01.10.1943
Neðri deild: 26. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í C-deild Alþingistíðinda. (2052)
7. mál, minkaeldi o.fl.
Frsm. meiri hl. (Bjarni Ásgeirsson):
Herra forseti. Eins og við mátti búast, hefur fátt komið fram nýtt við hina ýtarlegu grg. hv. þm. Borgf. í upphafi.
Hv. þm. A.-Húnv. taldi áhættuna af eldi aliminka vera meiri en ábatavonina. Í þessu felst aðalágreiningurinn.
Hv. þm. Borgf. minntist á álit Guðmundar G. Bárðarsonar áður og Árna Friðrikssonar nú um það, hvort flytja ætti inn minka eða ekki. Ég álít grg. Guðmundar Bárðarsonar vel þess verða að leggja hana til grundvallar, þegar um innflutning dýranna var að ræða, en það er hæpið nú, þegar villiminkar eru komnir í landið eða þegar um er að ræða, hvort eigi að sjá til, hvort hægt væri að drepa þá minka, sem nú eru hér villtir, áður en þeim, sem í girðingum eru, er útrýmt.
Við erum sammála um, að útrýma beri villiminkum, en ekki um að byrja á aliminkum, áður en gengið er úr skugga um, hvort hægt er að útrýma þeim villtu.
Ég ætla ekki að ræða um, hvort réttara væri að hefja fyrr hernað gegn minkum en rottum. Á einum stað komst rotta í hænsnakofa og drap hænsni unnvörpum, fleiri en hún torgaði að éta, og raðaði þeim í bunka á gólfið. Aðferð minkanna er sú sama. Þeir drepa fleiri dýr en þeir þurfa til að seðja hungur sitt. Ég álít hæpið, að minkar leggist á æðarvarp, þótt þeim sé kennt um minnkandi viðkomu æðarfuglsins. Um fall hans berast svipaðar sögur víðs vegar að af landinu. Víða ferst æðarfuglinn unnvörpum vegna olíubrár, sem sezt í fiðrið, og ber mikið á þessu nú á styrjaldarárunum. Tel ég, að þetta sé helzta orsök þess, hve mikið drepst af þessum fugli. Hins vegar dettur mér ekki í hug að neita, að hætta getur verið á, að minkurinn leggist á æðarvarp.
Hv. þm. veit, að þrátt fyrir það, að illa gangi nú um hríð með sauðfjárræktina, þá erum við ekki vonlausir um, að hún geti orðið arðvænlegur atvinnuvegur aftur. Sama máli gegnir um minkaeldið. Ég tel, að á venjulegum tímum geti það verið blómlegur atvinnuvegur.
Allt karp um aukaatriði á að falla niður. Við erum allir sammála um útrýmingu villiminka. Deilan er aðeins um það, hvort byrja eigi á ali- eða villiminkum. Við teljum margir, að takist að drepa villiminkana, þá sé hægt að halda aliminkunum í skefjum, gæta þess, að þeir sleppi ekki úr vörzlu. Það er mjög stórt atriði, ef tekst að merkja aliminkana. Þá er hægt að sjá, hvað mikið sleppur. Ef svo mikil brögð verða að því, að minkar sleppi, að villiminkarnir haldist við af þeim sökum, er ástæða til endurskoðunar málsins.
Mér er tjáð, að í Ameríku sé notuð aðferð við veiði minka, sem ber góðan árangur, en hér á landi er hún ekki notuð. Væri sjálfsagt að reyna hana hér.
Ef það sannast, að svo mikið sleppi af minkum úr vörzlu, að viðhald villiminkanna byggist á því, og ef veiðin gengur illa, þá getur svo farið, að við verðum sammála hv. flm., en þangað til höldum við þessari stefnu. En þá verður að bæta þeim, sem mikið hafa lagt í kostnað vegna eldis minka.
Um brtt. hv. þm. Siglf. get ég sagt fyrir hönd meiri hl. n., að við sjáum enga ástæðu til að leggja á móti henni, þar sem lítill munur er á skoðun okkar og hans í þessu efni.