26.10.1943
Neðri deild: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (2076)

62. mál, eignarnámsheimild á Nesi í Norðfirði

Frsm. minni hl. (Þóroddur Guðmundsson) :

Nefndin gat ekki orðið sammála um afgreiðslu frv. Minni hl. lítur svo á, að búið sé að reyna það, sem hægt er, til samkomulags. Allir nefndarmenn voru þó sammála um, að nauðsynlegt væri fyrir Neskaupstað að eignast umrætt landsvæði. Eigendur hafa alltaf viljað halda þessu landi í óhæfilega háu verði og setja þar að auki ýmis skilyrði, sem mundu í raun og veru tryggja þeim umráðarétt yfir landinu, þó að bæjarstjórnin gengi að tilboði þeirra. Ég sé ekki ástæðu til, að Alþingi sé að draga í eitt ár enn að gefa eignarnámsheimildina. Úr því að það er viðurkennt, að bærinn þurfi að eignast þetta land, er ekkert sjálfsagðara en hann fái það. Það getur enginn maður fullyrt eða látið sér detta í hug, að meiri líkur séu til þess, að þeir hlutlausu menn, sem meta landið, dragi frekar taum bæjarstjórnarinnar en landeigenda, svo að það er vitaskuld á engan hátt verið að ganga á rétt landeigenda, þó að þessi leið verði farin. Ég sé ekki, að nokkur rök hafi komið fram, sem mæli með því að draga þetta lengur, og því beri að samþykkja þetta án frekari dráttar. En það er bara svo í þessari allshn., að þegar talað er um eignarnámsheimild, er eins og verið sé að tala um eitthvert viðkvæmt mál. En það hefur ekki komið fram minnsti snefill af rökum fyrir því, að það geti orðið afgreiðslu málsins til nokkurra bóta að láta það bíða. Og það er ekki rétt, sem haldið hefur verið fram af sumum nm., að það skipti engu máli fyrir kaupstaðinn, hvort málið verður afgreitt núna eða að ári, því að eins og nú standa sakir, hafa landeigendur, sem eiga landið móti bænum og eiga minni hlutann, heita má öll ráð yfir landinu og hafa notfært sér það. Það er kannski ekkert við því að segja, að landið sé leigt út, en það kemur hart niður á kaupstaðnum, að landinu sé ráðstafað meira en orðið er og að landeigendur fái kannski eitt ár enn þá til þess að fara með þetta land eins og þeim sýnist, áður en kaupstaðurinn fær þessa heimild. Ég vil því segja, að kaupstaðnum sé það til stórtjóns að fá ekki þessa heimild strax.

Ég skal ekki fara nánar út í þetta, en vil benda á, að kaupstöðum hafa hvað eftir annað verið gefnar svona heimildir, og er einkennilegt, ef það á að fara að brjóta í bág við þá reglu, þar sem vitanlegt er, að málið verður ekki leyst öðruvísi en á þennan hátt.