02.12.1943
Efri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í C-deild Alþingistíðinda. (1987)

172. mál, verðlækkunarskattur

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég álít heppilegt að geta lokið þessu máli í dag og skal því ekki tefja umr. Ég vil svara því, sem hv. þm. Barð. beindi til mín, hvort ég vildi ekki fara fram á, að umr. yrði frestað um málið og það aftur athugað af n. Ég sé enga ástæðu til þess að gera það, nema því aðeins, að hv. fjhn. láti í ljós þann vilja sinn, að hún vildi taka málið fyrir aftur.

Hv. þm. Barð. gaf það í skyn, að hér væri um mjög vanhugsað tekjufrv. að ræða, en ég vil segja honum, að þetta frv. er bæði talsvert hugsað og einnig er reynsla komin fram um verðlækkunarskattinn. Hv. þm. verður að skilja það, að hér verður að koma ný tekjuöflun, ef ekki á að hætta öllum dýrtíðarráðstöfunum. Það er hins vegar kunnugt, að ekki er hægt að bæta miklum útgjöldum í fjárlögin. Ég vil segja það, að ég tel ómögulegt að hverfa frá uppbótastefnunni á kjöt, þar sem haustverðið nú og söluverðið hefur verið miðað við það, að uppbætur yrðu greiddar.

Ef staðið væri við ályktun sex manna n., yrði kjöt á innlendum markaði að vera miklu hærra en ella, ef ekki væru greiddar uppbætur á útflutt kjöt. Þess vegna get ég svarað hv. 5. þm. Reykv. því, að ég ætlast til þess, að þessar uppbætur nægi bæði á útflutt kjöt og eins til þess að borga niður landbúnaðarvörur á innlendum markaði. En hvernig sú skipting fer fram, hef ég aftur ekkert sagt um. En hitt er víst, að til þess þarf mikið fé, og það fé er ekki til á fjárl. þeim, sem nú liggur fyrir að samþ.

Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða till. hv. 3. þm. Reykv. Ég álít, að hún ætti ekki að koma til greina. Ég vildi svo mælast til þess, að þessu máli gæti orðið lokið á þessum fundi.