04.10.1943
Sameinað þing: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 900 í B-deild Alþingistíðinda. (1902)

Varamaður tekur þingsæti

Frsm. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Samkvæmt þessu bréfi, sem hér hefur verið lesið upp, þá hefur kjörbréfanefnd tekið þetta mál til meðferðar í morgun. Hún hefur fengið í hendur kjörbréf Sigurjóns Á. Ólafssonar, sem er 4. varaþm. Reykv. Nefndin hefur athugað þetta bréf og ekki fundið neina galla á því, og hefur hún því einróma samþ. að leggja til, að kjörbréfið verði samþ.