21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í D-deild Alþingistíðinda. (2031)

11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Eysteinn Jónsson:

Ég sé ekki ástæðu til að víkja mikið að hv. ræðumönnum Sjálfstfl. við þessar umr. Ég vil þó vekja athygli á þeirri nýstárlegu túlkun hjá hv. þm. A.-.Húnv. (JPálm), þegar hann afsakar snúning sjálfstæðismanna frá því í haust þannig, að það mætti leggja á skatta, ef Sjálfstfl. væri með í stjórn, — sem sagt, ef Ólafur Thors fengi að vera ráðh., en ef hann fengi það ekki, væri allt öðru máli að gegna, — þá væri stjórnarskrárbrot að leggja á eignaraukaskatt, eins og hv. 6. þm. Reykv. (BBen) hefur látið frá sér heyra í hv. Ed. við þær umr., sem þar hafa farið fram.

Annars ætla ég að tileinka Sósfl. þær mínútur, sem ég hef til umráða. Sósíalistar hafa krafizt þessara umr., vegna þess að þeir eru hræddir vegna framkomu sinnar í skattamálunum á hinu nýafstaðna þingi. Þeir ætla sér að telja fólkinu trú um, að þeir hafi nú ætlað að bæta ráð sitt í skattamálunum, en þegar þeir hafi ætlað að vera góðu börnin, þá hafi Grýla gamla komið og rekið þá heim. Og dugnaðinn ætla þeir að sýna í því á þessu þingi að koma fram tvennu, koma á eignaraukaskatti og afnema skattfrelsi stórgróðafélaga.

Um eignaraukaskattinn er það að segja, að formaður Sósfl., Einar Olgeirsson, gerði það að till. sinni, að hann skyldi bíða. Hann gerði enn fremur að sinni till., — þó að hún kæmi ekki fram opinberlega í þinginu, heldur í fjhn., — að það skyldi setja mþn. til þess að taka þetta mál sérstaklega fyrir, sem skyldi skila áliti í ágústmánuði. Það var ekki þá sá hugur í þeim þm., að það væri nauðsynlegt að halda þessu þingi áfram til þess að afgreiða þetta sérstaka mál.

