23.09.1943
Sameinað þing: 14. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (1892)

Þjóðleikhúsið

dómsmrh. (Einar Arnórsson):

Herra forseti. Alþ. skoraði 22. marz þ. á. á stjórnina, að hún beitti sér fyrir því, að þjóðleikhúsið yrði rýmt. Dómsmrh. sendi utanrrh. þessa áskorun Alþ. þann 29. apríl þ. á., og sneri utanrrh. sér þegar til hins aðilans, og er nú loforð hans fengið um það, að þjóðleikhúsinu verði skilað aftur, þegar er það hefur verið rýmt af vörum þeim, er þar eru nú geymdar, og ný vörugeymsla byggð, en því mun hraðað eins og kostur er á. Er smíði nýrrar vörugeymslu þegar hafin samkvæmt upplýsingum flotaforingja Breta.

Mér þótti rétt að skýra hv. Alþ. frá því, hvernig ástatt er um þetta mál, því að vitanlegt er, að áhugi manna fyrir því, að Þjóðleikhúsinu verði skilað sem fyrst, er mikill, bæði utan þings og innan.