21.10.1943
Efri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í C-deild Alþingistíðinda. (2063)

44. mál, verðlag

Fjmrh. (Björn Ólafsson) :

Herra forseti. Hv. flm. fullyrðir, að ég hafi breytt um skoðun í þessu máli. Það er ekki rétt. Ég hef frá því fyrsta verið á þeirri skoðun, að l. næðu yfir þetta, og ég lofaði í fyrra að hlutast til um það við viðskiptaráð, að það tæki málið til athugunar. Ég skrifaði ráðinu nokkru síðar og fól því að leysa málið. Síðan kom það fram hjá form. ráðsins, að það er í vafa um. hvort heimildin í l. sé ótvíræð. Um svipað leyti talaði hv. flm. við mig og sagðist hafa fengið sams konar upplýsingar hjá viðskiptaráði og vildi flytja sérstakt frv. um málið. Ég sagði, að ég sæi ekkert því til fyrirstöðu, að hann flytti brtt., sem gerði þetta skýrt og ótvírætt, en ekki, að ég hefði breytt um skoðun. Okkur kom saman um, að ég skildi senda honum uppkast í því formi, sem ég teldi heppilegt, en þegar frv. hans kemur fram, er það allt annað, og ég gat alls ekki verið því fylgjandi. Ég tel, að eins og frvgr. hljóðar sé hún að kalla má óframkvæmanleg, þó að ekki sé nema þetta: „Er óheimilt að afhenda innflytjanda vöruna, nema skráð hafi verið á innflutningsleyfið, að hve miklu leyti viðskiptaráð óskar að nota þessa heimild, eftir að varan hefur verið innflutt“.

Hv. flm. talar um 40% af landsmönnum, sem eigi við þetta að búa. Það er djúpt tekið í árinni. Það getur verið, að nokkrir staðir verði illa úti, og kann að vera, að sá staður, sem hv. flm. ber helzt fyrir brjósti, verði verzt úti, en þó að ég álíti, að það beri að rétta þarna hjálparhönd, hef ég ekki orðið var við sérstakar umkvartanir frá öðrum hliðum. Það, sem um er að ræða og vakir fyrir flm., er að skylda þá smásala, sem sjálfir hafa innflutningsleyfi, til að selja nokkurn hluta af vörunni með heildsöluverði til smásala, sem geta ekki útvegað leyfi.