21.04.1943
Sameinað þing: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 37 í D-deild Alþingistíðinda. (2111)
11. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis
Bjarni Benediktsson:
Ég hef skilið yfirlýsingu hæstv. stjórnar svo, að hún mundi ekki gefa út brbl., sem nokkurs tvímælis gætu orkað, nema í samráði við þingflokkana, þeirra sem til næst. Það er að vísu rétt, að það mundi vera óheimilt að setja takmarkanir á rétt stj. til að gefa út brbl., og ef það væri gert með þessari till., fengi hún ekki staðizt, og hefði orðið að vísa henni frá atkvgr. Það er ekki gert í þessari till., þar sem hún er eingöngu ósk þingsins, en ekki krafa. Hins vegar er ástæðulaust að bera þessa ósk fram í því formi, sem gert er, nema af hálfu þeirra, sem treysta ekki ríkisstj., en trúa henni til ófremdarverka. Þar sem það er vitað, að þeir, sem bera till. fram, eru aðalhvatamenn þess, að núverandi stj. var sett á stofn, og hafa með framkomu sinni átt drýgstan þátt í, að hún hefur setið að völdum síðan, ber að skoða þá sem upphafsmenn hennar og stuðningsmenn, og þá lít ég svo á, að till. sé borin fram að tilefnis- og nauðsynjalausu frá hendi þessa flokks.