13.10.1943
Sameinað þing: 18. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 920 í B-deild Alþingistíðinda. (1921)
Skýrsla um olíumálið
Einar Olgeirsson:
Ég vil gera að umtalsefni eitt atriði, sem fram kom í ræðu hæstv. utanrrh. Hæstv. ráðh. lýsti yfir því, að sendiráð Breta hefði tilkynnt, að brezka flotastj. mundi hafa hönd í bagga með olíufélögunum hér. Ég held, að rétt væri, að Íslendingar athuguðu hvað hér er að gerast. Ísland hefur samninga við Bandaríkin um hervernd landsins, þar sem ekki er tekið fram að Bandaríkin hafi heimild til að framselja þetta vald í hendur öðrum. Samkvæmt 6. gr. samningsins á Ísland heimtingu á, að því sé séð fyrir nægum nauðsynjavörum. En nú kemur tilkynning um, að flotastjórn annars ríkis, sem enga slíka samninga hefur við Ísland, eigi að taka að sér olíubirgðastöð hér á landi, og að tilnefnt hafi verið brezka olíufélagið Asiatic Petroleum Company, til að fara með umráðin yfir birgðaflutningum. Þetta hlýtur að þýða það, að brezkir hermenn taki að sér gæzlu í Hvalfirði. Það er rétt fyrir Alþ. að fá að vita, hvað er að gerast hér. Hvort sem Íslendingum þykir það ljúft eða leitt, sem hér er að gerast, hljóta þeir að krefjast þess að fá að vita, hvað það er, sem er að gerast í þeirra landi. Það er reynt að halda því fram út á við, að samningar okkar við Bandaríkin séu gerðir af frjálsum vilja íslenzku þjóðarinnar, en nú verður ekki betur séð en hér sé verið að gera samning bak við Alþ. og ríkisstj. milli þessara tveggja stórvelda, Bretlands og Bandaríkjanna, um ákveðnar hernaðarstöðvar á Íslandi. Bandaríkjastjórn virðist eftir þessu að dæma telja sig hafa rétt til að afhenda Bretum ákveðin hernaðarsvæði hér á landi án þess að bera það undir ísl. ríkisstj.
Þetta er hið eina, — sem komið hefur fram um þetta mál. Við vitum ekki, hvort fleira slíkt kann að hafa gerzt eða hvað ákveðið hefur verið um það, í hvors áhrifasvæði Ísland skuli vera. Þessi stórveldi virðast ætla að nota Ísland sem nokkurs konar skiptimynt sín á milli. Það er því full ástæða fyrir Íslendinga að krefjast skýringa í málinu. Okkur hefur áður verið skipt frá einu stórveldinu til annars, og yfirleitt væri viðkunnanlegra að fá að vita, hvorir teldust eiga okkur í það og það skiptið, svo að hægt sé að vita, hvert við eigum að snúa okkur með mótmæli, ef gengið er á rétt okkar. Annars virðist svo sem þessir aðilar gætu látið svo lítið að spyrja okkur, hvort við vildum ganga til frjálsra samninga um kröfur þeirra. Vonandi verður þetta mál rætt hér sérstaklega innan skamms.
Viðvíkjandi því máli, sem hér hefur aðallega verið rætt, viðskiptunum við olíuhringana, held ég, að við þurfum ekki að fara í kringum hlutina. Við vitum, að olíuhringarnir eru sterkt vald í heiminum, og þau félög, sem þeir hafa í ýmsum löndum, eru nokkurs konar kvislingar til framkvæmdar hagsmunapólítík þeirra. Hér hafa verið sögð mörg og stór orð í garð olíuhringanna, en ég vil vekja athygli á því, að hæstv. Alþ. ræður, hvort þessir hringar eiga að fá að starfa hér eða ekki. Það hefur vald til að sjá um það, að smáútvegsmenn geti fengið að kaupa olíu sína beint og milliliðalaust hingað til landsins. Þó að ríkiseinkasala væri hér á olíu, er ólíklegt, að Bretar og Bandaríkjamenn, hvorir sem hér stjórnuðu, mundu neita að láta okkur olíu í té. Það væri of áberandi samningsbrot.
Ég þarf ekki að endurtaka orð hv. síðasta ræðumanns um þá skýrslu, sem hér hefur verið lögð fram. Það er að vísu mjög gott, að hún er fram komin, en aðalatriðið er, að eitthvað sé aðhafzt, og næsta verkefnið er að ákveða raunhæfar aðgerðir í þessum olíumálum og að því er snertir utanríkishlið þeirra.