13.10.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (1918)

Skýrsla um olíumálið

Pétur Ottesen:

Það vakti ekki alllitla athygli hjá sjávarútvegsmönnum, sem vélbátaútveg stunduðu, þegar fréttist í sumar, að síldarverksmiðjustjórnin á Siglufirði seldi þar olíu til síldveiðibáta fyrir 38 aura kílóið, en verðið hjá olíufélögunum á sama stað var 51 eyrir kílóið. Það vakti og athygli í þessu sambandi, að það var vitað, að stjórn síldarverksmiðjanna hafði sízt betri aðstöðu til að flytja olíuna til Siglufjarðar en olíufélögin, því að ef nokkur munur var, þá var aðstaðan sízt betri hjá stjórn verksmiðjanna. Menn sáu brátt, að hér var ekki allt með felldu. Það, sem hefur skeð síðar í þessum málum, virðist staðfesta, að það hlaut að vera eitthvað meira eða minna áfátt við þá verzlunarhætti, sein þessi félög hafa við sölu olíu hér á landi, þegar það kom upp úr dúrnum, að þessi félög auglýstu verulega lækkun nú fyrir skömmu á olíuverði, án þess að innkaupaaðstaða og flutningaaðstaða innan lands hefði nokkuð batnað. Mér virðist þetta allt saman benda á svo varhugaverða verzlunarhætti hjá þessum félögum, að það opinbera geti varla setið auðum höndum, heldur verði að gera eitthvað til þess að athuga, hvernig í þessu liggur. Hér á landi er verðlagseftirlit, og allir borgarar þjóðfélagsins, sem reka verzlun, sem eftirlitið nær til, verða að beygja sig fyrir því, en þeim er líka frjálst að sýna gögn fyrir sínu máli og eiga rétt til, að það sé metið af sanngirni, eins og líka sjálfsagt er. En mér virðist, að þetta bendi til þess, að einmitt þessi félög eða þeir borgarar, sem að þessum félögum standa, hafi aðra aðstöðu í þjóðfélaginu hvað þetta snertir en aðrir borgarar, a. m. k. hefur það ekki komið fram, að aðrir borgarar, sem verzlun reka, hafi farið að eins og nú er upplýst, að þessi félög hafa gert. Og það er og annað fleira, sem bendir á, að þeir, sem að þessum félögum standa, geri sér í hugar lund, að þeir hafi allt aðra aðstöðu gagnvart valdhöfunum í landinu en aðrir borgarar þjóðfélagsins, því að þegar aðrir borgarar verða skilyrðislaust að beygja sig undir verðlagsákvarðanir, koma þessir aðilar til stj. og bjóðast til að lækka verðið, en ekki ókeypis, því að stj. átti að tryggja, að þar með væri útilokuð samkeppni við félögin um ákveðinn tíma.

Við skulum enn fremur gera okkur ljóst, hvernig þessir aðilar líta á verzlunaraðstöðu sína og hvað þeir þykjast standa föstum fótum að því er til þess tekur að reka verzlun þessa í einu og öllu eftir eigin geðþótta. Á tveim stöðum á landinu hafa menn komið sér upp aðstöðu með því að koma upp hjá sér olíutönkum til þess að geta keypt inn olíu frá útlöndum, því að bæði nú og fyrir stríð hefur ekki verið tiltækilegt að flytja inn olíu nema með tankskipum. Til þess því að geta flutt inn olíu, þurfa þeir, sem það gera, að hafa olíugeyma til að taka olíuna í frá skipunum. Flutningur á olíu til landsins í tunnum er úr sögunni. Þessari aðstöðu til að flytja inn olíu höfðu útgerðarmenn komið sér upp bæði í Vestmannaeyjum og í Keflavík. Nú er mér sagt, að það hafi verið eitthvert fyrsta verk olíufélaganna, þegar þau komust í þá aðstöðu, að aðrir en þau höfðu ekki kringumstæður til þess að flytja olíu inn til landsins, að setja það skilyrði, að ef þau ættu að skaffa þessum útgerðarmönnum olíu á geyma, sem höfðu komið þeim upp hjá sér, þá yrðu þeir að skuldbinda sig til þess að kaupa ekki olíu af öðrum en félögunum til stríðsloka. Ef þetta er ekki rétt, getur hv. þm. Vestm. leiðrétt það. En sá hv. þm. átti þátt í að gera þessar tryggingarráðstafanir vegna Vestmannaeyja að koma upp geymum þar, og hann ber kennsl á það, hvort þetta er ekki rétt, sem ég fer með hér. Þessir aðilar, útgerðarmennirnir, voru varnarlausir eins og þá stóð, því að annaðhvort urðu olíugeymar þeirra að standa tómir eða þeir urðu að fá á þá olíu frá olíufélögunum. Eftir að fulltrúar olíufélaganna hafa svo fengið þessu áorkað, sækja þeir í sig veðrið og fara til ríkisstjórnarinnar. En þeir búast ekki við, að ríkisstjórnin sé eins auðsveip og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum og Keflavík, þannig að ríkisstjórnin geri það fyrir ekki neitt að útiloka alla samkeppni í þessu efni, þess vegna bjóða þeir upp á það, að þeir skuli lækka verðið til þess að fá tryggða einokunaraðstöðu í olíusölunni. En þegar þeir bjóða fram þessa verðlækkun, hafði engin breyt., sízt til lækkunar, orðið á verði olíunnar í innkaupi né heldur á flutningskostnaði frá því, sem áður var. Annaðhvort hlýtur því hér að vera um að ræða frá hendi olíufélaganna tilboð um fjárhagslegt framlag til handa þeim mönnum, sem nota brennsluolíu í þessu landi, eða þá hins vegar, að um hefur verið að ræða álagningu á olíuna, sem alls ekki getur verið í samræmi við álagningarreglur, sem lög mæla fyrir um. Mér virðist þetta benda til þess, að verðákvörðunarvaldið í landinu sé sorglega máttlaust gagnvart þessum félögum. Og það er það, sem ég vil vekja athygli hæstv. ríkisstjórnar á, og veit ég, að hæstv. ríkisstjórn er áhugasöm um það að geta haldið uppi eðlilegri verðálagningu í landinu. Og mér skilst, að þetta máttleysi, sem þarna er um að ræða, hafi komið niður þar, sem sízt skyldi. Því að það er vitað, að þeir, sem að félögunum standa, höfðu alveg sérstaka aðstöðu í þjóðfélaginu, — þangað til ríkisstjórnin fékk því framgengt, að stjórn síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði fengi að kaupa olíu með sama hætti og olíufélögin kaupa hana af flotastjórn Bandaríkjanna hér. Þá var einokunarklafinn brotinn. Þetta virðist vera svo mjög alvarlegt atriði, eftir því sem hér er komið fram, og virðist liggja alveg ljóst fyrir, hvað verðákvörðunarvaldið í landinu hefur verið máttlaust gagnvart olíufélögunum. Viðkomandi öðrum verðlagsákvörðunum og framkvæmdum á þeim liggja ekki fyrir upplýsingar, sem hægt er að draga ályktanir af. En það er augljóst mál, að þarna hefur verðlagseftirlitið misst marks, hvað sem því veldur. Það má enda fullyrða, að það liggur augljóst fyrir, að þessi félög hafa, í skjóli veikra framkvæmda á ákvæðum l. um verðlag, framkvæmt miklu meiri álagningu á olíuna en öðrum þegnum þjóðfélagsins er leyfilegt að gera, og er ekki við slíkt unandi fyrir þá menn, sem verða að nota olíuna við sinn atvinnurekstur. Hér er um að ræða álagningu á eina af aðalnauðsynjavörum landsmanna, og þar ætti alveg sérstaklega að tryggja, að álagningu sé stillt í hóf, því að á því getur að miklu leyti oltið afkoma þessa annars af aðalatvinnuvegum landsins.

