21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í D-deild Alþingistíðinda. (2023)
11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis
Jón Pálmason:
Herra forseti. Formaður Sjálfstfl. hefur lýst yfir því, að Sjálfstfl. sé einhuga um það að fresta þingi í dag. Við teljum enga þörf á því að halda nú áfram þingi því, sem nú er hafið, þar sem víst er, að ekki verður hægt að ljúka því fyrr en síðari hluta ársins, og liggja til þess augljósar ástæður. Till. um frestun þess verður líka áreiðanlega samþ. hér í dag. En nú, þegar hv. þm. eru að skilja eftir 5 mánaða samveru, þá er sérstök ástæða til þess að víkja nokkrum orðum að þeim ásökunum, sem hefur verið beint að þinginu. Réttmætasta ásökunin, sem eðlilega hefur verið beint að þinginu frá kjósendum, er sú, að því hefur ekki, síðan kosningar fóru fram, tekizt að mynda þingræðislega meirihlutastjórn. Það er ásökun, sem er fyllilega réttmæt, og það er ekki von, að þeir, sem sitja ekki á þingi, skilji til hlítar, hvernig á því stendur. En þessar umr., sem farið hafa fram hér í dag, hafa verið mjög gagnlegar til skýringar á því atriði. Þær hafa sýnt hlustendum úti um land, hvernig tónninn hver til annars er í þeim þremur andstöðuflokkum Sjálfstæðisflokksins, sem hér hafa sína fulltrúa. Þeir hafa brugðið hver öðrum um svik og undanbrögð og annað þess háttar. Þetta skýrir nokkuð, hvernig á því stendur, að ekki hefur tekizt að mynda hér þingræðislega stjórn. Þessir þrír flokkar hafa haft hér í vetur starfandi 9 manna nefnd til þess að semja um grundvöll fyrir myndun svo nefndrar vinstri stjórnar, sem öllu átti að bjarga. Þessi n. hefur nú gefizt upp, en afleiðingarnar af starfi hennar má nú heyra í tóninum, sem þessir flokkar hafa sent hver öðrum hér í dag. Ég skal ekki fara lengra út í þetta, en þeir, sem hafa borið fram þyngstar ásakanir í garð Alþ. út af þessu, ættu að minnast þess, að þetta eru annmarkar, sem þjóðin hefur sjálf stofnað til. Það hefur nú um langt skeið ekki verið til neinn meirihlutaflokkur á Alþ., sem hefur getað myndað stjórn án stuðnings annarra, og eftir því sem lengra líður, verða annmarkarnir æ meiri á því að taka vandamálin föstum tökum. Sjálfstfl. vildi reyna að koma á samkomulagi milli allra flokka um stjórnarmyndun, en það tókst ekki. Hvernig á því stóð, þarf ég ekki að ræða, þar sem það mál er allvel kunnugt, og auk þess geta menn nokkuð ályktað um það af þeim umr., sem farið hafa hér fram í. dag.
Það, sem þessar umr. hafa snúizt mest um, er afstaðan til skattamálanna, og skal ég nú víkja að því örfáum orðum. Þegar hæstv. ríkisstj. lagði fram frv. til l. um dýrtíðarráðstafanir, voru þrír fyrstu kaflar þess um nýja skatta. Fyrsti kaflinn var um það, að afnema varasjóðsréttindin hjá hlutafélögum, en láta þau haldast áfram hjá samvinnufélögum. Annar kaflinn var um nýja skatta, sem áttu að gefa 11 millj. kr. tekjur fyrir ríkissjóð. Þriðji kaflinn var svo um það að leggja á sérstakan eignaraukaskatt, sem átti að nema 2–3 millj. kr. Nú var það svo, að þetta frv. var til meðferðar í fjhn. Nd. í nær 6 vikur, og varðandi okkur, sem sæti áttum í fjhn., er það að segja, að okkur kom saman um, að hvað sem liði ágreiningi um varasjóðsréttindi hlutafélaga og eignaraukaskatt, þá væri þetta svo illa undirbúið, að ekki tæki tali að samþ. það að svo stöddu.
