21.10.1943
Efri deild: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í C-deild Alþingistíðinda. (2068)
44. mál, verðlag
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera stutta aths. út af orðum fjmrh. Ég vil ekki láta hjá líða að skýra honum frá ummælum hans, er féllu hér á síðasta þingi, en þar segir hann: „Viðskiptaráðið hefur samkvæmt öðrum lögum fullkomið vald til þess að fullnægja þessu. Ég vil mælast til þess, að þessi brtt. verði ekki samþ., en vil heita flm. því, ef hann telur það nokkurs virði, að viðskiptaráði skuli verða send þessi till. sem beiðni ráðuneytisins um, að þetta verði sérstaklega tekið til greina í störfum ráðsins“. Eins og tekið hefur verið fram, að ef þetta hefur ekki verið gert, þá gerir ráðið ekki eins og fyrir það er lagt, en ef það er tilfellið, að þetta hefur verið gert, þá er upplýst, að viðskiptaráð hundsar till. ráðuneytisins. Ef ráðuneytinu eru fengin skýlaus fyrirmæli, eins og ráðh. tekur fram, átti ráðuneytið að beita sér fyrir þeim, en ekki að svara því, að þessi heimild væri ekki til í l., en þetta var skoðun ráðh. Það var því eðlilegt, þegar ég fékk frá honum uppkast, ritað með eigin hendi, um, að þessi heimild skuli verða sett inn í l., að ég héldi, að þessi heimild væri ekki til. Mergur málsins er sá, að ef viðskiptaráð hefur ekki fullnægt beiðni ráðuneytisins, þá ætti að athuga, hvort ekki ætti að setja þessa menn af og skipa aðra menn. Ég mun ekki setja mig á móti að samþ. dagskrá, eins og hún er komin fram, þó að ég hafi ekki fengið nægilega yfirlýsingu fjmrh., en ég verð að viðurkenna, að mér mun ekki finnast mikið leggjandi upp úr slíkum yfirlýsingum. Hins vegar mun ég fylgjast með því, hvað framkvæmt verður í þessu máli, ekki vegna fárra manna, heldur vegna margra manna. Ég hef flutt hér þessa till., vegna þess að ég álít mjög mikla nauðsyn á framkvæmdum þessara mála undir núverandi kringumstæðum í landinu.