21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í D-deild Alþingistíðinda. (2036)

11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Forseti (GSv):

Þá hefur hv. 3. landsk. þm. (HG) lokið máli sínu fyrir hönd Alþfl. og talað rúmlega sinn tíma. Og er þar með þessum útvarpsumræðum lokið.

Hér hefur verið lögð fram skrifl. brtt. frá hv. 2. þm. Reykv., sem hann hefur þegar lýst. Vil ég leita afbrigða fyrir henni.