Af því, sem ég nú hef sagt, og með alveg sérstöku tilliti til þess, hvernig þessi olíufélög hafa hagað sér gagnvart þeim útgerðarmönnum á þeim tveim stöðum, sem nefndir hafa verið, sem komið hafa sér upp olíugeymum, og einnig með tilliti til þess, að olíufélögin hafa dirfzt að reyna að binda ríkisstjórnina á höndum og fótum og komast að samningum við hana um að útiloka alla samkeppni um olíusöluna hér á landi með tilboði um lækkað verð á olíunni, sem sýnilega hefur verið allt of hátt, — með tilvísun til alls þessa vil ég beina því til hæstv. ríkisstjórnar, að ég teldi óskandi, að hún vildi greiða götu þess, eftir því sem hægt er, að þeir, sem geta því við komið, eigi kost á að fá aðgang að því að kaupa olíu beint frá flotastjórn Bandaríkjanna eða öðrum hliðstæðum aðilum, ef breyting verður gerð á sölu olíu til landsins frá því, sem nú er. Ég vil beina því til hæstv. ríkisstjórnar, að hún leitist þannig við að tryggja útgerðarmenn fyrir olíuokri. Hins vegar þarf einnig að gera fullkomlega ráð fyrir því, að í raun og veru mundi nú þurfa að gera róttækari ráðstafanir til þess, að eðlileg sala og meðferð olíu geti átt sér stað í landinu, a. m. k. má gera ráð fyrir því eins og nú standa sakir. En það verður með því einu móti gert, að styrkt sé aðstaða útgerðarmanna til meira sjálfstæðis í verzlun eða kaupum þessarar nauðsynjavöru. Vil ég skjóta þessu til hæstv. ríkisstjórnar sem verulegum lið í því að greiða fram úr því öngþveiti og því gersamlega óviðunandi ástandi, sem nú er í þessum efnum. Ég hefði talið það réttmætt eftir atvikum, að ríkisstjórnin hefði undirbúið og lagt fram á þessu þingi frv. til l., sem miðuðu að því að fá viðunandi úrlausn á þessum málum. Þessu var nú að vísu áður beint til hæstv. viðskmrh., og það var ekki nema eðlilegt, að hann væri ekki viðbúinn að gefa svör um það atriði, og allra sízt, með hvaða hætti slíkt yrði gert. En þess er fullkomlega að vænta að hæstv. ríkisstjórn sjái, hvað er að gerast. Og ég veit, að hún sér, að það er fullkomin ástæða til að gera mótráðstafanir, þegar slíku fer fram, eins og hér hefur vissulega átt sér stað í verzlun olíufélaganna að undanförnu, — þó ekki séu málin tekin nema frá viðskiptasjónarmiði eingöngu, — fyrir utan það, sem ég minnist þess ekki, á þeim tíma, sem ég hef verið við stjórnmál riðinn, að ríkisvaldinu hafi nokkurn tíma verið jafnmikið misboðið og gert var með fyrrnefndu tilboði olíufélaganna, þrátt fyrir öll verðákvörðunarákvæði gildandi laga.