Og um Alþfl. er það sama að segja. Fulltrúi þess flokks í fjhn. lagði þetta sama til. En sú uppfynding, sem nú er komin fram hjá þeim, að það verði að halda þinginu nú áfram til þess að afgreiða þetta mál, er ekki annað en skoplegur loddaraleikur, sem hér er leikinn vegna slæmrar samvizku, sem þessir hv. þm. hafa í sambandi við afgreiðslu annarra skattamála. Og til þess að draga athygli frá því er nú komið fram með það atriði, að nú hafi Sósfl. snúizt hugur og enn sé hann til með að afnema varasjóðshlunnindi útgerðarfélaga fyrir árið 1942 og þess vegna verði nú að halda áfram þingi til þess að taka til athugunar aftur það mál, sem sósíalistar hlupu frá á síðasta þingi við lítinn orðstír. Um þetta er það að segja, að hv. 2. þm. Reykv. (EOl) gerði samkomulag við Alþfl. og Sjálfstfl. í fjhn. Nd. um að taka þennan kafla úr frv., sem tók til varasjóðshlunnindanna, og framhaldsþinghald svo sem til 15. maí til þess að ráða þessum málum til lykta kom þá ekki til umr. eða mála. Og þetta átti þá enn fremur að taka fyrir til athugunar í sömu mþn. og eignaraukaskatturinn. Svo þegar málið kemur inn í þingið og Framsfl. fellst ekki á þetta ráðabrugg, þá grípur augnabliksákafi Sósfl., og tveir menn eru sendir til þess að bera fram þær till., sem höfðu fengið þær endalyktir áður, þ. e. á síðasta þingi, að þeir sjálfir felldu þær, — um að afnema skyldi þessi varasjóðshlunnindi þrátt fyrir allt, sem gerzt hafði í Nd. um það mál. Og þegar sósíalistar felldu þær till. í Nd., sem þeir höfðu áður borið fram, stóð ekki til, að kvörtun kæmi fram frá Sjálfstfl. um þann málefnasamning við Sjálfstfl., sem hafði verið gerður af sósíalistum. En það kom í ljós, að það hafði verið samið um þetta mál, þ. e., að ekki skyldi afnema skattfríðindin fyrir 1942 til handa þessum varasjóðum, þegar hv. 7. þm. Reykv. (SK) kvartaði yfir því, að þessi brigð hefði átt sér stað. Og aðferðin, sem sósíalistar höfðu til þess að drepa sitt eigið afkvæmi, 7. gr. frv., var þannig, eins og hér kom fram í umr., að svo sem skýrt hefur verið frá áður, kom fram till. um að skipta þessu fé, sem fengist með því að afnema þessi skattfríðindi útgerðarfélaga fyrir árið 1942, þannig að helmingur þess gengi til raforkusjóðs og helmingurinn til alþýðutrygginganna. Og þá gerist það, að tveir hv. þm. Sósfl. lýsa yfir — án þess að blikna né blána — í hv. Nd., að ef þessi óhæfa verði samþ., að helmingur þessa fjár renni til raforkusjóðs ríkisins og helmingurinn til alþýðutrygginganna, þá muni þeir strax við þá umr. fella niður þessar skatttekjur, sem þeirra eigin þm. höfðu flutt till. um, að teknar yrðu skv. 7. gr. frv. Og þeir heimtuðu, að það yrðu brotin þingsköp, til þess að þeir gætu fengið að greiða atkv. um gr. sérstaklega, ef þessi óhæfa skyldi komast inn í hana. Það var svo sem ekki vandasamt að sjá, að hverju stefndi um óheilindi sósíalista í málinu og hvaða viðræður höfðu gerzt. Tveir hv. þm. þessa flokks hafa lýst yfir því, að ef sú óhæfa yrði drýgð, að helmingur þessara tekna rynni í raforkusjóð ríkisins, þá mættu gróðafyrirtækin eiga sig fyrir þeim. Og nú er búin til stór skáldsaga um, hvað gerzt hafi í þinginu um þessi mál. Og hvaða nauður hefur rekið til þess? — Hér voru góð ráð dýr. Þessa sögu les formaður Sjálfstil. upp með sakleysissvip og hugarró, og sagan er þessi: Framsóknarmenn vildu lögþvingun á kaupi. En þetta eru hrein ósannindi. Það vita allir hv. þm., að enginn flokkur hefur nú á þessu þingi né síðasta þingi borið fram neinar till. um lögþvingun á kaupi. Það var barizt hér í hliðarsölum Alþ., sagði hv. 8. þm. Reykv. (SigfS), væntanlega um þessar skrifl. till. um lögþvingun á kaupi, sem er uppspuni frá rótum og öllum er kunnugt, að er uppspuni.

En það var nauðsynlegt að spinna þetta upp, því að annars varð framhald sögunnar ótrúlegt. Vegna þess, að Sjálfstfl. hefur lært það, segja sósíalistar, að þvingunarákvæði eru ástæðulaus, vilja þeir ekki hafa þau. En þó skilst mönnum, að þessi hugarfarsbreyting,. sem hv. 4. landsk. (StgrA) lýsti hér í gær, að hefði orðið hjá Sjálfstfl., hafi ekki verið meiri en það hjá Sjálfstfl., að þessi hugarfarsbreyt. fékkst ekki ókeypis. Það varð að láta eitthvað fyrir hana, og þar sem Alþfl.menn og sósíalistar voru í nokkrum nauðum staddir, þá þurftu þeir, að því er mönnum á að skiljast, að láta það fyrir að fella niður skattana, sem sósíalistar höfðu gert till. um í Nd., að lagðir yrðu á.

