13.10.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (1920)
Skýrsla um olíumálið
Lúðvík Jósefsson:
Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta. Málið hefur verið rætt allýtarlega nú, og væntanlega gefst tækifæri til þess að ræða það enn frekar síðar.
En ég vildi bera hér fram nokkrar fyrirspurnir, um leið og ég fer örfáum orðum um málið, í tilefni af því, sem hér hefur komið fram. Ég vildi alveg sérstaklega beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., sem ég hef áður gert og hef ekki fengið svar við, og hef ég sett þá fyrirspurn fram við ríkisstj. áður í sjávarútvegsnefndum. Fyrirspurnin er um það, hvort nokkuð sé í vegi fyrir því, og þá hvað það er, að útvegsmenn úti á landi, sem sótt hafa um það í langan tíma, fái að kaupa olíu beint frá birgðastöðvunum í Hvalfirði, án milligöngu olíufélaganna. Það eru til aðilar úti á landi, sem sótt hafa um það í langan tíma að fá að kaupa olíuna beint þaðan, en þeir hafa verið allt að þessu dregnir á því að fá það, þó að þeir hafi haft aðstöðu til þess að gera þetta milliliðalaust. Þeir hafa verið dregnir á því með þeim forsendum, að þetta mál, allir þættir þess, þyrftu að leysast allt í einu. En nú er komið fram, eftir upplýsingum, að ákveðnum aðila, Olíuverzlun Íslands, hafi verið falin umsjón olíubirgðanna í Hvalfirði og þá aðallega sala þaðan. Og mér hefur skilizt, eftir þessum upplýsingum, að e. t. v. væri nú búið að tefja þetta mál svo lengi, að ekki væri unnt fyrir útgerðarmenn að kaupa olíu beint frá þessum olíubirgðum, heldur þyrftu þessi kaup að fara gegnum olíufélögin. Er þá búið að draga útvegsmenn á svörum um þetta svo lengi, að þeir hafi með því verið sviptir möguleikum til þess að fá olíuna keypta beint frá olíubirgðastöðinni í Hvalfirði? Eða er hægt enn að leyfa þeim að kaupa olíuna beint þaðan án milligöngu olíufélaganna? Ég spyr um þetta til þess að fá að vita, hvort þeir, sem vilja fá olíuna keypta þaðan beint, geti brugðið við strax og gert það.
Það er greinilegt, að núverandi ríkisstjórn og þær aðrar ríkisstjórnir, sem setið hafa hér á undan, hafa algerlega bugazt fyrir einokun olíufélaganna viðvíkjandi háu olíuverði. Olían kostar nú í innkaupi 17½ eyri kg, — það hefur verið upplýst. En ég held, að söluverðið á henni sé 51 eyrir kg víðast hvar á landinu. Álagningin er því um 200%. Það hefði verið ástæða til þess að láta rannsaka, hvað getur legið til grundvallar því, að slíkur dreifingarkostnaður geti átt sér stað. Hvernig stendur á því, að það þarf 200%, álagningu á olíuna til þess að hægt sé að koma henni frá birgðastöð hér á landi út til verstöðvanna? Hvaða ástæða liggur því til grundvallar? Það hefur einnig komið fram í þessum umr., að kostnaður við að koma olíunni frá birgðastöð í Hvalfirði og til Siglufjarðar mun vera um 10 aur. á hvert kg., en þó hygg ég, að ríkisstj. hafi fengið upplýsingar um, að hægt mundi vera að flytja olíuna þetta fyrir töluvert lægra verð. Olían þyrfti því sennilega ekki að vera dýrari í útsölu á Siglufirði heldur en 27 au. kg., fyrir utan dreifingarkostnað þar á staðnum, en í staðinn fyrir það hefur olían verið seld þar fyrir 51 eyri kg. Og þá er sýnt, hversu gífurlega óréttlát álagningin hefur verið á olíunni. Olíufélögin hafa afsakað sig með því, að þau yrðu að afgreiða olíu á ýmsum óhagstæðum afgreiðslustöðum á landinu, þar sem ekki væri hægt að selja hana með öðru móti en að flytja hana þangað í tunnum við margs konar erfiðleika. En það er sýnilegt, að stærstu staðirnir, sem kaupa mest af olíunni, ráða hér mestu um tilkostnaðinn við flutningana, og minni staðirnir með tilliti til olíuverzlunar geta ekki með nokkru móti haft neitt svipað því svo mikil áhrif á flutningskostnaðinn á olíunni yfirleitt, að selja þurfi hana fyrir svona hátt verð. Því að það er svo lítill dreifingarkostnaðurinn á olíunni hér í Reykjavík og á Siglufirði og öðrum stöðum á landinu, að þetta háa verð á olíunni getur ekki með neinu móti réttlætzt með þeim hætti, sem olíufélögin vilja vera láta.
