26.10.1943
Neðri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (2075)

62. mál, eignarnámsheimild á Nesi í Norðfirði

Frsm. meiri hl. (Jörundur Brynjólfsson) :

Ég þarf ekki að fara nema örfáum orðum um þetta mál og skírskota til nefndarálits meiri hluta nefndarinnar. En meiri hl. n. getur ekki fallizt á að veita eignarnámsheimildina að svo stöddu og lítur svo á, að bæjarstjórn Norðfjarðar hafi ekki gert allt, sem hægt er, til að ná samkomulagi um kaup á jörðinni. Bæjarstjórnin mun hafa sent tilboð til landeigenda um kaup á jörðinni, en það mun hafa verið miklu lægra en eigendur töldu sig geta gengið að. Síðan hefur ekki meir verið reynt, og virðist þetta því alls ekki fullathugað.

Vitað er um suma eigendur, að þeir vilja selja, en þeir vilja fá hærra verð en umboðsmaður bæjarstj. bauð.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða meira um málið að svo komnu.