Nú skulu menn ekki halda, að þetta hafi verið dýrt fyrir sjónum þeirra manna, sem ætluðu að fella þessa skatta strax í Nd., áður en þessi „lögþvingunarákvæði“ voru sett í frv., — bara af því, að helmingurinn af þessum tekjum átti að fara til raforkusjóðs ríkisins(!).

Þetta sýnir röksemdafærsluna hjá þessum flokki.

Þegar hér var komið, þ. e. a. s., þegar sósíalistar komu fram með þessa viðbáru gegn því að vera með þessu skattaákvæði frv., þá var búið að afhjúpa sósíalista í þessu máli. Þess vegna þurftu þeir að grípa til falskra röksemda.

Hver voru þá þessi þvingunarákvæði, sem sósíalistar þurftu í Ed. að kaupa burt úr frv. með því að gefa fyrir það fylgi sitt við sitt eigið afkvæmi, skattaákvæði 7. gr.? Þau voru það ákvæði frv., að ríkisstj. væri heimilt að lækka kaup um allt að 12% í einn mánuð, ef Alþýðusamband Íslands vildi samþ. Þetta var þvingunar- og kúgunarákvæðið, sem sósíalistar þurftu að kaupa út úr frv. í Ed. með því að láta fyrir það skattana, sem þeir báru svo ákaflega fyrir brjósti (!). Það var ekki að furða, þó að sósíalistar þyrftu að grípa til örþrifaráða til þess að afnema þessi þvingunarákvæði. En þessi ákvæði voru að efni til alveg samhljóða ákvæðum, sem hv. 2. þm. Reykv. (EOl) hafði samið um í Nd., — eins og fyrri daginn.

Þetta er ljót saga, bæði eins og hún er sögð og þó sérstaklega er það ljót saga, þegar sósíalistar eru að reyna að klóra yfir framkomu sína í. þessu máli. Og svo er unninn þessi frægi sigur í þinginu, eins og hv. 8. landsk. þm. (SigfS) lýsti hér: Þvingunarákvæðin öll á burt, og það kostaði ekki annað en það að láta skattaálögur á stríðsgróðafyrirtækin bíða. En frá sjónarmiði sósíalista hefði hann ekki þurft að bæta því við.

Hv. 3. landsk. þm. (HG) minntist hér nokkuð á þetta áðan, og hann sagði, að þetta um varasjóðina, eins og það hefði verið framkvæmt, væri smátt mál og litlar tekjur hægt af því ákvæði frv. að hafa. En hann lýsti því ekkert, af hverju hefði þurft að fella þetta niður. Ég get ekki sagt um það nákvæmlega, hve miklar tekjur þetta ákvæði mundi hafa komið til með að gefa. En þessi varasjóðshlunnindi, sem hann gerir svo lítið úr, eru einmitt það, sem hann hefur deilt á Framsfl. á undanförnum árum fyrir að hafa samþ. í sambandi við skattal., sem hafa verið sett. Og annað er mjög eftirtektarvert hjá þessum hv. þm. Hann er nú allt í einu búinn að finna það út, að ekki er hægt að afgreiða skattamál og dýrtíðarmál saman. En fram að þessu hafa verklýðsflokkarnir viljað skjóta sér undan því að afgreiða dýrtíðarmálið af því að ekki væri jöfnum höndum gengið nógu langt í skattamálunum. Hins vegar kom fram atriði hjá hv. 3. landsk. þm. (HG), sem er mjög eftirtektarvert, vegna þess að hann getur ekki verið þekktur fyrir þann skollaleik, sem sósíalistar leika hér. Hann sagði, að hann gæti ekki orðið til þess, að þessi varasjóðshlunnindi væru tekin af félögunum, sem samið hefði verið um fyrir nokkrum dögum, að haldast skyldu. Og með þessari skýringu hv. 3. landsk. er það þýðingarlaust, að umr. haldi áfram um þessi skattamál og þingið haldi nú áfram setu til þess.