Nú hefur hæstv. ríkisstj. lagt þeta mál fyrir Alþ. og gefið skýrslu. Báðar sjútvn. hafa óskað eftir þessu fyrir löngu, en það hefur verið dregið, og mér þykir ekki ósennilegt, að sá dráttur kunni að hafa orðið til að torvelda það, að þetta mál verði leitt til lykta á sem beztan hátt, því að á meðan olíufélögin hafa fengið hvern frestinn eftir annan, hafa þau unnið að því að búa í haginn fyrir sig. En um leið og hæstv. ríkisstj. leggur fram jafnmikilsvert mál og þetta, lætur hún sér nægja að gefa skýrslu, en segir ekkert um það, hvað hún ætlar sér að gera í málinu. Er meining hennar að herða á verðlagseftirlitinu eða leggur hún til, að ný skipulagning verði upp tekin á olíusölunni, eða hefur hún alls engar till. að leggja fram í málinu? Það er ekki þörf að rekja frekar en hér hefur verið gert hina dæmalausu framkomu olíufélaganna í þessu máli. Samkvæmt því, sem fram hefur komið, eru þau orðin margsaga í málinu. Í Morgunblaðinu var sagt, að þau hafi lagt til snemma í ágúst, að olíuverðið yrði lækkað, en þá hafi hæstv. ríkisstj. farið fram á frest, og því hafi það ekki orðið. En hæstv. viðskmrh. hefur upplýst, að olíufélögin hafi lagt fram skýrslu til viðskiptaráðs, þar sem því hafi verið haldið fram, að olían þyrfti að hækka. Annaðhvort er skýrsla olíufélaganna til viðskiptaráðs röng eða þá orð forstjóra olíufélagsins í Morgunblaðinu. Það er því ekkert eðlilegra en menn álykti af þessu, að það verð, sem olíufélögin hafa talið eftirlitinu trú um, að þau þyrftu að fá, sé allt of hátt, og engin rök séu fyrir því, að dreifingarkostnaðurinn þurfi að nema 200%. Einnig rökstyðst þessi skoðun við þá staðreynd, að til þess að kaupa sér frið og losna við þá hættu, að útvegsmenn fái að kaupa olíuna beint, bjóðast þau til að lækka olíuna um upphæð, sem nemur 2½ millj. kr. á ári, þó að framtöl félaganna sýni hins vegar, að heildartekjur þeirra hafi ekki numið þessari upphæð, heldur hafi skort mikið á. Ef hér er um rétt framtal að ræða, þá kemur í ljós, að olíufélögin bjóðast til að gefa með rekstrinum nokkrar millj. kr. á ári, ef það mætti verða til að bægja frá þeirri hættu, að útvegsmenn fengju að kaupa olíuna sjálfir.
Ég vil svo óska þess, að þetta mál verði tafið sem allra minnst héðan af. Menn eru nú búnir að velta málinu fyrir sér í hálfan þriðja mánuð, og á meðan hafa olíufélögin unnið að því að koma ár sinni fyrir borð. Þessi dráttur er hættulegur og engum til góðs nema olíufélögunum. Ég held því, að hæstv. ríkisstj. ætti að hraða störfum sínum eftir föngum, ekki láta sér nægja að koma fram með lauslegar skýrslur, heldur leggja fram gagngerðar till. til úrbóta.