13.10.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 909 í B-deild Alþingistíðinda. (1915)

Skýrsla um olíumálið

Fjmrh. (Björn Ólafsson) :

Út af fyrirspurn hv. þm. Ísaf. (FJ) um það, hversu miklu mundi nema sú lækkun á verði, sem olíufélögin buðu, skal ég upplýsa það, að byggt á sölu á hráolíu og bensíni á síðasta ári, þá nemur sú lækkun á þessum tveimur tegundum 2½ millj. króna, eða nánar til tekið 2576000 kr.

Um það, er hv. 2. þm. S.-M. (EystJ) gat um í lok ræðu sinnar, vil ég taka það fram, að ríkisstjórnin getur ekki á þessu stigi málsins eða við þessa umr. komið inn á þær framtíðarráðstafanir, sem hún mundi telja, að væru æskilegar í þessu máli. Það hefur ekki heldur gefizt nægilegur undirbúningur til þess, að hægt sé að taka slíkar ráðstafanir til umr. á þessu stigi málsins.