21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (2106)

11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis

Forseti (GSv):

Viðvíkjandi skrifl. brtt. frá hv. 2. og 5. þm. Reykv. vildi ég láta þess getið, að þó það standi nú svo sérstaklega á, að nú sé ekki að ræða um tímabil milli þinga, — en samkv. 23. gr. stjórnarskrárinnar hefur konungur, nú ríkisstjóri, heimild til að gefa út brbl. milli þinga, ef nauðsyn ber til, — þá er það aðhald, sem hér er meint gagnvart ríkisstjórninni — þ. e. a. s. ríkisstjóra — þó mikil þvingun á anda þessarar gr. stjórnarskrárinnar. Og sérstaklega tel ég, að mér beri sem forseta að benda á, að auk þess sem þessi till. er í sjálfu sér óviðkomandi því máli, sem hér liggur fyrir, þá er hún óframkvæmanleg. Vil ég leyfa mér til stuðnings því að minna á, hvernig till. er orðuð, að þar segir, að jafnframt vænti þingið þess, að ríkisstj. gefi ekki út brbl., nema með samþykki þingflokkanna eða fulltrúa þeirra. Þetta er það óákveðið, að það er gefið, að ákvæði till. yrðu ekki framkvæmd með neinni mynd, og hæstv. ríkisstj. gæti í raun og veru vegna andans í brtt. og einnig vegna orðalagsins ekki framfylgt henni. En þótt ég ekki beinlínis vísi úr forsetastóli þessari till. frá, ætla ég að láta þessi orð fylgja, áður en hún verður borin undir atkv. þingmanna.