30.09.1943
Neðri deild: 25. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (2049)
7. mál, minkaeldi o.fl.
Pétur Ottesen:
Ég býst við, að fleirum en mér hafi þótt einkennilegt, hvernig hv. meiri hl. landbn. hefur snúizt við þessu máli. Það er ekki nema að vonum, að sá faraldur, sem hér hefur komið upp af völdum minka, er sloppið hafa úr gæzlu, hafi vakið geig hjá landsmönnum, og styður tvennt að því: Fyrst sú reynsla, sem fengizt hefur af þessum dýrum á þeim stutta tíma, sem liðinn er, frá því er farið var að flytja þau til landsins, en sú reynsla sýnir, að hinum villtu dýrum fjölgar hér ört og þau verða hinir mestu skaðsemdargripir, enda virðast hér vera alveg sérstök lífsskilyrði fyrir skepnur þessar, sem eru þannig úr garði gerðar frá náttúrunnar hendi, að þær geta aflað sér viðurværis bæði á landi, í vötnum og í sjó. Í öðru lagi er svo álit fræðimanna vorra á þessum sviðum, manna, sem við hljótum að taka mikið mark á sökum þekkingar þeirra, en slíkir menn hafa varað sterklega víð þeirri hættu, sem af því stafaði, ef þessi dýr slyppu úr gæzlu. Strax og farið var að flytja inn þessi dýr, ritaði hinn ágæti fræðimaður, Guðmundur G. Bárðarson, grein í Náttúrufræðinginn og varar menn eindregið við slíkum innflutningi. Hann styðst þar við þá reynslu, sem hann hafði aflað sér vitneskju um frá öðrum löndum. Þar segir meðal annars, með leyfi hæstv. forseta: „En verði sundmerðirnir víða aldir hér á landi, má ganga út frá því sem vísu, að einhverjir muni sleppa og gerast villtir. Það er engin leið að hafa svo öruggt eftirlit með vörzlu þeirra á mörgum uppeldisstöðum, að eigi geti út af borið“. Guðmundur Bárðarson er ekki að halda fram öðru en því, sem hann veit full deili á. Til enn frekari aðvörunar í þessum efnum segir Guðm. Bárðarson í sömu grein: „Ég tel mjög misráðið að leyfa að flytja hingað slík dýr sem þessi af marðarættinni. Væri hyggilegast að banna allan innflutning á sundmörðum, en hafa þann stofn, sem kominn er hingað, í strangri gæzlu, þangað til hann er upprættur, og þyrfti það að verða sem allra fyrst“. Ég held, að sú reynsla, sem fengizt hefur, staðfesti það, sem Guðm. Bárðarson segir í þessum efnum.
Nú hefur frsm. meiri hl. n. haldið því fram hér og stuðzt við ráðunaut í loðdýrarækt, að ekki hafi sloppið neitt af þessum dýrum fyrr er nú fyrir nokkrum árum og að þeir minkar, sem þegar er búið að vinna, séu allir af þeim stofni, sem fluttur hafi verið inn á fyrsta ári minkaræktarinnar hér.
Mér ber náttúrlega ekki sem ófróðum manni í þessum efnum að vefengja þekkingu loðdýraráðunautarins á þessu, en ég vil segja það, að ef bera á þetta saman við leiðbeiningar um það, sem að haldi mætti koma, í bréfi, sem hann ritaði mér á s. l. vetri, þá mætti ég vera efins um, að því mætti treysta. Það er vitað mál, að minkarnir hafa sloppið í stórum stíl úr mörgum búunum. Ég skal ekki segja, hvort í þeim öllum hefur verið þessi gamli stofn, en það er vitað, að eftir að eftirlitið var skerpt með frágangi búranna, muni hafa sloppið þó talsvert af minkum. Það mun hafa komið fyrir, — t. d. á s. l. vetri, á einum stað a. m. k., — að minkabúr hafi fokið, og með þessu móti hafa tugir, ef ekki hundruð dýra sloppið. Og reynslan hefur sýnt, að ekki þarf að búast við, að allir hafi náðst aftur.
Þá hefur Árni Friðriksson látið í ljós álit sitt um þetta mál. Það bendir ótvírætt í þá átt, að hér sé ástæða til að gera mjög róttækar ráðstafanir. Hann segir svo:
„Um leið og ég vísa til þess, sem að framan er sagt, verð ég að láta í ljós það álit mitt, að villiminkunum sé vægast sagt ofaukið í dýraríki landsins, enda þótt engin tök séu til þess að sjá fyrir þann skatt, sem þeir eiga eftir að taka af íslenzkum bændum, beint og óbeint, á komandi áratugum. Þess vegna álít ég sérhverja þá ráðstöfun, sem miðar að því að fækka þeim og útrýma, horfa til heilla“.
