21.04.1943
Sameinað þing: 7. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (2128)
14. mál, milliþinganefnd í skattamálum
Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):
Herra forseti. Það er hvort tveggja, að það er ekki langur tími til stefnu nú og það er einnig auðséð af því, sem á undan er gengið, að hverju er stefnt. Það var almennt álit manna í fjhn., er rætt var um dýrtíðarmálin, að þau skattaákvæði, sem voru í stjfrv., væru illa undirbúin og þyrftu nánari athugunar við. Það mundi því létta mjög starf þingsins, er það kemur saman aftur, ef nú væri sett mþn. í þessi mál og að hún gæti skilað áliti, áður en þing kemur saman aftur, þannig að þá lægi ljóst fyrir, í hverju menn væru sammála og í hverju ekki.
Nú er ekki langur tími til stefnu, og skal ég því ekki hafa þessi orð fleiri.