Varðandi það, sem hv. 3. landsk. var að minnast á, að það skyti nokkuð skökku við hjá formanni Sjálfstfl., að í des. s. l. hefði hann gert tilboð um að leggja á eignaraukaskatt, en nú risi hann öndverður gegn slíkum skatti, þá verð ég að segja það, að hér er ólíku saman að jafna. Það er nokkuð annað að hugsa sér eignaraukaskatt í takmörkuðum skilningi í sambandi við fjögurra flokka stjórnarmyndun eða að fallast á þetta frv., sem hér liggur fyrir, án þess að hægt sé að segja nokkuð um það, hvernig skatturinn verkar. Ég verð að segja það, að sem starfandi maður í fjhn. Nd. og eftir að hafa hugsað mikið um það, hvernig eigi að taka eignaraukaskattinn, miðað við þær eignabreytingar, sem orðið hafa, þá verð ég að segja það, að það eru fjölmörg atriði, sem hljóta að koma til rækilegrar athugunar, áður en nokkur kostur er á að samþ. um það l., sem eitthvert vit á að vera í. Það er mjög þægilegt að kasta fram frv. um, að taka skuli ákveðinn hundraðshluta af eignaraukningu á ákveðnu tímabili. En það er mjög erfitt að ákveða, hvað sé eignaraukning og hvað ekki. Ég tók hér um daginn nokkur dæmi í þessu sambandi. Ég tók m. a. sem dæmi tvo menn, sem eiga sitt húsið hvor, og er hvort húsið metið á 100 þús. kr. Nú selur annar sitt hús á 200 þús. kr., en hinn á sitt hús áfram. Það verður að telja mjög mikið vafamál, að sá, sem seldi sitt hús, sé nokkru ríkari en hinn, sem á sitt hús áfram. Svona eru mörg atriði um eignaraukningu, sem mjög geta orkað tvímælis. Við skulum hugsa okkur stórt kaupfélag, sem hefur hagnazt um 100–200 þús. kr., en sá hagnaður liggur í því, að vörubirgðir félagsins hafa hækkað í verði. Hvað sannar það um eignaraukningu? Það veltur allt á því, við hvaða verði vörurnar seljast, þegar verðlækkunin skellur yfir. Eins er þessu háttað um mörg útgerðarfyrirtæki. Varðandi varasjóðina má segja, að það orki mjög tvímælis, hvort nokkur sanngirni sé í því að breyta þeim réttindum frá því, sem nú er, og þær breytingar verður a. m. k. að athuga vel og gaumgæfilega, þar sem aðstaða félaganna er mjög misjöfn. Það eru til mörg félög, sem hafa verið stofnuð á síðustu árum og hafa ekki haft tækifæri til þess að safna fé í varasjóði. Svo koma þeir nú, sem hingað til hafa talað um, að það yrði að tryggja varasjóðina sem bezt, og vilja að heita má láta banna þessum félögum að safna í varasjóði. Varðandi nýbyggingarsjóði útgerðarfélaganna, þá verð ég að segja það, að það er hreinasta fjarstæða að ætla sér að taka þá, eins og hér hefur verið lagt til. Við höfum fengið upplýsingar um þessa nýbyggingarsjóði frá hæstv. ríkisstj., og það hefur komið í ljós, að 14 útgerðarfélög áttu um 5 millj. kr. í nýbyggingarsjóðum í árslok 1941. Þegar þess er gætt, að nú mun það kosta um 2 millj. kr. að smíða einn nýtízku togara, þá er það næsta hlálegt, að ekkert útgerðarfélag skuli mega eiga meira í nýbyggingarsjóði en 1 millj. kr. Með þessu er verið að kippa undirstöðunni undan möguleikunum til þess að endurbyggja skipastólinn. Það er ákaflega gremjulegt að vita til þess, að Alþ. skuli þurfa að standa í því á hverju ári, svo að vikum og mánuðum skiptir, hvernig breyta eigi grundvellinum til skattaálagningar. Árin 1941 og 1942 fór mestur tíminn í það að rífast um þessi mál, unz loks í fyrra, að það virtist vera komið á allgott samkomulag. En nú á þessu þ. er bætt við nýjum skatti á hærri tekjur, sem á að nema um 8 millj. kr. Ef menn eru ásáttir um það, að það þurfi meiri skatta í ríkissjóð, þá hefði mér fundizt eðlilegra að hækka skattana eftir hundraðshlutum á þann grundvöll, sem þegar hefur verið lagður. Það er líka ólíku saman að jafna, hvort skattar eru hækkaðir á framleiðslu eða viðskiptum. Hv að viðvíkur skattahækkunum á framleiðslunni, þá er það að segja, að það er eins og ef bóndinn slátraði mjólkurkúnum sínum til þess að selja af þeim kjötið. Varðandi verzlun er allt öðru máli að gegna. Það er hagur þjóðfélagsins, að af henni verði ekki meiri ágóði en minnst er hægt að komast af með. En það er nær að halda gróða verzlunarinnar í skefjum með hörðu verðlagseftirliti en ætla sér að taka það, sem hlutafélög hafa eignazt í varasjóði, eða breyta þeim grundvelli, sem þar liggur fyrir.
Varðandi þau kaldyrði, sem hér hafa farið milli vinstri flokkanna, þá verð ég að segja það, að afstaða þeirra hvor til annars er næsta furðuleg. Það er undarlegt, þegar Framsfl. skammar sósíalista fyrir það, að þeir séu ekki fúsir til þess að leggja á eins háa skatta og nauðsyn beri til. Þetta kom greinilega fram í Ed. við umr. um dýrtíðarmálin og skattaálagninguna. En hvað sem þessu líður, þá get ég ekki séð, að þessara hluta vegna sé nokkur nauðsyn þess að halda þingi lengur áfram nú. því að það er ljóst, að þau skattafrv., sem hér liggja fyrir, eru svo illa undirbúin og svo gölluð, að það nær engri átt að samþ. þau þannig, enda þótt til þess fáist meiri hl. þings. Við í fjhn. Nd. höfum orðið sammála um það að leggja til, að sett verði mþn. í skattamálin til þess að athuga þau og undirbúa, áður en þing kemur aftur saman í haust. Þess vegna höfum við nú allmargir borið fram þál. um skipun slíkrar mþn. Hvort sú þál. verður samþ. hér á þingi í dag, er ekki sýnt, en með þeim hætti álít ég, að farin sé rétta leiðin til þess að rannsaka, hvernig helzt muni hægt að skipa þessum málum á viðunandi hátt.
Ég læt svo þetta nægja, en vil enda orð mín með því að óska öllum landsmönnum gleði og farsældar á komandi sumri.