17.12.1943
Efri deild: 69. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í B-deild Alþingistíðinda. (1996)

Starfslok deilda

Forseti ( StgrA) :

Ég þakka hv. 6. þm. Reykv. fyrir vingjarnleg ummæli hans í minn garð og viðurkenningarorð. Og ég vildi þá einnig leyfa mér að endurtaka þakkir mínar til hv. deildarmanna fyrir gott samstarf og óska þeim öllum og starfsfólki þingsins gleðilegra jóla og góðs árs, og vona ég, að við hittumst öll heil á ári komanda.