Þá er að athuga það, hvort hægt er að uppræta villiminkana. Það eru þó til ýmsar veiðiaðferðir, sem virðast all-róttækar, svo að ekki er ástæða til að örvænta, ef ekki væri um aðra fjölgun að ræða en þá, sem verður úti í náttúrunni. Menn mega ekki blekkja sig með því, að hægt sé að gera svo öruggar ráðstafanir, að minkar geti ekki sloppið úr gæzlu. Veðurfar hér á landi er þannig, að það getur, þegar minnst varir, valdið því, að heilir hópar sleppi. Það er ekki til svo rammger hlutur í þessu landi, að hann geti ekki orðið að láta undan hamförum náttúrunnar og það því fremur sem umbúnaður búranna verður að vera þannig, að loftið leiki um dýrin, því að það þarf að vera loftgott á þessum dýrum og vindur leika á þeim. Slíkur umbúnaður getur aldrei orðið svo traustur, að hann sé öruggur fyrir hamförum veðráttunnar. Auk þess kemur þar margt fleira til greina. Það er því ekki nema skollaleikur og undarlegt að það skuli koma fram hjá þessum mönnum, að hægt sé að verjast því, að minkar geti sloppið.
Það er því ekki um annað að gera hér en að slátra nú þegar þeim dýrum, sem nú eru í eldi hér, og gera svo gangskör að því að uppræta þann stofn, sem villtur er orðinn.
Það er freisting að fara hér út í nokkur atriði, sem koma fram í áliti meiri hl. landbn. og hjá hv. frsm. Það er þá sérstaklega það, sem hann er að færa fram sem líkindarök fyrir því, að þær sögur, sem hér hafa gengið um skaða af völdum villiminka, séu ýktar og ekki á neinum rökum reistar. Meiri hl. n. treystir sér þó ekki til að halda því fram, að minkar hafi ekki gert tjón á alifuglum hér. Þar hafa þeir gert tjón og það á þann hátt, að þessi dýr hafa sýnt sig þar skæðari en önnur rándýr. Þau drepa allt, sem þau ná til, án tillits til þarfarinnar. Það er drápgirnin ein, sem stjórnar aðförum þeirra. Tófan, t. d. að taka, drepur ekki meira en það, sem fullnægir þörfum hennar í hvert skipti. Þetta gerir hættuna af minkunum ægilegri en af öðrum rándýrum, því að þeir eru litlir, og ef ekki væri um annað að ræða en fá fylli sína í hvert skipti, þá gerðu þeir minni usla en stærri dýr.
Nei, málaflutningur meiri hl. n. er eins og málaflutningsmanns, sem er að verja umbjóðanda, — þeir reyna að skella skuldinni á aðra. Þannig reyna þessir menn að nota rotturnar sem skálkaskjól fyrir minkana. Þeir halda því nefnilega fram, að rotturnar séu farnar að ráðast á hænsni. Skyldu rotturnar hafa lært þetta af minkunum? Það hefur aldrei heyrzt fyrr, að rottur hafi ráðizt á alifugla, og eru þær þó búnar að vera hér landlægar um áratugi. Það er þá eitt til viðbótar, sem hlotizt hefur af innflutningi minkanna til landsins, ef rotturnar taka upp á þessum ránskap, sem ekki hefur áður þekkzt.
Hv. frsm. meiri hl. vildi gera lítið úr hættunni, sem fiskum í ám og vötnum stafaði af minkunum, og að eiginlega væru minkarnir þarfir til eflingar fiskstofninum, því að þeir væru líklegir til að drepa fiskiendur, sem annars skerða fiskstofninn.
Það skal ekki dregið í efa, að endur gera usla í lækjum og vötnum. En hv. frsm. segir það ekki hættulegt, þó að minkar nái sér í fisk og fisk. En dýr, sem hefur góð lífsskilyrði og slíka frjósemi, að það á frá 1–10 unga á ári og gjarnast 3–6, — já, það er ekkert undarlegt, þó að fjölgun þessara dýra geti orðið meiri en svo, að þau taki „bara fisk og fisk“. Alkunnugt er, hver vágestur selurinn er í ánum. Hann er að vísu þurftarfrekara dýr, en drepur ekki umfram það, sem hann þarf til saðningar sér. Þó að minkurinn sé minni og þurfi minna fóður, mundi hin áskapaða drápgirni hans án tillits til þarfarinnar brátt segja til sín, eins og þegar hann kemst í færi við fuglahópa og önnur fórnardýr á þurru landinu. Þó eru ekki veiðispjöll selins aðallega í því fólgin, hvað etið er, heldur því, að hann fælir fiskstofninn. Það er á sama hátt með minkinn. Hann mun verða valdur að því að fæla fiskinn, auk þess sem drápgirnin fengi áorkað til tortímingar. Það er óþarfi að loka augunum fyrir þessari staðreynd. Yfir fiskstofninum í ám og vötnum vofir tortíming og eyðilegging, ef minkafaraldurinn færist í aukana og uppspretta hans, minkaeldið, verður látið halda áfram.
