgu leyti heppilegt og enda sjálfsagt, að þessi leyfi séu ekki veitt ótímabundið, þannig að sá, sem einu sinni hefur fengið þau, haldi réttinum um aldur og ævi, heldur skuli þau verða að endurnýjast að vissu árabili loknu, og þætti mér hæfilegt, að það árabil væri ákveðið eins og gert er ráð fyrir í brtt., í mesta lagi 10 ár, og gæti þá sá, sem leyfið fengi, miðað við að leggja ekki meira í kostnað en hann gæti unnið upp á þessu árabili.
Síðari brtt. mín fer fram á það, að þeir sem hafa leyfi til starfrækslu kvikmyndahúsa nú, skuli leita endurnýjunar á leyfinu, þegar þessi l. ganga í gildi. Það kom fram hér í umr., að á því getur leikið nokkur vafi, hvort bæjarstjórnirnar hafi haft nokkurn rétt til þess að veita leyfi til kvikmyndasýninga, svo að það er rökrétt, að þeir, sem hafa fengið leyfi, leiti nú á ný leyfis hjá þeim aðila, sem gert er ráð fyrir, að veiti leyfið í framtíðinni.
Fleiri brtt. hef ég ekki borið fram við frv., þó að ég hefði óskað, að á því yrðu gerðar miklu víðtækari breyt. En eftir þeirri stefnu, sem meðferð málsins hefur tekið í þessari hv. d., hygg ég ekki horfa vænlega um, að þær brtt. yrðu samþykktar, sem ég hefði kosið að bera fram, auk þeirra, sem hér eru birtar, og verður því hér við að sitja. En mál hafa skipazt á þann undarlega hátt hér í þessari d. að í staðinn fyrir, að með frv. vakti það fyrir flm., að íhlutunarréttur bæjanna um þessa starfsemi yrði nokkuð aukinn frá því, sem var, og bæirnir gætu á þann hátt tryggt þann rekstur betur en ella, hefur sá tilgangur svo gersamlega snúizt við, að sá litli réttur, sem bæirnir hafa nú, er alveg frá þeim tekinn.
Ég get ekki látið hjá líða að lýsa undrun minni yfir þessari meðferð málsins, einkum afstöðu þeirra, sem hafa a. m. k. stundum látið í veðri vaka, að þeir vildu, að bæirnir gætu haft meiri not af þessum rekstri en hingað til, fulltrúa Framsfl., sem léðu þessu máli fylgi á svo undarlegan hátt. En afstaða Sjálfstfl. er sjálfri sér samkvæm. Ég vænti, að þessar brtt., sem ég hef flutt til leiðréttingar á versta misréttinum, verði samþ. Það verður þá við það að sitja, þó að ekki náist aðrar og meiri breyt.