En sósíalistar eru jafnbundnir um þetta, þó að þá skorti manndóm til þess að skýra frá því, en séu í stað þess að leika þennan skollaleik. Sósíalistar sögðu: Þetta (eins og þeir vildu afgreiða málið nú) á ekki að gera til. Það má taka málið upp aftur. En ég er nú búinn að skýra frá afstöðu hv. 2. þm. Reykv. (EOl), sem vildi setja þessi mál í milliþn. og fresta þeim fram á sumar. Og þetta, að taka upp þennan leik nú aftur, það er alveg nákvæmlega í samræmi við vinnubrögð þessara hv. þm. Auðvitað dettur þeim ekki í hug að viðurkenna það, að þeir ætli að fella þetta mál, sem þeir nú hafa borið fram um skattaálögur. En þó að það liggi fyrir nú, að vitanlega ætla þeir að gera það, ef þeir fá tækifæri til þess, þá þykjast þeir nú vera fullir af áhuga á þessu máli. Ef svo til þess væri gengið að láta segja hreinlega með atkvgr., hvort þeir væru virkilega með þessu skattamáli, þá mundu þeir jú vera með því, — ef eitthvað annað verður gert líka, sem þeir hefðu nóg ráð með að fitja upp á til þess að hindra framgang málsins. Nú virðast sósíalistar ætlast til þess, að slíkur skrípaleikur hefjist á nýjan leik. Það hefur ekki verið hægt að fá samkomulag við sósíalista um skattana 1942, og auðvitað lá beint við fyrir sósíalista að taka þau mál út úr, ef þeim var nokkur alvara að afgreiða þau. En í stað þess fæst ekkert frá þeim í þeim málum annað en undanbrögð. Yfir þessu á svo Alþ. að sitja, og síðan, þegar búið kynni að vera að ná samkomulagi um þessi mál að einhverju leyti, á að drepa málið, þá verður kannske einhverja átyllu hægt að finna til þess. Og ef engin átylla finnst, drepa þeir það samt, alveg eins og þeir gerðu við 7. gr. í Nd., eins og ég áður lýsti. Sósfl. var í lófa lagið að hafa hreina afstöðu í þessu máli, en hann vildi það ekki. Það var í lófa lagið að svara því játandi, að þeir ætluðu að fallast á þær breyt. á varasjóðshlunnindunum, sem Framsfl. lagði til. Því var aldrei svarað öðruvísi en svo, að þeir (sósíalistar) hefðu hér annað mál, sem þeir væru með, og við gætum verið með því, en inn í þetta var blandað ákvæði, sem við gátum ekki fylgt. Svo gefur hv. 8. þm. Reykv. (SigfS) það í skyn, að þeir hafi ætlað sér að falla frá þessu atriði. Ég átti tvisvar tal um þetta við hv. 5. þm. Reykv. (BrB), hvort þeir mundu ekki vera til með að taka þetta ákvæði út úr frv., en hann neitaði því. En nú, af því að búið er að ákveða að fresta þinginu mjög bráðlega, gefa þeir í skyn, að þeir séu til með að taka þetta ákvæði út úr frv. Þannig eru vinnubrögðin hjá þessum mönnum. Nú er af þessum mönnum talað um, að það þurfi að hefja sókn gegn stríðsgróðavaldinu. Við heyrðum þetta frá þeim í nóvember, og í desember í vetur og í janúar. En upp á síðkastið höfum við lítið heyrt talað um þetta af þeim fyrr en nú. En hverjir hindruðu þessa sókn, sem átti að hefja gegn stríðsgróðavaldinu á síðasta þingi? Sósíalistar sjálfir, sem fengust ekki til samvinnu um neitt í því efni, nema fallizt væri í einu og öllu á stefnu þeirra, sem þeir settu fram. Og að lokum drápu þeir sínar eigin till. um skatta. Einu till. um skatta, sem þeir gátu verið með, voru skattar, sem snertu almenning í landinu. Þeir voru samþykktir.