Það hefur tekizt nokkurn veginn að ráða niðurlögum selsins. Þar var ekki heldur við neitt að jafnast á við minkana, þegar þeir verða komnir um allt land og við öll veiðivötn. Hreppstjóri Þingvallahr. hefur gefið athyglisverða lýsingu á því, hvernig minkurinn er búinn að raða sér allt í kringum Þingvallavatn og aðrennslissvæði vatnsins, hann velur sér felustaði þar, sem hann hefur bezt skilyrði til að fullnægja þörf sinni til lífsframfæris.
Ég held því, að það sé ekkert annað en sjálfsblekking, út frá þeim forsendum, sem hér eru lagðar fram, að láta sér til hugar koma, að hættunni verði frá bægt með öðru móti en því að uppræta stofninn.
Því hefur verið haldið fram, að sú staðhæfing, að minkar drepi lömb, sé ekki á rökum reist. Það er að vísu erfitt að færa fram vissu á dauðaorsök skepna, sem drepast í haga. Ég leiddi rök að því um lömb, sem drepin voru í Borgarf., að þar hefði verið að verki annað dýr en tófan, — en þar til minkurinn kom til sögunnar, höfðu ekki verið önnur dýr en tófan, sem réðust á fé. Enda var vitað um, að minkar voru á þessum slóðum.
Það vill svo vel til, að til mín kom um daginn maður af Vatnsleysuströnd, Erlendur Magnússon bóndi á Kálfatjörn, og hann dró upp fyrir mér mynd af því, hver plága minkafaraldurinn er að verða suður þar. Á fjölda bæja hefur hann drepið stóra hópa alifugla. Á allri ströndinni hefur verið æðarvarp á töngum, sem ganga út í sjó. Þetta æðarvarp hefur farið vaxandi síðari árin, m. a. hjá þessum bónda. En nú hefur borið svo við, að á s. l. vori fann hann ein tvö hreiður á þessu svæði, þar sem æðarvarp var áður til góðra muna. Hann sagði mér enn fremur, að grunur léki á því, að minkar hefðu drepið í girðingu 9 lömb í vor, og hann sagðist vita með vissu, að minkur hefði drepið tvö lömb hjá sér, og lýsti því, hvernig hann lék þau. Hann hafði bitið þau á barkann, sogið blóðið úr hálsæðum þeirra og étið innan úr skinninu við bóga og læri.
Þessi maður gerði sér sérstaka ferð til viðræðna við mig um þetta mál, af því að hann vissi, að ég stóð að þessu frv. Hann vildi segja mér það, sem hann vissi með víssu um aðfarir villiminkanna á þessum slóðum.
Eins og kunnugt er, er mikið fuglalíf í þessu landi til mikils gagns og yndis og unaðar landsbúum. En þar, sem minkurinn er, virðist það óðum þverra, t. d. í hraununum suður með sjó og á Vatnsleysuströndinni, en þar hefur útbreiðsla villiminka verið hröðust á þessum árum. Annars staðar að berast um þetta sömu sögur.
Það hefur líka verið dregið inn í umr. um þessi mál, að minkar gerðu ekki mikið tjón í löndum, þar sem þeir gengju villtir. En í þessum löndum er mikið af stærri rándýrum, sem ráðast á minkana og halda villta minkastofninum í skefjum. Þessu er ekki til að dreifa hér. Hér eru ekki nein dýr, sem hann verður að bráð, og engir til að drepa hann nema mennirnir sjálfir. Auk þess er annars staðar þar, sem minkurinn er villtur, fjöldi smádýra, sem hann lifir á, sem hér eru ekki til. Þau einu dýr, sem ekki er skaði að, að minkarnir eyði, eru rottur og mýs, að öðru leyti ræðst hann á dýr og fugla, sem eru til gagnsemi og ánægju.
