01.09.1943
Sameinað þing: 9. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)
Setning þings af nýju
forsrh. (Björn Þórðarson):
Herra forseti. Ég hef í höndum bréf herra ríkisstjórans, svo hljóðandi:
„Ríkisstjóri Íslands gerir kunnugt:
Að ég hef ákveðið, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfundar miðvikudaginn 1. sept. 1943, kl. 14.
Gert í Reykjavík 12. ágúst 1943.
Sveinn Björnsson.
Samkvæmt þessu lýsi ég því yfir, að fundum Alþingis, sem frestað var 22. apríl s. l., er nú fram haldið. Jafnframt leyfi ég mér að bjóða alla þingmenn velkomna til starfa.