Nú er verið að tala um afgreiðslu skattamála og hver átök sósíalista hafa orðið í þeim málum. En mig minnir nú endilega, að á þessu þingi hafi ekki átt að sitja við það eitt af hálfu sósíalista að hafa afskipti af skattamálunum. Mig minnir, að það væri aðalmarkmið Sósfl. að koma upp vinstri stjórn, róttækri umbótastjórn. Og þeir gerðu till. um að skipa n. til þess að koma þessu í framkvæmd. Við vissum, að sósíalistar áttu kröfuna um þetta mál. En innan Sósfl. voru öfl, sem urðu ofan á, sem álitu, að aldrei kæmi það til mála að mynda slíka stjórn með núverandi vinstri flokkum, þó að nauðsyn væri á hinn bóginn að halda þessu fram sem möguleika og stefnu flokksins, af því að þeir höfðu fengið kjörfylgi með því að halda því fram, að slíka stjórn þyrfti að mynda. Hver varð svo niðurstaðan? Undanbrögð Sósfl., sem maður er farinn að kynnast. Og þegar menn gera sér ekki að góðu slík undanbrögð, þá koma svörin, þá afhjúpast aðferð sósíalista í þessu máli með því, að þeir láta skrifa grein í Þjóðviljann, þrungna af vonzku í garð þeirrar hugmyndar að stofna til vinstri stjórnar í landinu. Og aðalniðurstaða greinarinnar var sú, að það væri hægðarleikur að mynda vinstri stjórn, bara ef Alþfl. og Framsfl. vildu fallast á stefnu þeirra í einu og öllu. Sjálfstfl. lá á því lúalagi lengi að egna Sósfl. móti Alþfl. til þess að koma í veg fyrir, að umbótaflokkarnir í landinu gætu myndað stjórn saman. Með breyt. þeirri, sem gerð var á kjördæmaskipuninni, var stigið stórt skref í þessa átt með því að efla Sósfl. Nú hafa verið viðræður um stjórnarmyndun á síðasta þingi. Og sjálfstæðismenn hafa beðið með öndina í hálsinum eftir þeirri niðurstöðu. Ætluðu nú sósíalistar að svíkja og gerast umbótaflokkur, eða ætluðu þeir að vera á sömu línu og áður? Og þegar Sósfl. er búinn að kveða upp úr um þetta atriði, eftir að búið er að króa hann af, þá kemur fram eins og stuna frá Sjálfstfl. grein í Morgunblaðinu 1. apríl, daginn eftir að sósíalistar höfðu kastað grímunni, þakkarávarp til sósíalista fyrir að hafa ekki látið framsóknarmenn ginna sig til þess að mynda umbótastjórn né til að skattleggja stríðsgróðann. Og hvað segja svo kjósendur úti um land um þessa frammistöðu sósíalista? Í foringjaráði Sósfl. ráða þeir menn nú, sem engar umbætur vilja styðja og virðast fyrirlíta hugmyndina um róttæka umbótastjórn, meðan þjóðskipulaginu er ekki bylt. Ef hér verður mynduð róttæk umbótastjórn, verður Sósfl. að breyta afstöðu sinni gersamlega. Af þessu síðasta Alþ. (í vetur) má margt læra af framkomu Sósfl. Sumt hefur komið fram nú þegar. Annað verður upplýst síðar.

Íslenzkir alþýðukjósendur! Það fæst ekki heilbrigð stjórn í Alþ., nema sósíalistar séu knúnir til þess að breyta alveg um stjórnaraðferðir eða flokkur þeirra minnkaður svo, að hann verði áhrifalaus. Þetta mega þeir kjósendur vita, sem sá flokkur hefur brugðizt.