Nú má búast við því, að þegar fuglalífið minnkar, þá muni minkurinn snúa sér að öðru, og mundi hann þá verða þeim mun ágengari við annað æti og víla ekki fyrir sér að ráðast á stærri dýr, þegar hungrið sverfur að, því dýrið er harðgert og grimmdin og drápgirnin svo, að úr hófi keyrir.
Ég held þess vegna, að það sé ekki einasta rétt, heldur sjálfsagt fyrir Íslendinga að gera allar ráðstafanir, sem hugsanlegar eru, til að ráða niðurlögum þessara dýra og það strax. En þær tilraunir er ekkert að marka, meðan leyft er að hafa þau í girðingum, þó að vandað sé á allan hátt að búa um þessi dýr. Því hefur verið haldið hér fram, að ekki sé reynt, að minkar lifi af harðindavetur, og leiddar líkur að því, að svo sé ekki. En tófan lifir hér, þó að hún geti ekki aflað sér matar nema á landi, en minkurinn getur farið í vötn og sjó. Þá eru allar líkur til, að hann geti lifað hér í „vellystingum praktuglega“, í hvaða vetrarfari, sem er, því að það er vitað, að hann grefur sér holur, — hann er fyrirhyggjusamur, — hann grefur langt niður í bakka við veiðivötn, og þar eru víða kaldavermsl, er gera honum fært að komast í vötnin til fiskifanga, þó að snjóalög og frosthörkur taki land og sjó helgreipum.
Það er talsvert talað um það í nál. og hv. frsm. meiri hl. n. fór mörgum orðum um það, hvað glæsileg framtíð okkur væri í því að ala hér dýr til skinnaframleiðslu. Og hér í nál. er komizt svo að orði, að sú vara geti orðið útflutningsverðmæti fyrir tugi milljóna króna. Ég vil ekkert vera að varpa skugga á glæsilegar vonir í þessu efni. Og ef þetta væri hægt að gera, án þess að yfir okkur vofði háski, sem gæti numið miklu meira, máske gert landið óbyggilegt, þá væri ekkert nema gott um það að segja, að möguleikar væru fyrir slíkri framleiðslu hér. En hv. frsm. meiri hl. n. minntist á, hver reynslan hefði verið í þessu efni, og við höfum reynslu um þessi efni bæði á friðartímum og á stríðstímum. Og það mega verða á þessari framleiðslu ákaflega miklar breytingar, ef þessar glæsilegu vonir, sem fram koma í nál. um mikla sölu á þessum vörum og gróða af henni, eiga að rætast, að tugir milljóna komi inn í landið fyrir þessi skinn. Til þess að svo geti orðið, þarf að verða geysileg breyting á þessari framleiðslu frá því, sem nú er. Ég er bjartsýnn maður, og ég vil ekki slá skugga á neinar vonir um það, sem miðar til hagsældar á landi voru, en hvað minkana snertir, verðum við að gera upp á milli þess tjóns, sem augljóslega blasir við sjónum okkar, að af eldi þeirra geti hlotizt, og þeirra vona, sem við þá skinnaframleiðslu eru tengdar, og þar er ég ekki í neinum vafa um, hvað gera beri. Vildi ég aðeins beina því til hv. 2. þm. Skagf., sem skipar meiri hl. n. í þessu máli og talar um þennan tuga millj. króna útflutning með skinnasölunni, að þingsályktun, sem hann bar fram hér alls eigi fyrir löngu, bendir til, að það hafa ekki alltaf verið glæsilegir tímar fyrir menn, sem staðið hafa að skinnaframleiðslu i þessu landi. Tillögur hv. 2. þm. Skagf. gengu út á það þá, að ríkið borgaði styrk á útflutt refaskinn og minkaskinn, af því að afkoman væri svo afskaplega léleg í þeirri framleiðslugrein, að sú framleiðsla hlyti að leggjast í rústir, ef þessi styrkur yrði ekki greiddur. Segir í grg. þeirrar tillögu, að þessi atvinnuvegur geti naumast staðið undir tilkostnaðinum við skinnaframleiðsluna, enda sé talið, að loðdýrabú muni mjög mörg leggjast niður og hætta rekstri næsta vetur. Og svo er enn bætt við: „Verður frekara hrun ekki stöðvað nema með verulegum styrk úr ríkissjóði.“ Svona stóð þá þetta á þessu tímabili. Nú vísu hefur því verið haldið fram hér nú, að það hafi ekki orðið nein verðhækkun á þessum skinnum. Þetta kemur ekki vel heim við það, sem loðdýraræktarráðunauturinn skrifaði mér um þetta mál á síðasta vetri, því að þar segir hann, að nú hafi minkaskinn hækkað allverulega í verði, svo að óhætt ætti að vera að reikna með 45 kr. meðalverði fyrir skinn. Ég skal ekkert um það dæma, hvor réttara hefur fyrir sér í þessu efni. En samkv. þessu bréfi loðdýraræktarráðunautarins virðist þarna vera um allverulega hækkun á verði skinnanna að ræða, sem ætti að geta vegið upp á móti þeirri hækkun, sem hefur orðið á framleiðslukostnaðinum. En það er eins um þetta og annað í rökstuðningi meiri hl., að þar rekur sig hvað á annars horn. Þetta er allt vandræðafálm. Mótsagnirnar stangast þar hver við aðra, enda er málstaðurinn eftir því.
