21.04.1943
Sameinað þing: 8. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
Þingfrestun
Frsm. meiri hl. (Garðar Þorsteinsson):
Það er að vísu rétt, að það hefur nokkuð verið dregið úr frv. með brtt. minni hl., en ég hygg, að reynslan yrði sú, að á flestum stöðum eigi bæirnir einhver þau mannvirki, sem geti talizt nothæf til skipaafgreiðslu, og líka einn eða tvo uppskipunarbáta, sem hægt væri að telja uppskipunartæki.
Frsm. minni hl. talaði um afgreiðslumenn, sem sætu í mjög lágri leigu, en rökuðu saman fé. Af hverju snýr þá viðkomandi bæjarstjórn sér ekki til viðskiptaráðs og lætur lækka taxtana? Það er auðvelt að sjá til þess, að afgreiðslumennirnir fái ekki hærra en sæmilegt er. Hitt fór frsm. ekki inn á, sem er þó ekki minnsta atriðið, að skipafélögin vilja sjálf ráða trúnaðarmönnum sínum. Oft er um mikið verðmæti að ræða, sem skiptir háum upphæðum. Það kemur því niður á félögunum, ef starfið er illa rækt. Fyrir stríð var það og mikið atriði, að afgreiðslumennirnir gætu náð viðskiptum. Hér voru keppinautar bæði á meðal danskra og norskra skipafélaga. Það var því nauðsynlegt fyrir okkar félög að hafa duglega menn fyrir sig, sem gættu hagsmuna þeirra í hvívetna.