Ég þarf svo í raun og veru ekki að fjölyrða meira um þetta efni. Ég hef gert mitt til þess að benda á þá hættu, sem hér vofir yfir, og gert það með því að flytja þetta frv. Og það er vitað, að af almennum málum, sem fram hafa komið á Alþ., hefur þetta mál vakið alveg sérstaka athygli, af því að augu fólksins, sem býr þar, sem þessi villidýr hafa leikið lausum hala, hafa opnazt fyrir þeirri hættu, sem hér vofir yfir. Og það fólk væntir þess af fulltrúum þjóðarinnar, bæði þeim, sem eiga að vera forsvarsmenn landbúnaðarins, og öðrum hv. þm., að þeir taki þannig á þeim háska, sem hér vofir yfir, að einskis verði látið. ófreistað til þess að skakka þann leik, sem þessi villidýr hafa leikið landsmönnum til tjóns. Ég ætla ekki að fara að telja upp þær samþykktir, sem gerðar hafa verið víðs vegar á landinu á sýslufundum, búnaðarsambandsfundum og sveitarfundum um áskoranir, sem sendar hafa verið til Alþ. um þetta efni, en þær eru margar.
Að lokum vil ég aðeins segja það, að frávísun þessa máls, eins og það liggur fyrir hér, virðist mér ákaflega óeðlileg afgreiðsla á málinu, eins og ég þegar hef vikið að. Hér er að vísu talað um, að gera þurfi ýmsar ráðstafanir í þessu efni, svo sem að skerpa eftirlitið með loðdýrabúum og fyrirskipa merkingar. Ég hef skýrt hér, hvað eftirlitið nái skammt. Hér er talað um að merkja dýrin. En það er lítilfjörlegt atriði, því að sleppi dýr úr girðingu, þá skilst mér, að það muni vera nokkuð sama, hvort á því er biti, sýlt, hálftaf eða blaðstýft eða þrírifað eða þrístýft eða hvað annað, sem á þessum kvikindum er til marks um, hvar þau eigi að vera, — ég býst ekki við því, að merkingin mundi standa í vegi fyrir því, að þau þjónuðu sinni náttúru. Og ég býst við, að hvaða mark eða merki, sem á þeim væri, hefðu þau jafna aðstöðu til lífsbjargar, þegar þau á annað borð eru farin að leika lausum hala. En það, sem meint er með þessu merkingatali hér, er að hægt væri að fylgjast með því, frá hvaða búrum þessi dýr sleppa. En það er lítil trygging, sem næst með því, af því að öll búr eru undir það seld, að í hamförum náttúrunnar velti þau um koll og öll dýrin sleppi út, sem í þeim eru, auk þess sem sú hætta vofir alltaf yfir, að dýr sleppi af öðrum ástæðum — svo að í sjálfu sér er þetta ekkert öryggisatriði gagnvart þeirri geigvænlegu hættu, sem vofir yfir okkur í þessu efni. Og að skilja svo við þetta mál sem hér hefur verið lagt til, að vísa því frá og segja: Já, það verður náttúrlega að setja strangari refsiákvæði, — við þekkjum það að setja ströng refsiákvæði. Við þekkjum það í íslenzkri löggjöf. Það er eitt að setja þau og hitt að láta þau verka, og er það mjög svo sitt hvað. Og í trausti þessa alls á svo að sleppa tökum á þessu máli. Það er að vísu talað um að bera hér fram einhverjar breyt. við l. um eftirlit með loðdýrum. En það, sem hér er upp talið í því sambandi, mun reynast haldlítið, sennilega haldlaust, og er það því ekkert annað en sjálfsblekking að ætla að fara að byggja vonir eða traust á því, að með þeim hætti sé hægt að hamla upp á móti eða koma í veg fyrir þann háska, sem hér vofir yfir okkur af þessum völdum.